Freyr - 01.01.1975, Side 15
Gœta þarf þess að ekki dragi
úr vexti ásetnings gimranna.
Þœr þurfa því gott haglendi
og síðan jafnt og gott fóður.
á gróðurlítinn úthaga. Um haustið kom 1
ljós, að eldisærnar svöruðu engu fyrir vor-
eldið heldur þvert á móti, en meiri frjó-
semi var í þeim flokki fyrir fengieldi. Sam-
anburðarærnar gáfu um haustið vænni
dilka bæði einlembinga og tvílembinga og
voru sjálfar í betri holdum. Þetta sýndi
berlega, að svo snögg fóðurbreyting má
ekki eiga sér stað. Hins vegar er ekki vitað,
hverju eldisærnar hefðu skilað, ef haldið
hefði verið út með fóðrun fram í nægan
gróður.
Slík mistök munu á ýmsum sviðum enn
eiga sér stað. Fóðri er eytt á rangan hátt
eða á röngu skeiði og ekki fylgt eftir til
afurða. Útkoman verður sú, að ekki fæst
fram það, sem leitað var eftir með bættri
fóðrun, og fjármunum kastað á glæ vegna
mistaka.
Nútíma fjárbú krefst mestu mögulegra
afurða eftir fóðraða kind. Þar má ekkert til
spara til þess að því marki sé náð. Reyndir
fjárbændur telja, að þar til komi:
í fyrsta lagi gott uppeldi,
í öðru lagi jöfn fóðrun árið um kring,
og að sj álfsögðu góð fjárhús.
Ásetningslömb mega aldrei tapa vaxtar-
hraða að hausti og vetri. Því verður að taka
þau strax í fyrstu leitum á gott haglendi
og á hús, þegar krefur, án þess að vaxtar-
hraða þeirra sé í nokkru hnekkt. Bólusetja
skal snemma við pest og garnaveiki og
miða að bráðum kynþroska, því sjálfsagt
er að hafa lembda gemlinga. Trúlega er
nauðsyn að gefa ásetningslömbum 30—40
g af fiskimjöli á dag og sjá um, að stein-
efnaþörf sé fullnægt.
Ærnar mega alls ekki léttast framan af
vetri. Þær eiga að vera á jöfnu fóðri árið
um kring. Þá fæst öruggust frjósemi, best
ending og minnst fóðureyðsla. Þess vegna
verður að taka þær til aðhlynningar
snemma, gefa fiskimjöl með beit síðla
hausts og framan af vetri, áður en á algjöra
innistöðu kemur, svo ekki tapist hold af
eggjahvítuskorti einum saman. Beitar-
hnjask að vetri og vori fyrir burð er ekki
nútíma búskaparlag.
Að athuguðu máli virðist frjáls aðgangur
að steinefnablöndu, matarsalti og fóður-
kalki, t.d. muldri skel, vera til farsældar. Á-
stæðulaust mun vera að riíja hér upp fóð-
urþörf ánna, en í grófum dráttum þarf með-
alær til viðhalds 1 kg af meðaltöðu á inni-
stöðu á dag, tvöfalt meira síðustu 6 vikur
meðgöngutímans og tvílemban 3-falt það
eftir burð eða 3 kg af töðu, en það fóður-
magn, 1,7 F.E., verður að jafnaði að gefa
að einhverju leyti í kjarnfóðurblöndu.
Reynsla hefur sýnt, þar sem breytt hefur
7
fbeyr