Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1984, Page 9

Freyr - 01.12.1984, Page 9
Dr. Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri. (Ljósm. J.J.D. 1978.). aður óþekkt fyrirbrigði, S. í. S. og Sláturfélag Suðurlands reyktu þá t. d. ekki kjöt. Tókstu stúdentspróf á Akureyri? Nei, ég sat í 4. bekk M. A. máladeild, fannst latínuþvælan gagnslítil, langaði í stærðfræði- deild, sem ekki var til á Akureyri. Sagði ég mig því úr skólanum að loknu 4. bekkjar prófi og fór í stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík haustið 1931. Til þess þurfti ég að lesa 4. bekkjar- stærð- fræði og eðlisfræði, sem ég gerði á fáum dögum um haustið í stað þess að fara í göngur á Auðkúlu- heiði það haust. Þegar ég var í 6. bekk veturinn 1932—33 fékk ég boð frá Jóni Árnasyni, þá forstjóra Útflutn- ingsdeildar S. í. S., að finna sig, en hann kannaðist við mig, frá því að hann var barnakennari í Svína- vatnshreppi um það leyti, sem ég var að læra að lesa. Erindi Jóns við mig var að spyrja mig því, hvaða ævistarf ég hefði hugsað að leggja fyrir mig. Ég tjáði honum það, að ég ætlaði að verða bóndi. Þá sló hann upp á því við mig, hvort ég vildi ekki eyða nokkrum árum áður til þess að læra rækilega um sauðfjárrækt í Skotlandi og eyða svo kannski nokkrum árum í leiðbeiningarstarf í sauðfjárrækt með búskapnum. Taldi Jón það ekki vansalaust, að íslendingar sæktu búfræði- menntun sína aðallega til Dan- merkur, þar sem í mestu lagi væri haldinn einn fyrirlestur um sauðfjárrækt í landbúnaðarháskól- anum. Mér leist vel á þessa hugmynd. Ég hefði kynnst einum íslendingi, Lúðvík Jónssyni, sem hafði stund- að nám í landbúnaði í Edinborg. Dró hann ekki úr mér, bauðst til að útvega mér skólaskýrslu frá bændaskólanum í Edinborg. Eftir að hafa lesið þá skýrslu, sá ég að þetta væri aðeins tveggja' vetra skóli, og mundi mér takast að kljúfa kostnaðarhliðina, þó nám væri a. m. k. tvisvar sinnum dýr- ara í Bretlandi en í Danmörku um þær mundir. Skrifaði ég skólastjóranum við skóla þennan (Edinburgh East of Scotland College of Agriculture) og óskaði eftir inngöngu í skólann næsta haust, þ. e. 1933. í Edinborg Snemma í september tók ég far með Brúarfossi til Leith. Þar hitti ég skólastjórann við nefndan skóla og tjáði honum, að ég væri ekki að hugsa um að taka próf, heldur fyrst og fremst að læra allt, sem ég gæti, um sauðfjárrækt, en FREYR — 929

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.