Freyr

Volume

Freyr - 01.02.1962, Page 5

Freyr - 01.02.1962, Page 5
 LVill. ARGANGUR NR. 4 REYKJAVIK, FEBRÚAR 1962. Sparisjóðir og sparifé Það hefur löngum þótt góð ráðdeild að safna sparifé. Rétt er það, að þeir, sem ekki hafa tök á að velta fjármunum sín- um sjálfir í arðbcerum athöfnum, hljóta að lána þá öðrum til notkunar. Þessvegna eru til sparisjóðir, að skildingar fjöldans, sem safnar litlum eða stórum upphœðum, eru bezt geymdir í lánastofnunum. Spari- sjóðir eru í öllum héruðum landsins og sumstaðar nokkrir i sömu sýslu. Ekkert er eðlilegra en að sparisjóður hvers svæðis sé lánveitingastofnun sama umdœmis, enda mun oftast svo vera, en komið getur það fyrir, að sparisjóður í sveit hefur lánað sparifé það, er hann hafði til umráða, alla leið til höfuðstaðarins. Það er ekki alltaf víst, að athafnir héraðs séu í samræmi við sparifé umdœmisins — það kemur fyrir að athafnamenn vantar eða einhverjar aðrar orsakir hindra framkvœmdir, sem krefjast fjármagns. En þó getur skeð, að smásparendur spari mikið og framkvæmdir séu samtimis miklar á sama svœði. Árið 1961 varð ýmsum mikið tekjuár. Afkoma manna, einkum við sjávarsíðuna, var góð og ágœt og margir hafa þar haft miklar tekjur. Ýmsir í bœjum álíta, að sveitafólk hafi einnig safnað miklu í spari- sjóði á síðasta ári. Þess hefur maður sér- staklega orðið var eftir að Búnaðarbank- inn lauk ársuppgjöri og blöðin fluttu fregnir af þvi, að sparisjóðsdeild hans stœði með miklum blóma og að sparisjóðs- innstœður í Búnaðarbankanum í Reykja- vík hefðu aukizt um 68,7 milljónir á sið- asta ári og til viðbótar 13 milljónir í úti- búunum á Akureyri og Egilsstöðum. Hið rétta í þessu máli er, að aðeins örfáir hundraðshlutar þessa fjármagns mun vera eign sveitafólks. Sparisjóðsinnstæða Bún- aðarbankans í Reykjavik er að yfirgnœf- andi meirihluta eign íbúa höfuðstaðarins og líkt mun vera komið á Akureyri. En þegar gerðir hafa verið upp sparisjóðs- reikningar um gjörvallt land fyrir s. I. ár er vonandi um aukningu þar einnig að rœða, því að fjárfesting í bústofnsaukn- ingu og umbótum jarða mun varla hafa verið i meðallagi á siðasta ári. En þess skulu menn minnugir, að á tímum hvikuls peningagengis eru aðrar eignir þó örugg- ari verðmœti en innstœður i sparisjóðum.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.