Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1975, Blaðsíða 32

Freyr - 01.01.1975, Blaðsíða 32
Ekki er allt prótein jafngilt Það er heill hópur af amínósýrum, er mynda hin lífsnauðsynlegu sambönd, sem hér á landi hafa ranglega verið nefnd „eggjahvíta“ en á fræðimannamáli heita prótein og réttilega ber að nefna það svo einnig hér, því að þetta nafn fellur alveg að íslenskri beygingarfræði. í próteini eru meðal annarra mjög þýð- ingarmiklar amínósýrur, sem heita methi- onin og lysin, en því miður eru þær í litlu magni í sumum próteinsamböndum, eink- um þeim, sem fást úr jurtaríkinu. Einmitt þess vegna hefur á síðari árum verið farið inn á þá braut erlendis að framleiða þessar amínósýrur sem sérefni, einmitt til þess að blanda þeim í fóður og gera það þannig fullkomnara en annars, Innan þeirra landa, sem teljast til OECD, hefur eftirspurn eftir þessum efnum vaxið verulega og stöðugt meira á síðustu árum, og einkum hefur eftirspurn eftir lysini verið mjög mikil í þeim löndum, sem aðallega hafa prótein úr jurtaríkinu en þurfa hins vegar að fóðra dýr, sem hafa aðeins einn maga (eru ekki jórturdýr). Framleiðsla á lysini er kostn- aðarsamari en þegar um ræðir methionin, og eftirspurn eftir því hefur verið langtum meiri en hægt hefur verið að fullnægja, svo að þar hefur til orðið svartamarkaðs- verð. Lysin er framleitt í verksmiðjum í Japan, USA og Frakklandi. Yegna tak- markaðs magns þessarar vöru á markaði er verðið á lysinríkum fóðurvörum mjög hátt, svo sem raun er á um fiskimjöl og síldarmjöl. Við íslendingar eru í þessu tilliti vel settir að hafa þær tegundir próteinvöru, sem eru gildisauðugar, en hitt er hörmulegt og óverjandi, sem gert er, að flytja lífefna- ríka vöru úr landi og flytja aftur til lands- ins í hennar stað aðra af líku tagi en miklu rýrari að lífeðlisgildi. Það er annars okkur líkt að framkvæma hlutina í hugsunar- leysi. Um methionin er að segja, að það er ekki mjög dýr vara, sem nú er framleidd í mjög ört vaxandi mæli í verksmiðjum erlendis. Um þýðingu þessarar amínósýru á vissu sviði er sérlega getið í Frey nr. 6 síðasta ár. G. 24 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.