Freyr

Årgang

Freyr - 15.10.1974, Side 25

Freyr - 15.10.1974, Side 25
ar um einhófunga, nautgripi, sauðkindur, geitur og svín og í honum geta aðildar- ríkin um ráðstafanir, sem gera beri með tilliti til þeirrar grundvallarreglu, að á- kvæði varðandi millilandaflutning dýra hljóti að vera í samræmi við velferð þeirra. Áður en dýr eru tekin til fiutnings verða þau að fá vottorð dýralæknis í útflutnings- landinu þess efnis, að þau séu hæf til flutn- ings og ber honum einnig að staðfesta teg- und farartækis, sem nota á. Dýr, sem fætt hafa afkvæmi sl. tvo sólarhringa, eða eru líkleg til að gera það meðan á ferðinni stendur, teljast ekki hæf til flutnings. Einnig getur dýralæknirinn lagt svo fyrir, að dýrin séu hvíld visst tímabil og veitt nauðsynleg umönnun. Öllum búnaði í sambandi við flutning (farartækjum, umbúðum, kössum, búrum, loftræstingu, lýsingu o. fl.) ber að koma fyrir á þann hátt, að tryggt sé að dýrin njóti þæginda og öryggis. Hafa ber brýr, bretti og landganga þannig, að auðvelt sé að annast fermingu og affermingu og dýr mega aldrei verða fyrir miklum hristingi eða skrölti. Meðan á ferð stendur ber að gefa og brynna dýrum eigi sjaldnar en einu sinni á sólarhring, nema komist sé á áfangastað á skemmri tíma. Ströng ákvæði eru um flutninga almennt, þ. á m. um að dýr verða að geta hreyft sig ef þau eru ekki flutt í sér básum. Einnig eru sérá- kvæði um aðskilnað kynjanna, aldurs- flokka og dýrategunda, sem ekki kemur saman vegna eðlishvata. Hreinlæti í flutn- ingstækjunum verður að vera í samræmi við nákvæm fyrirmæli samþykktarinnar og eru lagðar skyldur á herðar flytjanda að því er varðar m. a. mjaltir, veikindi, meiðsl eða slysadauða dýra í millilanda- flutningi. Evrópuráðið lagði til að öll aðildarríki þess tækju tillit til ákvæða samþykktar- innar í hvers kyns milliríkjasamningum sínum án tillits til þess hvort þau væru aðilar að henni. Dagana 10.—14. september var haldin í Strassburg alþjóðaráðstefna Hrossaútflutningur með skipum er fortíðaraðferð, nú hafa flugvélarnar tekið við hlutverkinu og er það vel. um dýravernd, þar sem fjallað var um stöðu dýranna í breytilegum heimi. Al- þjóða dýraverndunarsamtökin, sem eru ráðgefandi aðili hjá Evrópuráðinu, skipu- lögðu ráðstefnuna og ofarlega á dagskrá hennar var millilandaflutningur dýra. Vítið í sláturhúsunum. Ef við berum saman þörf mannskepnunnar fyrir neyslukjöt og aðferðirnar til að afla F R E Y R 355

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.