Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1975, Síða 29

Freyr - 01.01.1975, Síða 29
Á sama stað var haustið 1918 gerð tilraun með síldargjöf handa mjólkurkúm með haustbeit. Haustið 1921 var undir stjórn Þóris Guð- mundssonar kennara á Hvanneyri byrjað á fóðrunartilraunum með sauðfé á 5 stöðum: Bændaskólunum á Hvanneyri og á Hólum, Leifsstöðum í Eyjafirði, Ketilsstöðum í S.- Múlasýslu og Hala í Rangárvallasýslu. Til- gangur tilraunanna var að „finna hlutfalls- legt fóðurgildi þerra fóðurtegunda, sem rannsakaðar hafa verið, samanborið við rúgmjöl“. Veturinn 1921—1922 gerði Búnaðarfélag íslands smá tilraun með að gefa lýsi í und- anrennu og spara þar með nýmjólk í fóðri kálfa. Sams konar tilraun var gerð á Hvanneyri fáum árum síðar. g. Rannsóknastofa. Efnarannsóknastofa íslands var sett á stofn í Reykjavík 1906, og var forstöðumaður hennar Ásgeir Torfason. Hann efnagreindi fóður, áburð, mjólk og hvað annað, sem um var beðið. Búnaðarfélag íslands styrkti bændur fjárhagslega til þess að notfæra sér þessar rannsóknir og í mörgum tilfell- um studdu þær tilraunastarfið. Ásgeir Torfason var fyrsti efnafræðingur lands- ins. Hann var sonur Torfa í Olafsdal. h. Sandgræðsla. Það verður tæpast sagt, að eiginlegar til- raunir með sandgræðslu hafi verið gerðar hér á landi. Hins vegar hafa allt frá tíð Björns Halldórssonar og Sæmundar Eyj- ólfssonar og einkum frá upphafi starfs Gunnlaugs Kristmundssonar 1907 verið gerðar mikilvægar athuganir á vinnu- brögðum og aðferðum við sandgræðslu, einkum með friðun, skjólgörðum og sán- ingu. * ❖ ❖ Ég hef nú lýst í stórum dráttum fyrsta tímabili tilraunastarfs hér á landi, en það nær yfir um það bil fyrsta fjórðung þess- Tilraunareitir á Hvanneyri. — Þar hafa verið gerðar miklar jarðrœktartilraunir síðastliðin 20 ár. arar aldar. Tilraunirnar voru aðallega varð- andi jarðrcekt og garðrækt og gerðar á litl- um landssvæðum •— gróðrarstöðvum —, þar sem fjölbreytni í tilraunaverkefnum var takmörkuð og möguleikar á aukningu í starfi ekki miklir. Efnagreiningar hefjast snemma á þessu tímabili en voru fremur lítið notaðir í til- raunum fyrst í stað. Fóðrunartilraunir á búfé og upphaf verk- færaprófana má einnig rekja til þessa tímabils. Segja má, að árangur tilraunastarfsins hafi á þessu fyrsta tímabili verið furðu mikill, þrátt fyrir takmarkað fé, lítið og einhæft land og fáa tilraunalærða menn. Hinn góða árangur má vafalaust þakka frábærum dugnaði og árvekni tilrauna- mannanna og glöggskyggni um það, hvaða verkefni þurfti að taka til rannsókna. Þar ber hæst Einar Helgason í Reykjavík og á Akureyri þá Sigurð Sigurðsson og Jakob H. Líndal. F R E Y R 21

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.