Freyr

Árgangur

Freyr - 15.01.1971, Síða 27

Freyr - 15.01.1971, Síða 27
Eftir: Fréttabréf um heilbrigðismál ---•><*><•—- Blýeitranir í börnum Mánaðarrit brezka heilbrigðismálaráðu- neytisins hefur nýlega skýrt frá alvarleg- um vanda sem komið hefur upp í Englandi og er þar mörgum áhyggjuefni. Það má heita með ólíkindum að Englendingar berjist framvegis einir við þann vanda, og ekki kæmi mér það á óvart að hann skyti einnig upp kollinum hér á landi, sé hann þá ekki þegar búinn að gera það. Á fimm ára tímabilinu 1958—1962 er talið að 310 börn undir 15 ára aldri hafi verið lögð inn á enska spítala vegna blý- eitrunar. En það sem þykir ískyggilegast er, að 120 af þessum eitrunum áttu sér stað á árinu 1962, á móti 40—50 að meðal- tali öll hin árin. Dauðsföll af völdum blý- eitrunar á þessu tímabili voru 9. Af 3 tilfellum sem voru tilkynnt nefndinni er rannsakar vofeifleg dauðsföll og slys í heimahúsum, var eitt banvænt, en orsök eitrunarinnar ekki tilgreind, en hin 2 stöf- uðu af miklu blýmagni í málningunni á rúmum barnanna. Síastliðið ár kom ýmis- legt í ljós sem skýrði málið frá fleiri hlið- um. Plastleikföng, sem flutt voru inn frá Hong Kong, voru blönduð 2600 hlutum af blýi á móti 1 milljón af plasti, eða 0,26%. Samkvæmt niðurstöðum efnarannsóknar- stofnunar ríkisins þótti sannað að örlítið af blýi losnaði úr leikföngunum þegar börnin sjúga þau og sleikja. Af þessum ástæðum fengu innflytjend- ur fyrirmæli um að gæta þess að plast- leikföng, sem flutt væru inn í landið, væru sem allra minnst blýblönduð, og magnið mætti aldrei fara fram úr 0,025%, eða með öðrum orðum, yrði að vera rúmlega 10 sinnum minna en í leikföngunum frá Hong Kong. Skömmu eftir að þessi fyrirmæli voru birt, kom skýrsla frá Paddington spítalanum að þangað hefðu komið 12 börn með blýeitrun á síðastliðnum þrem árum og ein þeirra banvæn. Börnin voru á aldrinum eins og hálfs til fimm ára. Rétt seinna kom tilkynning um að rannsóknir hefðu leitt í ljós 10,5% blýmagn í máln- ingu á leikfangakubbum til að raða saman og byggja úr. Þegar þetta hafði verið stað- fest af efnarannsóknarstofnun ríkisins, voru gefin út ströng fyrirmæli um að blý- magn í málningu á barnaleikföngum mætti aldrei fara fram úr 1,1% og lögð við þung viðurlög ef út af því væri brugðið. Áður hafði verið treyst á samkomulag við máln- ingarverksmiðjurnar um hið leyfilega blý- magn. í skýrslu ráðuneytisins segir, að þó mikill fjöldi fólks sé nú orðið vel á verði, síðan þessi tíðindi voru kunngerð, sé þó engin vafi á að vítaverð vanræksla og sinnuleysi vissra foreldra eigi, meðal annars, sök ó því hvað mörg börn verða blýeitruninni að bráð, og að ekki verði komizt hjá að taka þetta mál föstum tökum og til ræki- legrar endurskoðunar. Blýeitrun er sennilega mjög fátíð í börn- um hér á landi og ekki hefur tekizt að fá neinar upplýsingar um slík tilfelli fram að þessu. Til dæmis hefur ennþá ekki komið barn með blýeitrun á barnadeild Landspít- alans. Svo virðist sem ekki ætti að vera mikil hætta á eitrun frá máluðum hlutum eða plastvörum, sem eru framleiddar hér. Samkvæmt upplýsingum frá efnafræð- ingi málningarverksmiðjunnar Hörpu, er svo lítið magn af blýi í þeirri málningu sem blönduð er hér á landi, að með ólík- indum má telja að hún valdi eitrunum. F R E Y R 53

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.