Freyr - 15.01.1971, Blaðsíða 11
fíýr í vögnum
og
Ryholmkerfi
Það eru ekki neinar líkur til þess, að við
getum hagnýtt þá nýjung, sem Alfa-Laval
er að prófa um þessar mundir á tilrauna-
búi sínu — HAMRA — utan við Stock-
hólm. Þeir kalla það UNICAR en það þýðir
eiginlega ein kýr í vagni og er sannmæli,
því að svo er til hagað, að þegar mjalta
skal er sá háttur viðhafður, að hverri kú
er ekið á vagni að mjaltabúnaði. Hver bás
er eins konar vagn og það er hann ásamt
kúnni, sem fluttur er frá sínum stað í fjós-
inu til mjaltastöðvar — á stöðul mætti
víst segja.
En það er meira. Kúnni er ekið þangað
sem hún á að meðtaka fóðrið sitt og þar
sem hreinsa skal áburðinn, er fellur í gegn
um rist í vagninum og í geymsluhólf undir
ristinni. Hér er því farið öfugt að miðað
við venjulega starfsháttu, hér er það kýrin,
sem flutt er, áður var það mjólkin, fóðrið
og áburðurinn. Hver kýr er í sínum lokaða
vagni og vagnarnir mynda lest. Á ákveðn-
um stað leiðarinnar opnast geymsluhólf
áburðarins undir ristum hans og þar tæm-
ist það niður um op í gólfi fjóssins. Sjálf-
virkur búnaður sér fyrir því að hver kýr
fái sinn ákveðna og afveg'na skammt af
kraftfóðri og annað er eftir þessu. Og svo
eru það mjaltirnar. Svo er sagt, að með
þessum umbúnaði geti mjaltamaður
mjaltað 120 kýr á venjulegum vinnudegi,
já, því er haldið fram að hann geti mjaltað
allt að 180, en það mál er ósannað enn.
Áhöfn og allur búnaður er miðað við
300 kýr og talið er óvíst, að svo fjárfrekt
fyrirtæki, sem hér hér um ræðir, komi til
greina þar sem færri kýr eru í fjósi, en
svo stórar áhafnir eru ekki óvíða í sam-
vinnufjósum Austur-Evrópu.
Það sem hér um ræðir er því naumast
eða ekki við hæfi venjulegs búskapar eins
og við þekkjum, en hér er það fjármagnið
í byggingum og búnaði, sem leysa skal af
hólmi heilmikið vinnuafl, því að óneitan-
lega er hverjum starfsmanni ætlað að
leysa af hendi miklu meira hlutverk en
gerist í þeim fjósum, sem nú eru í notkun,
enda væri fjármagninu illa varið ef það
skapaði ekki slík skilyrði. Alfa-Laval hef-
ur ekki upplýst neitt um hvað mikil um-
rædd fjárfesting er og niðurstöður tilraun-
anna eru enn ekki tilkynntar enda er að-
eins um ár síðan búskapurinn komst í
notkun. En varla er það nokkuð fyrir
okkur, svo sem fyrr er sagt, en þetta er
frétt eigi að síður.
Úr hjarðfjósinu koma kýrnar og: stíga í mjaltavagnana, sinn vagninn fyrir hverja kú færist umhverfis
mjaltagróf og úr vögnunum fara kýrnar eins og myndin sýnir. Mjaltavél er fyrir hverja kú og nytin
er tæmd eftir vigtun í tankinn t. v.
F R E Y R
37