Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1975, Síða 23

Freyr - 01.01.1975, Síða 23
GUÐMUNDUR JÓNSSON: Upphaf landbúnaðarrannsókna á íslandi Guðmundur Jónsson, fyrrverandi skólastjóri Hvanneyri. Á þessu ári (1974) má segja, að liðnir séu 3 aldarfjórðungar síðan, fyrsti hornsteinn- inn var lagður að tilraunastarfi og land- búnaðarrannsóknum hér á landi. Þar á ég við, er Alþingi veitti Búnaðarfélagi íslands árið 1899 kr. 3.500,00 á næsta fjárhagstíma- bili (2 ár) „til stofnunar gróðrarstöðvar í Reykjavík“. En Búnaðarfélag íslands var einmitt stofnað það ár (1899) upp úr Bún- aðarfélagi suðuramtsins. Að vísu má segja, að einstakir framfara- menn, svo og Búnaðarfélag suðuramtsins, hafi unnið að þessum málum beint og ó- beint áður um langt árabil, en skipulagt tilraunastarf hófst fyrst um og upp úr síð- ustu aldamótum. Af forgöngumönnum á þessu sviði skulu hér nefnd fáein dæmi. 1. NOKKRIR FYRIRRENNARAR. Vísi-Gísli sýslumaður á Hlíðarenda í Fljótshlíð nam búfræði og náttúrufræði meðal annars í Hollandi, eftir að hafa lokið lögfræðinámi sínu í Kaupmannahöfn. Um miðja 17. öld ræktaði hann um 20 tegundir af garðjurtum, svo og korn og trjátegundir. Árangurinn varð að vísu ekki mikill af þessari ræktun og næstum engir notfærðu sér reynslu hans enda ekki bjart yfir þjóð- lífi okkar á þeim tíma. Um það bil einni öld síðar gerðist annar embættismaður mikill frömuður í ræktun- armálum, en það var Björn Halldórsson í Sauðlauksdal. í um 700 fermetra garði ræktaði hann margar tegundir garðjurta, meðal annars kartöflur. Fyrstu kartöflu- uppskeru fékk hann 1760, aðeins um 10 ár- um eftir að farið var að rækta þær í Dan- mörku og Noregi. Björn gerði tilraun með að veita vatni á tún og alkunnur er garð- urinn Ranglátur, sem hann fékk sveitunga sína til þess að reisa með sér í því skyni að hefta sandfok, fyrstu tilraun í því efni hér á landi. Þriðja embættismanninn mætti og nefna í þessu sambandi, en það var Magnús Ket- ilsson sýslumaður í Búðardal. Hann bjó í Búðardal í Skarðsströnd um 40 ára skeið til dauðadags 1803. Hann gerði margs konar athuganir með hirðingu sauðfjár og erlent sáðgresi og skrifaði um það bækur. Var hann til fyrirmyndar bændum á margan hátt. Um miðja 19. öld verður vart talsverðra framfara og nýjunga á sviði landbúnaðar hér á landi. Vafalaust má rekja þær að miklu leyti til utanferða ungra manna, fyrst til Danmerkur á árunum 1815—1835 F R E Y R 15

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.