Freyr - 01.02.1962, Blaðsíða 18
62
FRE YR
Þrjár járnslegnar trérekur og ein með járnblaði. Lengst
til hægri er rekuskajt.
Frá vinstri: 1. Mykjukvísl (til að moka mykju). 2.
Kvísl til að dreifa mykju. 3. Trékvísl til ýmissa nota.
4. Járnslegin reka.
Landbúnaðarsafn Hörðalands, sem geymt
er á Stend (forstjóri Johs. Revheim), hefur
góðfúslega lánað mér myndirnar fyrir at-
beina rektors Búnaðarskólans, Asbjörns
Öye. Færi ég þeim aðilum alúðarþakkir
fyrir hjálpsemina.
Myndirnar eru einvörðungu af búnaðar-
áhöldum úr ýmsum byggðum Hörðalands,
en einmitt þaðan komu margir landnáms-
mannanna.
Hít (n. skinnhit). Hún var gerð úr tveim heilum sauð-
skinnum, sem saumuð voru saman svo að rönd féll að
rönd og skækill að skækli. Hítin var sérstaklega notuð
til að bera í korn að myllu til mölunar og svo mjölið
heim aftur.
(Heimildir að mestu leyti frá J. Revheim, forstöðum.
Landbúnaðarsafns Hörðalands.)
Þorsteinn Þ. Víglundsson