Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1975, Page 28

Freyr - 01.01.1975, Page 28
3. TILRAUNASTARFIÐ. a. Aburðartilraunir. Reyndar ýmsar tegundir af tilbúnum á- burði einar sér og í blöndu, fyrir grasteg- undir og garðjurtir. Borinn saman tilbúinn áburður og bú- fjáráburður með sama magni af jurtanær- andi efnum. Reyndur mismunandi áburðartími. Mismunandi magn af áburði fyrir gras, garðjurtir, korn og grænfóður. Kannað áburðargildi í mó, rotnuðum þara, hvalmjöli, síldarmjöli og fiskimjöli. b. Tegundir og afbrigði nyíjajurta. Reyndar tegundir og afbrigði af fóðurjurt- um: heilgrösum, belgjurtum, fóðurrófum og grænfóðri. Mörg árin voru í tilraunum 20—30 tegundir heilgrasa, um 10 tegundir af belgjurtum og 10 afbrigði fóðurrófna. Reynd voru afbrigði af kartöflum, oft fleiri tugir árlega í hverri gróðrarstöð. Reynd afbrigði af gulrófum, oft 10 árlega í hverri stöð. Af grænmeti voru reyndar yfir 50 teg- undir og nokkur afbrigði af sumum þeirra en af blómum yfir 100 tegundir. Af korntegundum voru reyndir hafrar, bygg og rúgur og nokkur afbrigði af þeim, 4—8 af hverri. c. Jarðvinnsla. Borin saman sáðslétta, strengplæging með og án jarðlosunar, gaddvöltun og óhreyft. Reynt að rista ofan af sléttu landi og ýmist leggja þökurnar yfir óhreyft undir- lag eða losa jarðveginn. Gróið land rispað og sáð grasfræi þar í. d. Ýmsar tilraunir í ja.rðrækt og garðrækt. Reyndar mismunandi grasfræblöndur. Grasfræi sáð haust eða vor. Kartöflur settar misdjúpt. Spírað eða óspírað kartöfluútsæði. Kartöflur til útsæðis klofnar eða heilar. Mismunandi sáðtími kartaflna. Kartöflur settar misþétt. Reynd lyf gegn illgresi (arfa). Rannsakað geymslutap í kartöflum og rófum yfir veturinn. Áhrif beitar á tún haust eða vor eða hvort tveggja. Reynt að súrsa rófnablöð í votheysgryfj- um. e. Reynd verkfæri. Eiginlegar prófanir eða tilraunir með verk- færi voru litlar gerðar á umræddu tímabili. Hins vegar keyptu gróðrarstöðvarnar oft nokkru meira af áhöldum en þær sjálfar höfðu not fyrir, t. d. fleiri gerðir af plógum, herfum, hestarekum, handverkfærum o. fl. tækjum til þess meðfram að reyna þau og geta leiðbeint bændum um, hvaða gerðir mundu henta þeim best. Á búsáhaldasýningunni í Reykjavík 1921 voru reyndar 3 gerðir af plógum, 3 gerðir af herfum, 6 gerðir af sláttuvélum og nokkrar fleiri vélar og verkfæri. f. Tilraunir með búfé. Engar sérstakar stöðvar voru til hér á landi á því tímabili, sem hér er fjallað um, fyrir búfjártilraunir. Hins vegar gerðu búnaðar- skólarnir athuganir, og tilraunir í þessu efni og fóðrunartilraunir voru gerðar á nokkrum stærri búum hjá bændum. Skal nú drepið á nokkuð af því helsta, sem gert var í þessu efni. IngimuncLur Guðmundsson búfræðikand- ídat byrjaði fyrstu flokkatilraun hér á landi á Hvanneyri 1912. í þessari tilraun var borið saman þurrhey, vothey og kjarn- fóður. Páll Zóphóníasson hélt tilrauninni áfram 1914 eftir lát Ingimundar og gerði hana upp. Tilraunin var með mjólkurkýr. Á Síðumúla í Borgarfirði var vetuma 1914—1915 og 1915—1916 gerð fóðurtilraun á sauðfé, þar sem borið var saman hey, lýsi, síldarmjöl og maís. Tilraun með hámarksgjöf á votheyi fyrir kýr var gerð í Einarsnesi í Mýrasýslu vet- urinn 1917—1918. 20 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.