Freyr - 01.07.1961, Síða 10
208
FREYR
Veröur hún því í tvennu lagi.
Nefndin flytur Ólafi E. Stefánssyni, ráðu-
naut, beztu þakkir fyrir alla fyrirgreiðslu
og aðstoð við nefndina.
ÁLYKTUN
til Búnaðarþings frá Milliþinganefnd
í holdanautamálum.
Nefndin leggur til:
1. Að nú þegar verði unnið að því, með
innflutningi djúpfrysts sæðis að hrein-
rækta hinn erlenda holdanautastofn,
sem fyrir er í landinu.
2. Jafnframt séu athugaðir möguleikar á
því að koma upp hér í landinu fleiri
hreinræktuðum holdanautastofnum
með innflutningi nýfæddra kálfa, svo
sem af Hereford og Aberdeen Angus
kynjum. Enda verði þeir aldir upp i
öruggri sóttkví með innlendum naut-
gripum, þar til fullkomið öryggi feng-
ist um heiibriigði þeirra. Innflutning-
urinn á sæði og gripum fari fram sam-
kvæmt gildandi lögum um innflutn-
ing búfjár.
Sveinn Jónsson Einar Ólafsson
(sign) (sign)
Þorsteinn Sigurðsson
(sign).
GREINARGERÐ
Sveins Jónssonar.
Nefndin skoðaði og kynnti sér holda-
nautarækt í Noregi. En hún er aðallega í
Suður-Noregi, Rogalandsfylki.
Á síðastliðnum 11 árum hafa Norðmenn
tvívegis flutt inn hreinræktuð holdanaut
frá Skotlandi. Fyrst 1950 og aftur 1957, í
bæði skiptin fullorðna gripi, naut og kelfd-
ar kvígur af Aberdeen Angus og Hereford-
kynjum.
Það var mjög fróðlegt og gagnlegt að
kynnast þessum málum eins og þau
standa hjá frændum okkar í Noregi.
Viðhorfin hafa verið lík þar og hér fyrir
innflutninginn, skiptar skoðanir og átök.
Um þessa tilraun Norðmanna skrifar
Trodahl fylkisráðunautur 1958, átta árum
eftir fyrsta innflutninginn. „Hér er fengin
reynsla, og þeir, sem voguðu fé og fyrirhöfn
og höfðu forystu í þessu máli, eru yfirleitt
ánægðir með árangurinn og áhugi fer ört
vaxandi“.
Nokkrir bændur hafa komið sér upp
sjálfstæðum bústofni af þessum innflutta
holdanautastofni og þá jafnframt lagt nið-
ur mjólkurframleiðslu.
Ástæðuna fyrir þessum breytingum töldu
bændurnir þá, að mjólkurframleiðslan
væri svo vinnufrek og bindandi, auk þess
að ekki væri hægt að fá aðkeypta vinnu til
hennar. Hins vegar væri holdanautabú-
búrekstur ekki eins vinnufrekur og ekki
eins bindandi. Fjölskyldan kæmist af án
aðkeyptrar vinnu með svipaðan búrekst-
ur til inntektar, en hefði það bæði frjáls-
ara og erfiðisminna.
Einnig hafa þessir bændur nokkra líf-
nautasölu innanlands og út úr landinu,
því eftirspurnin er mikil þar eins og ann-
arsstaðar, þar sem þessi kyn eru hrein-
ræktuð.
Þá hafa naut af þessum kynjum verið
sett á sæðingarstöðvar, svo bændur geti
fengið kýr sæddar til að ala undan þeim
hálfblóðs kálfa til slátrunar.
Enn er þessi stofn Norðmanna það lítill,
að hreinkynjanautum hefur ekki verið
slátrað til þessa, aðeins hálfblóðs gripum.
Trodahl fylkisráðunautur telur að þessir
hálfblóðs gripir um 18 mánaða gamlir
leggi sig að jafnaði með 180—190 kg falli,
teknir beint úr högum án eldis. Að sjálf-
sögðu ganga þeir allan tímann á vel rækt-
uðu beitilandi.
Var oss tjáð, að kjöt af þessum blend-
ingum væri svo eftirsótt, að það væri upp-
pantað fyrirfram af hótelum og matsölu-
stöðum er greiddu það mun hærra verði
en annað nautakjöt.
Forystumenn í landbúnaði á þessu svæði,
sem nefndin fékk tækifæri að ræða við,
virtust hafa mikinn áhuga fyrir útbreiðslu
holdanautanna til hagsbóta fyrir norskan
landbúnað. Töldu hann auka fjölbreytni í
búrekstrinum, gefa betri og verðmeiri
framleiðslu í kjöti. Auk þess gæfist meira
svigrúm til breytinga í búrekstri við til-
komu holdanautanna.
Allt er þetta skylt okkar aðstæðum og