Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1962, Side 14

Freyr - 01.02.1962, Side 14
58 FRE YR Ég skal taka dæmi: Ég hef það fyrir satt að nýr togari kosti nú um 40 millj. króna. Væru eömu gjöld heimtuð af kaupendum hans og af bóndanum, mundi sú skatt- heimta nema um 8.82 millj. króna. Þess- ari upphæð er sleppt, af því að sjósókn á í hlut. En væri þessari upphæð, — þess- um 40 milljónum, — varið til kaupa á bú- vélum, mundi ríkissjóður hagnast um þennan skilding. Annað dæmi skal tekið: Ef vél er keypt í trillu eða annan lítinn fiskibát, eru heimtuð sömu gjöld af henni og af dráttarvélinni, — þ. e. sömu hundr- aðsgjöld af kaupverði. En ríkisvaldið skilar aftur öllu því, sem það áður heimti, þegar kaupandinn er búinn að rölta milli nokk- urra bókfærslustöðva í höfuðstaðnum, að sjálfsögðu með viðeigandi pappíra í hönd- um. Ef kaup á fullbúinni dráttarvél væru verðlaunuð á líkan hátt, mundi sú upphæð nema rúmum 44.2'DO krónum. Þetta er með öðrum orðum rúmlega mismunurinn á verði nýrrar og notaðrar dráttarvélar, nak- innar, þ. e. án allra hjálpartækja. Og enn er ekki fulleögð sagan. Ríkið hefur stofn- sett allaigra sjóði, sem það hlutverk er sett að lána fé til kaupa á skipum og vél- um í þágu sjósóknar. Þessum sjóðum er gert það að skyldu að lána allt að 85% af kaupverði skipa, a. m. k. hinna stærri. Að vísu mun hafa komið á daginn, að til þess að standa að fullu við þessa skyldu þegar um stærstu fiskiskipin hefur verið að ræða, hefur sjóðinn skort til þess fulla getu. En þá hefur verið, a. m. k. stundum, gripið til ríkisábyrgðar, og mun þar skammt á milli. En þegar vélar til land- búnaðar eiga í hlut, þ. e. vélar í eigu bænda, er engin stofnun til í landinu, sem hliðstæðu hlutverki hefur að gegna. Hér er því enn misskipt. Þó ég hafi hér tekið þessi dæmi til sam- anburðar frá sjósókn og landbúnaði, er fjarri mér að gera það vegna þess, að ég vilji skóinn ofan af sjósókninni. Ég ann henni fyllsta gengis, og efa að við hana sé ofgert. En sé allt í hófi þar, mun eitt- hvað vangert við bændur. Þessir atvinnu- vegir eru hliðstæður. Þeir sækja báðir björg í skaut móður náttúru. Þar er þó einn reginmunur á. Sjósókn er rányrkja. Hún sækir sína björg til hinna villtu nytja eingöngu, án nokkurrar íhlutunar af hendi mannsins, — án nokkurrar tilraunar til endurgjalds fyrir það, sem fangað er. Framlag hans er það eitt, enn sem komið er, að beita þekkingunni og tækninni til hins ýtrasta í þágu rányrkjunnar. Hið eina, sem enn er þar unnið í þágu lífs og framvindu, er dálítil viðleitni til frið- unar. Hún mun þó víðast lausari í reipum en skyldi, enda margt, sem togar þar í aðrar áttir. Ræktun er hugtak, sem til þessa hefur reynzt víðs fjarri íslenzkri sjómennsku. í þessu efni er landbúnaður vor and- stæðan. Hugtakið ræktun er orðið hvort tveggja: aðalsmerki hans og bjargráð. Við höfum helgað hann þeirri hugsjón. Þótt þar sjáist viða gelgjuskeiðsmerki er víst, að allar vonir —• allir draumar — þeirra, er fegurst dreymir um þróun hans, stefna að fyllri og fegurri ræktun. Og vonir þeirra, sem víðskyggnastir eru í garð sjó- mennskunnar, stefna að hinu sama í garð hennar, þ. e. að ræktun fiskimiða vorra. Enn eru það draumar einir, en hafi þá heila dreymt. Aldrei rætast þeir draumar, sem engan dreymir. En hversu sem þess- um málum er velt fyrir sér, hvíla báðir þessir höfuðatvinnuvegir okkar á vélun- um. Þær eru lausn mannkynsins á bjarg- ráðum samtíðarinnar. Ég vil því skora á alla, og þó fyrst og fremst þá, sem skipað hefur verið á einn eða annan hátt í for- ustulið bændasamtakanna, að taka það til rækilegrar athugunar, hvort sá reginmun- ur á viðhorfi ríkisvalds og fjármagns, til þeirra greina þjóðarbúsins, sem hér hefur verið bent á, sé með öllu réttmætur.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.