Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1984, Qupperneq 23

Freyr - 01.12.1984, Qupperneq 23
Tafla 1 Rannsókn Staður Hundraðshluti með mótefni gegn M. faeni. Pepys og Jenkis (6) Pagen og fl. (10) Madsen og fl. (8) Katila og Mantyjarvi (7) Roberts og fl. (9) Gruchow og fl. England Puerto Rico Wyoming U. S. A. Finnland Wisconsin U. S. A. Marshfield, Wisconsin U. S. A. Einkennalausir (n=27) Einkennalausir (n=128) Sveitafólk (n=172) Dreifbýlisbúar, ekki á búum (n=80) Sveitafólk (n=325) Sveitafólk (n = 1.045) Sveitafólk (n=1.4441 Víkurumdæmi karlar n=284 Víkurumdæmi konur n=41 Strandir karlar n=98 Strandir konur n=28 19 1.5 3 3 3 6 6 78 29 25 14 Tafla aðlöguð eftir H. W. Gruchow o. fl. Precipitating Antibodies to Farmer's Lung Antigens in a Wisconsin Farming Population. AM. Rev. Respir. Dis. 1981; 124: 411. lendar rannsóknir á útbreiðslu mótefna gegn m. faeni meðal sveitafólks hafa sýnt, að frá 1,5 upp í 23% af einkennalausum og frá 43 upp í 85% manna með greinda heymæði hafa mótefni. Rannsóknir hérlendis Á árunum 1981—1982 voru gerð- ar mótefnamælingar á fólki í tveimur heilsugæsluumdæmum hér á landi, Víkurumdæmi í Suðurlandshéraði og Hólmavíkur- umdæmi í Vestfjarðahéraði. Árs- úrkoma er mun meiri í Víkurum- dæmi, og búskapahættir ólíkir að því leyti, að í Víkurumdæmi er blandaður búskapur og heyverkun í þurrhey, en á Ströndum aðallega sauðfjárbúskapur og hey yfirgnæf- andi verkað í vothey. Af 284 körlum í Víkurumdæmi reyndist 221 eða 78,0% vera með greinileg mótefni gegn m. faeni, en af 98 körlum á Ströndum 25 eða 25,5% (sjá töflu). Einkenni „venjulegrar" hey- mæði voru að sönnu algengari í Víkurumdæmi, en yfirgnæfandi meirihluti aðspurðra kannaðist við ekki við nein slík (þess má geta að aðallega var spurt um einkenni frá öndunarfærum og hita). Svo hátt hlutfall jákvæðra blóðprufa hlýtur að vekja grun um dulin einkenni. Greining síðofnæmis Greining síðofnæmis fyrir hey- myglu hefur fyrst og fremst byggst á athugunum lungnaeinkenna og hita eftir vinnu í heyryki. Rann- sóknir aðrar en öndunarpróf í veikindakasti og röntgenmyndir af lungum á sama skeiði sjúkdóms eða fljótlega eftir eru engar til, sem skera úr svo óyggjandi sé. Alþekkt er að einkennaleit eftirá með upprifjun er mjög óáreiðan- leg og hin almennu einkenni þess eðlis, að þau hafa ekki greinilegt samhengi við gegningar, nema þeir sem hlut eiga að máli geri sér grein fyrir því og athugi það sér- staklega. Því er ekki vafi á að síðofnæmi af heyryki er mjög van- greint. Heyverkun Eins og fyrr er sagt eiga einkenni gegningasíðofnæmis langoftast rætur að rekja til gróa hitasækinna örvera, þ. e. geislasveppa og baktería. Ekki þarf að lýsa því fyrir kunnugum, að hey, sem hirt er rakt hitnar, en það skapar ör- verunum vaxtarskilyrði. Hitinn í heyinu fer eftir rakastigi þess við hirðingu. Mesum vexti ná örverur þessar í heyi, sem við hirðingu hefur um 30% raka, en slíkt hey hitnar í 60—65°, sem er kjörhiti örveranna. Hey með 47% raka- stigi hitnar ekki nægilega fyrir ör- veruvöxt og þar af leiðir, að í slíku heyi er minna væki. Lokagrófjöldi og þar með vækisinnihald heys fer því eftir rakastigi heysins við hirð- ingu, nema komið sé í veg fyrir hitahækkun. Vækis verður fyrst vart 4—6 dögum eftir hirðingu og getur enst árum saman,,,). I heymygluryki eru alls konar lífræn og ólífræn efni. Auk þess að vera morandi af hitasæknum ör- verum og gróum þeirra er síðof- næmishey oft lútarkennt (pH um 7 á móti 5—6 í góðu heyi) og köfn- unarefnisríkt. Örverugróin eru yfirleitt ekki nema 0,5—1,3 mikr- on (l/1000mm) í þvermál og sog- ast því hæglega í lungnablöðrurnar við öndun. Gróþéttni lofts er rnjög mismunandi eftir heyi, loft- raka, erli umhverfis heystál, stærð hlöðu, loftræstingu o. fl.. Mælst hafa allt frá 16 milljónum upp í 1,6 milljarða gróa í rúmmillimetra (sic) lofts við raunverulegar að- stæður í fjóshlöðu. Gegningamað- ur sem gefur myglað hey, gæti sogað í lungnablöðrur sínar allt að 750 þúsund gró á mínútu (mestur hlutinn situr eftir í efri loftvegum) og vækissnerting hans því orðið veruleg á skömmum tíma. Niðurstöður hérlendra mótefna- mælinga benda til að hlöður og gripahús séu verulega menguð af FREYR — 943

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.