Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1975, Side 18

Freyr - 01.01.1975, Side 18
Hafið samband við dýralœkni og við Keldur ef óþekktir lambakvillar koma upp. Athugið aukna fóðurþörf fyrir burð. Fylgist vel með fóðurþörf eftir burð. leitað væri orsaka. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum er öll af vilja gerð að hjálpa bændum í baráttu þeirra við búfjársjúkdóma. En þá þurfa bændur í mörgum tilvikum að senda stöðinni sýni til rannsóknar, svo að staðfesta megi sjúk- dóma og orsakir. Farist lömb úr vafasöm- um eða óþekktum sjúkdómi, er sjálfsagt að senda hræið til rannsóknar að Keldum og ástæðulaust að bíða eftir, að fleiri lömb drepist. En gæta verður að frysta skrokk- inn strax og senda með greiðri ferð að Keldum. Síðustu vikur fyrir burð þarf ærin um 1 F.E. á dag í frjósömum hjörðum. Heyin frá sumrinu ’73 voru yfirleitt orkumikil og próteinauðug. Að meðaltali yfir landið í heild þurfti ekki nema 1,8 kg í F.E. og af mörgum sýnum þurfti ekki nema 1,4 — 1,5 kg í F.E. Hins vegar hefði verið full þörf á að gefa steinefnablöndu með heyjunum, sérstaklega skorti víða kalsíum. Eftir burð- inn þarf einlemban 1,3 F.E á dag eða 2,3 kg af meðaltöðu og tvílemban 1,7 F.E. eða 3 kg af töðu á dag. Tvílemban mun að sjálfsögðu þurfa kjarnfóðurgjöf með heyjunum, þar sem fáar munu éta nóg af töðu einni saman. Hversu mikið kjarnfóður þarf að gefa tvílembum, fer eftir ýmsu, t. d. gæðum heyja, aldri og holdafari ánna og átlyst þeirra. En láta mun nærri í meðal- hjörð að gefa þurfi kindinni 500—800 g á dag. Hins vegar mun rétt að vera ekki kominn í hámarks-kjarnfóður fyrr en á 4. ■—•5. degi eftir burð. Reynsla hefur kennt hverjum einstökum ýmsa háttu varðandi sambýli og fjölbýli ánna og umhirðu lambfjár í húsum á sauð- burði. En mikið atriði er, að tvílembingar venjist mæðrum, áður en flutt er í fjölbýli, og að öruggt lambavar sé í krónum. Ég hef séð með ólíkindum margar tvílembur laus- gangandi án vandræða í sömu kró. Hér hefur verið drepið á fáein atriði, sem mættu vera til að auka arðsemi fjár- búanna. En góður arður næst ekki með skammtíma, einstakri umsjón heldur þarf þar til markvisst starf, þar sem enginn hlekkur má vera veikur. Sumir bændur hafa þegar náð ágætri arðsemi af fjárbúum sínum, en aðrir standa enn allt of langt að baki. Hjá þeim má ekki vera bið á bættum búskaparháttum. 10 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.