Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 20

Freyr - 01.02.1962, Qupperneq 20
64 FRE YR hagað, að vélin sé notuð stutta stund í einu en kólni siðan á milli, er ástæða til þess að endurnýja olíuna oftar en ella. Kælivökvi. Þegar vélin kólnar myndast dögg á strokkunum, sem mengar smurolíuna svo hætta er á, að fram komi sýring á legum, sveifarvölum og öðrum slitflötum, en af því leiða vélaskemmdir. Ef þetta endur- tekur sig mjög oft, er ástæða til örari end- urnýjunar á smurolíunni. Sé vélin vatns- kæld, þarf að gæta þess að ætíð sé nægi- legt kælivatn á henni, því ofhitun getur valdið tjóni. Gott er að blanda kælivatnið ryðvarnarefnum, til þess að varna ryð- myndun á kæliflötunum. Ryðmyndun kem- ur fram sem skán eða flysjur, sem hrúðr- ast upp og valda stíflun fyrr eða síðar, ef ekki er að gætt. Ef vélin er notuð á þeim tímum árs, sem hætta er á frost- um, er nauðsynlegt að blanda kælivatnið frostlegi. Ef notaður er einn hluti af frost- legi á móti 2 hlutum vatns er vélin ör- ugg í 18° frosti. Ef kælivatnið sýður á vélinni ber að stöðva hana þegar í stað, og bíða þangað til hún kólnar, en bæta ekki vatni á hana. Það gæti valdið tjóni að bæta á hana köldu vatni á meðan hún er enn heit. Hitamællr segir til um það hvort vélin er hæfilega heit, eða litað ljós kviknar ef vélin hitnar melra heldur en eðlr.legt er. Rafhlaða. Rafhlaðan er viðkvæmt tæki, sem þarfn- ast sérstakrar umönnunar. Sé ampermælir á útbúnaði vélarinnar er auðvelt að fylgj- ast með því, hvort hleðsla á sér stað við vinnu, en ef í hans stað er litað ljós þá kviknar á því, ef um afhleðslu er að ræða. Afhleðsla getur komið fram á mæli eða viðvörunarljósi, ef haft er logandi á ljós- um í myrkri. Sé um mikla útleiðslu að ræða, sem or- sakast af skemmdum á rafkerfinu, þarf að taka annan pól rafhlöðunnar úr sam- bandi, þar til kunnáttumaður fæst til þess að framkvæma nauðsynlega viðgerð, ef ökumaður getur ekki sjálfur gert við það, sem úr lagi hefur farið. Bæta þarf eimuðu vatni á rafhlöðuna öðru hverju, en gæta þess að yfirfylla ekki og spilla ekki vatni á tengingar, sem þurfa alltaf að vera þurrar og hreinar, og smurð- ar með vasilíni svo síður myndist sýru- útfelling á þeim. Þess skal getið, að af- köst rafhlöðunnar minnka stórlega við aukinn kulda, svo að við 0° er nýting að- eins 65% og minnkar eftir því sem kuld- inn er meiri. Eldsneyti. Eldsneyti það, sem notað er á diesel- vélar, er hráolía, og fæst hún afgreidd á ýmsan hátt, t.d. af dælu á olíustöðvum beint á eldsneytisgeyminn, af flutninga- bifreiðum, sem afgreiða á einkageyma við- komandi aðila og í tunnum, sem fluttar eru til viðkomanda. Þegar kemur að því að fylla á elds- neytisgeyminn, eru í flestum tilfellum notaðar dælur til þess að dæla hráolí- unni á milli. Ber þá að gæta ýtrustu var- úðar til þess að óhreinindi nái ekki að komast inn á eldsneytisgeyminn, og ekki má skilja tunnuna eða geyminn eftir op- inn. Sé eldsneytið geymt í tunnum, sem standa úti, ættu þær að standa þannig, að vatn nái ekki að safnast að sponsgat- inu, því við hitamismun gæti þrýsting- urinn í tunnunni minnkað, svo að vatnið

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.