Freyr - 01.07.1971, Blaðsíða 28
Fjölbreytt ostaborð er eftirtektarvert og vekur matarlyst.
Hristið sósuna saman í hristiglasi og hellið
yfir mjög smátt skorið hvítkál og rifinn
ostinn.
Kartöfluostaréttur
6—8 stórar kartöflur, 3 msk. smjör
soðnar 250 g ostur
2 laukar 1 tsk. salt, pipar, múskat
Rífið á rifjárni, lauk, ost og kartöflur.
Hitið smjörið á pönnu og setjið ost, lauk
og kartöflur á, stráið kryddi yfir. Hrærið
í með spaða frá botninum öðru hverju
meðan rétturinn hitnar vel í gegn og ost-
urinn bráðnar.
Þetta er mjög fljótlegur, lystugur og
bragðgóður réttur og tilvalið að nýta kart-
öfluafganga þannig.
Seytt rúgbrauð eða smjörsteikt hveiti-
brauð er gott með, sömuleiðis flesk og
pylsur.
Þá er rétturinn góður með kaldri síld og
síldarréttum.
Ostasamlokur
Fremur þunnt ósœtt
kex
FYLLING: 4 eggja-
rauður, 3 dl rjómi,
100 g ostur Gouda
45%, 3 msk. Am-
Hrærið rjómann saman við eggjarauðurn-
ar í potti. Hitið þar til kremið þykknar og
hrærið stöðugt í á meðan. Kremið má ekki
sjóða. Bætið rifnum ostinum í og hrærið
þar til hann bráðnar. Kælið. Leggið kök-
urnar saman tvær og tvær með ostakremi
bassador, 2—300 g
rœkjur eða humar
SKRAUT: kavíar, rækjur,
sítrónusneiðar
308
F R E Y R