Freyr - 15.10.1974, Blaðsíða 30
M°L AR
Gróðurverndarnefnd
Samkvæmt ályktun Alþingis, er samþykkt var á
þjóðhátíðarfundi þess á Þingvöllum 28. júlí sl., um
landgræðslu og gróðurvernd til minningar um 1100
ára búsetu þjóðarinnar í landinu, var landbúnað-
arráðherra fabð að setja á fót samstarfsnefnd til
að efla samvinnu þeirra stofnana, sem hafa með
höndum framkvæmd áætlunarinnar.
í samræmi við þingsályktunina hefur landbún-
aðarráðherra skipað eftirtalda menn í nefnd þessa:
Frá Landgræðslu ríkisins Svein Runólfsson land-
græðslustjóra, frá Skógrækt ríkisins Hákon Bjarna-
son skógræktarstjóra, frá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins dr. Björn Sigurbjörnsson forstjóra, og
frá Búnaðarfélagi íslands dr. Halldór Pálsson bún-
aðarmálastjóra. Formaður nefndarinnar var skip-
aður Jónas Jónsson.
Áburði og fræi dreift úr vélum
Flugfélag íslands gaf landgræðsluflugvélina Pál
Sveinsson og hafa starfsmenn F. í. síðan flogið
henni í sjálfboðavinnu með fræ og áburð.
í sumar hefur flugvél þessi farið 400 ferðir með
fræ og áburð og dreift þessu úr lofti yfir gróður-
laus lönd til landgræðslu. Sáð var í 4000 hektara
lands í þessum ferðum og 1600 tonnum fræs og
áburðar dreift. Auk þess dreifði einhreyfilsflugvél
Landgræðslunnar 800 tonnum fræs og áburðar.
Landgræðsluflugvélln Páll Sveinsson hefur nú
lokið störfum í sumar. Suðvesturlandið hefur notið
hennar að meirihluta í sumar, en einnig Þingeyj-
arsýslur.
Blóðkreppusótt
hefur herjað í kúastofninum við Eyjafjörð og valdið
bændum miklum búsifjum. Kvilli þessi er mjög
smitandi, en hvar er uppruni hans er ekki létt að
vita. Hinsvegar er það talið erlendis, að kvilli þessi
berist milli búa með fóðri og einkum með um-
búðum.
Skitupest veldur tilfinnanlegu afurðatjóni og svo
illvíg hefur hún verið við Eyjafjörð að þessu sinni,
að allmargar kýr hafa drepist af hennar völdum.
Umsóknir um lán
vegna framkvæmda á árinu 1975 skulu hafa borist
bankanum fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsins
á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er til-
greind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar,
skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og
veðbókarvottorð.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næst-
komandi, hafi Stofnlándadeildinni eigi borist skrif-
leg beiðni um endurnýjun.
Reykjavík, 20. ágúst 1974
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Leiðrétting
Myndir þær, sem birtust með grein Árna Jóns-
sonar, landnámsstjóra í síðasta hefti Freys og léðar
voru frá Byggingastofnun landbúnaðarins, voru því
miður ekki allar rétt staðfærðar. Sú sem var stað-
færð sem Hamar í Nauteyrarhreppi er af Skálavík
í Reykjafjarðarhreppi og myndin, talin af Lauga-
landi, er frá Laugarási í Nauteyrarhreppi. Vér
biðjumst velvirðingar á mistökunum og óskum
þess, að menn leiðrétti þetta hver í sínu blaði.
Forsíðumynd
þessa heftir FREYs sýnir mikinn gæðing sem Eitill
heitir, en eigandi hans er Bjarni E. Sigurðsson
kennari í Hveragerði, sem einnig er knapi á mynd-
inni.
Eitill er frá Mýrum í Hornafirði, móðir hans,
S'jöfn var Nökkvadóttir frá Hólmi.
Verður því varla sagt að Eitli sé í ætt skotið.
Myndin er fengin frá eiganda gripsins til birtingar
hér.
Um hestamennsku og hestamót á liðnu sumri er
annars sitt af hverju að frétta, en þar sem tímaritið
Hesturinn okkar hefur hestamennsku almennt að
verkefni, hefur Freyr í litlum mæli aðeins fjallað
um þau efni er varða hrossin okkar. Hitt er þá líka
staðreynd, að hestamennskan öll miðast nú við
sport fyrst og fremst og svo sölu til útlanda, en
útflutningur er talsvert minni í ár en að undan-
förnu, til þessa að minnsta kosti.
Á Vindheimamelum í Skagafirði var hin stóra
sýning og tilheyrandi hátíð hestamanna háð í sumar
við mikinn orðstý. Markaður fyrir góða gripi var
þar einnig, háar fjárhæðir boðnar og vaxandi
kostir góðra gripa á almæli.
Það er vel þegar allur árangur miðar fram á
leið til gagns og vegsauka.
360
F R E Y R