Freyr - 15.10.1974, Page 23
PEAN GERBOUX:
Hversu lengi
œtla menn að misþyrma dýrum?
Frá COUNSIL OF EUROPE hefur Freyr meðtekiS eftirfarandi til birtingar:
Dýravernd, í orðsins fyllstu merkingu, er enn aðeins vonarneisti allof víða í heiminum.
Það skortir ekki eingöngu á umhyggju af hálfu einstaklinga, en ríkisvaldið vantar
venjulega framsýni og festu til að siða borgarana og knýja þá til að fara að lögum
þegar á því þarf að kalda.
Evrópuráðið hefur sívaxandi áhuga á að auka skilning á brýnni þörf fyrir mannúð
gagnvart málleysingjunum. En það verk er jafn erfitt og starfsviðið er víðtækt og
flókið. Þess vegna getum við ekki rætt það hér nema mjög Iauslega og í stuttu máli.
En það finnst mér ætti að nægja til að ráðast á þríþætt verkefni, sem fyrir okkur er lagt.
Búfjáriðnaður og lífeðlisþarfir dýra.
Athygli landbúnaðarnefndar Evrópuráðs-
ins hefur í síauknu mæli beinst að vanda-
málum, sem skapast hafa í sambandi við
eldi búfjár í iðnaðartilgangi án landrýmis,
sem mjög hefur aukist í flestum Evrópu-
löndum. Eru þá notaðar ýmis konar að-
ferðir og allar vafasamar.
Frá fjárhagslegu sjónarmiði hefur árang-
urinn ekki orðið eins og vænst var. Dýrin,
sem beitt hafa verið þessum aðferðum og
kölluð hafa verið sérhæfð fyrir framleiðni-
aukningu, sleppa raunar miðstigunum og
með því er gengið fram af þeim, einkennast
þau af úrkynjun, sem kemur fram í aukinni
grimmd og skapbrestum. Þessi hlið málsins
vakti þegar athygli áhugamanna um dýra-
vernd.
Varphænum, sem hrúgað er saman til að
koma sem flestum fyrir á sérhvern fer-
metra, og sem oft er hreinlega staflað, er
haldið án afláts í taugaspennu þannig, að
þær eru fljótlega dæmdar til slátrunar.
Reynslan hefur sýnt að merki úrkynjunar
(vanskapnaður fóta, fjaðralos o. fl.) koma
í ljós að u. þ. b. 9 mánuðum liðnum. Þegar
hænurnar eru þvingaðar til að verpa með
gervifæðu og efnablöndum, verða þær út-
taugaðar og er engra annarra kosta völ en
að farga þeim eins árs gömlum.
Þegar svín eru fituð í þröngum og
gluggalausum gripahúsum með rimlagólf-
um, er það einungis réttlætanlegt ef næg
loftræsting er undir gólfi og nóg rými fyrir
svínin þannig, að þau þurfi ekki að liggja
í eigin úrgangi. Of stutt tjóður, fastir tjóð-
urhringir, skortur á hreinu lofti og rými
fyrir gyltur tálmar framleiðslu og tap get-
ur numið allt að 15%.
Þegar um er að ræða kálfa og nautgripi,
sem fitaðir eru með gerviaðferðum í dimm-
um gripahúsum þar sem þeir geta ekki
teygt úr sér nema með erfiðismunum, verð-
ur árangurinn blóðleysi og ljósleitt kjöt,
sem sumir viðskiptamenn kunna e. t. v. að
meta, en hefur mun minna næringargildi.
Einnig má segja að því fleiri skepnur,
sem aldar eru við þvingunarskilyrði, því
meir dregur úr ágóða vegna sjúkdóma og
F R E Y R
353