Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 27

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 27
FRE YR 71 Samvinnuf jós Um undanfarin ár hefur FREYR við og við getið þess, þegar frásagnarvert hefur þótt félagslegt framtak bænda í grann- löndunum og þá m. a. þegar þeir hafa sam- einazt um búfjárrækt á samvinnugrund- velli, svo sem við stofnun samvinnufjósa. Um eitt slíkra samvinnufyrirtækja skrifaði danskur ráðunautur í Frey íyrir nokkr- um ár'um. Nú hefur nýlega hafið starfsemi sína stærsta samvinnufjósið, sem starfrækt er á Norðurlöndum, en það er á Falstri í Danmörku. í fjósi þessu eru 150 mjólkandi kýr en 7 bændur sameinuðust um þetta félagsfjós. Þeir, sem lögðu til flestar kýr, höfðu áður 30 í fjósi, aðrir þaðan af minna. Fjósið er alveg nýtt, útbúið með tækni legum hjálpargögnum svo sem vélknúðum fóðurvagni, færiböndum til flutnings gróf- fóðurs og svo fer mykjan í þró þar sem þynna skal er hún er flutt burt. í öllum básum eru gúmmottur svo að aldrei þarf undirburð heldur eru motturn- ar skolaðar svo að kýrnar haldist hreinar. Byggingarnar, ásamt íbúðarhúsi fóður- meistarans, kostuðu um 700 þúsund dansk- ar krónur (um 4,4 millj. ísl. kr.) Bændurnir, sem að félagsfjósi þessu standa, segjast hafa í þetta ráðizt til þess að viðhalda búfjárstofninum og framleiðsl- unni, en þeir hafi engin ráð séð til þess sem einstaklingar, því að til þess fengu þeir ekki vinnuafl. í stað þess að hver þess- ara 7 bænda þurfti áður fjósamann, eru kýrnar nú hirtar í samvinnufjósinu af fóð- urmeistaranum og giftum aðstoðármanni og svo eru tveir nemar til viðbótar. Mjólkin úr kúnum í þessu fjósi rennur beint úr spenahylkjunum um slöngur og í safndunk (tank), en honum er síðan ekið beina leið til mjólkurstöðvar í Kaupmanna- höfn. Til mjólkurbúsins í sveitinni urðu þessir bæ(ndur að greiða nokkra upphæð sem nokkurs konar skaðabætur fyrir að skorast undan merkjum um notkun þess, þar voru þeir félagsmenn áður, en við að þeir hættu þátttöku í félagsstarfi þess missti það um hálfa milljón lítra á ári. Gamlir menn, feður tveggja bænda, sem eru aðilar að samvinnufjósinu sögðu, er þeir voru spurðir um álit þeirra á nýbreytni þessari, að þetta væri ekkert meiri breyt- ing en þeir sjálfir hefðu orðið að gera um aldamótin er þeir byrjuðu búskap, en þá sameinuðust þeir um félagsframtak í mjólk- urbúi sveitarinnar. Nú er viðhorfið annað hvort að hætta að framleiða mjólk eða hafa þetta svona því að enga er að fá til að sinna kúm á hverjum bæ, og bændurnir hafa alveg verið að uppgefast við búskapinn vegna skorts á hjálp, nú geta þeir sinnt öðrum störfum búsins, ræktað landið, fram- leitt fóðrið og hirt húsin, svín og hænsni og ef til vill eitthvað af ungviði, sögðu gömlu bændurnir. Kýr, sem mjólkuðu yfir 20 þús. fe áriö 1960 (Frh.i Ársafurðir: Nafn: Faðir: Móðir: 'O 73 * •o ó . Eigandi: S 2? 3 <3 U* ’<u 165. Von 24 Huppur S162 Gæfa 99, Búð 4886 4.10 20.033 Sigurður Björnss., Tobbakoti, Djúpárhr. 166. Brúða 17 Brandur Kinna 4172 4.80 20.026 Jóhann Kristinss., Ketiisst., Holtahr. 167. Lukka 31 Dreyri Lukka 2 4550 4.40 20.020 Jón M. Jónss., Engidal, Eyrarhr. 168. Ýra 25 ? Ýra Relludóttir 5002 4.00 20.008 Þorsteinn Péturss., Mið-Fossum, Andak.hr. 169. Gráskinna 13 Blakkur Bláma 10 4547 4.40 20.007 Eiður Arngrímss., Þóroddsst., Ljósav.hr. 170. Mána 28 Bauluson Lind 8 4340 4.61 20.007 Jón Sigurðss., Skollagróf, Hrunam.hr. 171. Von 76 Tígull S42 Hryggja 55 4891 4.09 20.004 Steinar Pálsson, Hlíð, Gnúpverjahr. 172. Kolla 7 Skjöldur Tinna 1 5142 3.89 20.002 Kjartan Sigtryggss., Hrauni, Aðaldælahr.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.