Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 8

Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 8
Iengd spenahylkisins. b) og ekki styttri en 'A, ef vélarnar eiga að mjólka vel. eða 1/4 lengri en spenahylkið, þá verða mjaltir ekki góðar. Með kynbótum á að stefna að réttri spenalengd og spenaþver- máli, jafnframt lögun og gerð þeirra, svo mjaltir og júgurheilbrigði verði betra. Að þessu þarf að vinna með því að taka upp mælingar á spenum og spenasetningu og hæð júgurs frá básgólfi á kvígum í af- kvæmarannsókn. B. Mjöltunin: Ólíkar aðferðir eru notaðar til að ákveða mjöltun kýrinnar. Meðalmjólkurstreymi á mínútu, mest mínútumjólk, hlutfallstala málnytar á 2. eða 3. mínútu, er að jafnaði lagt til grundvallar mati á þessum eigin- leika. Við framkvæmd mælinganna á af- kvæmarannsóknarstöðvunum hér, er notuð vog eða milko-scope og skeiðklukka. Mjaltatíminn er mældur frá því spenahylk- in hafa verið sett á júgrið og uns þau hafa verið tekin af og mjaltatíminn mældur í mínútum og tíundahlutum úr mínútu. Mjólkurmagnið er lesið af mælitækinu á 2. mínútu frá byrjun mjöltunnar og í lok mjaltatímans. Þessi aðferð er sú sama og notuð er á Norðurlöndum, en ástæðan fyrir því, að hlutfallstala málnytar er valin til að meta mjaltaeiginleikan er sú, að á fyrstu 2 mínútum mjöltunar verður kýrin fyrir minnstum truflunum vegna ytri aðstæðna eins og t. d. verkkunnáttu mjaltarans. Mæl- ingarnar eru að jafnaði gerðar 30—100 dögum eftir burð. a. Ýms atriði er haja áhrif á mjöltun kýrinnar. Þrýstingur innra í júgri og vídd spenaops hafa fyrst og fremst áhrif á mjólkurstreymi við mjöltun. Auk þess ráða aðrir eiginleik- ar, svo sem oxytocin-myndun í heiladingli og ýmiss ólík ytri áhrif. Hér á eftir verða talin nokkur atriði, sem geta ráðið miklu við mælingu í mjaltaeiginleik kýr og ber að hafa í huga, þegar reiknað er út arfgengi mjöltunar. 1. Aldur: Mjöltun batnar með aldri en það vegur þó ekki að fullu upp á móti aukinni nyt. 2. Nythæð: Nythæð hefur áhrif á mjólkurstreymi og því meira sem mjólkurmagn eykur á Spenahylkin eru sett á spenana og vélin er látin mjólka í um 2 mínútur. 338 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.