Freyr - 01.01.1975, Blaðsíða 11
Gísli Kristjánsson kveður les-
endur Freys og þakkar góð
samskipti í 29 ár. Hann þakk-
ar öllum þeim sem skrifað
hafa í blaðið og lagt því til
efni, að jafnaði 60—70
manns á ári.
Lesendur FREYS vildu örugg-
lega þakka Gísla fyrir sig,
þakka hans óþreytandi elju-
semi og sívakandi áhuga á
velfarnaði landbúnaðarins.
Gísli starfar áfram fyrir Bún-
aðarfélag íslands. Hann mun
eiga efni í nœstu blöðum
FREYS.
Félagsskapur undirritaðs og Freys hefur nú staðið svo
lengi, að mál er að linni. Við fœddumst báðir árið 1904,
árið sem þjóðin fékk heimastjórn. Þá voru hér aðeins örfáar
stéttir þjóðfélagsþegna. Nú eru þœr margar. Bœndastéttin
hefur dregist saman að mannfjölda en eflst stórlega í athöfn-
um og afrekum, í menntun og menningu, þótt ýmsir sakni
hins horfna.
Rás tímanna verður ekki stöðvuð. Það er lögmál lífsins,
að sjötugur maður sé kominn á hnignunarskeið á vettvangi
starfsins.
Sjötugt tímarit getur hinsvegar haldið áfram að vaxa og
þroskast og ég vona og óska og; veit að svo muni reynast
í forsjá þess, er við tekur og svo koll af kolli.
Hvort penni minn þorrnar til fulls er hér sleppir skal ósagt
látið, en kveðjur til bœndanna og sveitanna skulu hér tjáðar
að lokum með virðingu og þökkum.
F R E Y R
3