Freyr - 15.01.1971, Blaðsíða 26
Sílósamstæða í Stafangri — hana er verið að stækka svo að þar rúmist 135.000 lestir korns í einu og þar
geta 40.000 Iesta skip lagzt að bryggju. Þetta er og verður mesta sílósamstæða í Noregi.
nautpeningsrækt, mjólkurframleiðsla og
svo svínaræktin aðall búfjárræktarinnar.
Land hefur verið brotið, mikil mannvirki
reist og menningin sett sinn svip á byggð-
ina, engu síður en í hlýrri byggðarlögum.
Atorkumenn hafa verið að verki, og at-
orkufólk þarf enn til þess að halda í horf-
inu, en hvar sem um þessa slóð er farið
blasir það eitt við augum, að hér séu arf-
takar, sem í engu eru ættlerar feðra eða
mæðra og að hér ríki bæði búmenning og
önnur menning ekki minni en þar, sem
betra er undir bú. G.
Heimboð Kornverzlunar norska ríkisins til fél-
agssamtaka íslenzkra bænda hljóðaði þannig,
að tii 10 daga dvalar í Noregi voru boðaðir
formenn Búnaðarfélags íslands og Stéttarsam-
bands bænda og ritstjóri FREYs og fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambandsins, til þess að
kynnast, við eigin sjón og raun, starfsemi
Kornverzlunar norska ríkisins og norskum
landbúnaði, ásamt vissum félagslegum athöfn-
um bans. Þriðja og síðasta greinin um það, er
séð var og heyrt í förinni, kemur í næsta
hefti FREYs.
52
F R E Y R