Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 5

Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 5
FREYR BÚNAÐARBLAÐ 70 árgangur Nr. 19—20, október 1974 Útgáfustiórn: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON Ritstjórn: GÍSLI K R I STJÁNSSO N (ábyrgðarmaðurj ÓLI VALUR HANSSON Heimiiisfang: BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK ÁskrittarverS kr. 500 árgangurinn Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bœndahöllinni, Reykjavík — Sími 19200 Ríkisprentsmiðjan Gutenberg Reykjavík — Sími 38740 E F N I : Hóp-slysatryggingar Mjaltaeiginleikar Spenastig — spenaskemmdir Búfé og fóður Frá mínum sjónarhóli skoðað Misþyrming dýra Fréttir Útlönd Jógúrt Molar HÓP- SLYSATRYGGING Við skulum ætla, að allir lesendur Freys hafi veitt því eftirtekt, að á síðastliðnu vori birtust auglýsingar í blað- inu frá Samvinnutryggingum og Sjóvátryggingafélagi íslands, þar sem boðað var til trygginga gegn slysum við landbúnað. Það mun hafa verið á aðalfundi Stéttarsambands bænda 1970 að fyrstu samþykktir voru gerðar um það efni hve bændum væri nauðsynlegt að tryggja sig gegn áföllum, sem einatt henda við bústörf, — slysum, sem á öld vélvœðingarinnar eru fleiri og stórfelldari en áður gerðist. Auðvitað komu fyrir slys af ýmsu tagi við sveitastörfin fyrr, en þótt maður skæri sig á Ijá eða álíka fyrirbæri af einhverju tagi kæmu fyrir voru það einatt lítilrœði samanborið við stórslys á dráttarvélum og öðrum vélum, sem of oft hafa dauðann í kjölfari. Um þriggja ára skeið var málið til meðferðar hjá Stéttarsambandi bænda og Búnaðarfélagi íslands, og á Búnaðarþingi voru ályktanir einnig gerðar, og úti um sveitir landsins voru ýmsir bændur því fylgjandi og nokkrir akveðnir formælendur þess máls, að sjálfsagt væri að bændur tryggðu sig gegn þeirri vá, er að getur steðjað er veruleg eða stór slys ber að höndum. í kring um síðustu áramót var málið komið á þann rekspöl, að félagsstofnanir bændanna höfðu kannað for- sendur rækilega og hlutuðust þá til um að trygginga- félög gerðu tilboð um hóptryggingar, sem miðaðar skyldu við bætur þegar slys bera að höndum á vettvangi bústarfa. Var þá gert ráð fyrir að hver hreppur yrði sérstakt tryggingasvœði. Að sjálfsögðu er það á valdi bænda á hverju svæði hvort þeir sameinast um hóp- slysatryggingar, en svo sem gerist á flestum sviðum eru iðgjöld allmiklu lægri en annars þegar um ræðir trygg- ingar fjöldans. Þegar þetta er ritað er ekki með vissu vitað hve margir hreppar hafa hlutast til um tryggingar af þessu tagi en hinsvegar munu mörg hreppsfélög standa í samningum við tryggingafélögin. Ef einhverjir eru enn í vafa um réttmæti þess að efna til hóp-slysa- trygginga fyrir bœndur sveitarfélagsins, er eðlilegt og sjálfsagt að þeir skoði hug sinn og taki síðan ákvarðanir, minnugir þess, að kröfur um skaðabótaskyldu, er getur numið milljónum króna hjá einstaklingi, ef ólánið er með, er efnahagslegt hrun hvers bónda, en árlegt trygg- ingagjald lítil fjárhœð. G. F R E Y R 335

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.