Freyr - 01.12.1984, Side 24
síðofnæmisvækjum, einkum sunn-
anlands. Þær vekja einnig upp
spurningar um hve mikilli vanlíð-
an og lungnaskemmdum þessi
mengun veldur þeim, sem í þess-
um húsum vinna mikinn hluta
dags í marga mánuði á ári hverju.
Ástæða er til að ráðleggja
bændum að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg
fyrir hita í hlöðum strax frá fyrstu
hirðingu. Sömuleiðis þarf að huga
vel að hreinsun gamalla rekja úr
hlöðum og húsum, vegna þess hve
gróin eru lífseig við rétt skilyrði.
Vönduð súgþurrkun, loftgóðar
hlöður, vélþurrkun grass (köggl-
ar, kökur) eða votheysverkun,
miðar allt að minnkun þessa væk-
is. Þá hefur nýverið verið bent á
að sú gamla aðferð að salta hey,
sem bundið er eða hirt illa þurrk-
að, minnkar hitamyndunl'0,.
Eins og fyrr sagði er engin með-
ferð til við síðofnæmi. Eina ráðið
sem dugir eru fyrirbyggjandi að-
gerðir, þ. e. góð heyverkun og
síðan að gæta þess að forðast alla
vækissnertingu eftir því sem unnt
er. Grímur sem duga til að sía 'gró
úr loftinu eru það þéttar að flest-
um vinnst erfiðlega með þær, ekki
síst þeim sem hafa lungnaþembu.
Núorðið fást léttir og handhægir
lofthjálmar, sem eru mjög öruggir
til varnar slíkri mengun og ættu
bændur að athuga notkun þeirra.
Þakkarorð
Þakkir eru færðar sýslunefnd
Vestur-Skaftafellssýslu, Búnaðar-
bankanum og Samvinnubankan-
um í Vík, Búnaðarfélagi íslands
og Stéttarsambandi bænda, en
þessir aðilar ásamt Fjárveitinga-
nefnd Alþingis og Eftirlaunasjóði
BHM hafa styrkt könnun þá sem
nú fer fram á ofnæmi í land-
búnaði.
Tilvitnanir:
(1) Pepys, J. Hypersensitivity diseases
of the lungs due to extrinsic agents.
The Practitioner 1978; 220: 541.
(2) Örn Elíasson. Heymæði á íslandi.
Læknablaðið 1982; 68: 163—169.
(3) Champbell, J.M. Acute symptoms
following work with hay. Brit.
Molar
Verð á matvælum mjög breytilegt
eftir löndum.
Nýlega birtist niðurstaða könn-
unar á verði matvæla í 8 Evrópu-
löndum í vikublaðinu Land sem
gefið er út af sænsku bændasam-
tökunum. Slík könnun hefur verið
gerð árlega nú sl. 8 ár.
Algengar matvörur hafa verið
keyptar í stórmörkuðum. Það hafa
verið 15 mismunandi vörutegund-
ir í þessum svokallaða matar-
pakka. Reiknað er síðan út hvað
marga tíma iðnverkamaður þarf til
að vinna fyrir matarpakkanum. Þá
er tekið mið af tímakaupi að við-
bættum launatengdum gjöldum.
Síðan þessi könnun hófst á veg-
um blaðsins hafa Hollendingar
ávallt sigrað, verið með fæsta tíma
til að afla tekna fyrir matarpakk-
anum. Þar þarf iðnverkamaðurinn
að vinna 3 klukkustundir og 47
mínútur fyrir pakkanum, en lengst
eru Finnar að afla tekna fyrir
matnum eða 7 klukkustundir og 7
mínútur. Lægsta verð á matar-
pakkanum er í Englandi, það svar-
aði til 1224 íkr.
Hæst var verð á mjólk í Dan-
mörku kr. 22,14 á lítra, en ódýrust
var hún í Hollandi kr. 13,95. Á
íslandi kostar einn lítri kr. 26,10.
Verð á svínakótelettum var
hæst í Noregi kr. 360, en lægst í
Frakklandi kr. 158. Verð á kart-
öflum var hæst í Noregi kr. 15,40 á
kg, en í Englandi voru þær ódýr-
astar, þar var verðið kr. 9,90.
Annars var verðið í flestum lönd-
unum um kr. 12 á kg.
Fiskur er dýr alls staðar. Sam-
anburður var gerður á verði
þorskflaka, þau voru dýrust í Nor-
egi kr. 244 á kg, en í Hollandi
kostuðu þau aðeins kr. 110.
Kjúklingar eru eins dýrir í Nor-
egi og hér á landi, þar er verðið
hæst í samanburðinum, þeir kost-
Med. Journal 1932; II: 1143—
1144.
(4) Fuller, C.J. Farmer's lung. A re-
view of Present Knowledge.
Thorax 1953; 8: 59—64.
(5) Christie, R.V. Farmer’s lung.
Cecil-Loeb, Textbook of Medicine,
Ed. Beeson and McDermott, Phi-
ladelphia and London 1963; 558—
559.
(6) Dickie, H.A., Rankin J. An acute
granulomatous interstitial
pneumonitis occurring in agricul-
tural workers. JAMA 1958; 167:
1069—1076.
(7) Pepys, J. et al, Precipitins against
extracts of hay and fungi in the
serum of patients with farmer's
lung. Acta Allergologica 1961; 41:
76—77.
(8) Pepys, J. and Jenkins, P.A. Pre-
cipitin (FLH) test in farmer's lung.
Thorax 1965; 20—21.
(9) Dyer, E.L. Farmer’s lung: Indust-
rial Hazard for Rurai Inhabitants.
Southern Medical Journal 1980;
73: 353.
(10) Briitenstein, W. Höets lagrings-
duglighet och kvalitet kan för-
battras. Lantmán och andelsfolk
1984; 65,5: 235.
uðu kr. 209 hvert kg. Minnst var
verðið á kjúklingum í Englandi,
kr. 78 á kg.
Ostur 45% var dýrastur í Dan-
mörku, þar var verðið kr. 205 á
kg, en lægsta verð var í Englandi,
kr. 137 á kg.
Þá var ntikill munur á verði
eggja. Mest kostuðu þau í Finn-
landi kr. 54 á kg, en minnst í
Englandi kr. 22 á kg.
Virðisaukaskattur er á matvæl-
um á hinum Norðurlöndunum,
hæstur í Svíþjóð 23,46% en lægst-
ur í Finnlandi 16%. Niður-
greiðslur á verði landbúnaðaraf-
urða eru verulegar í Noregi og
Finnlandi, en í Svíþjóð á mjög
fáum vörum og í Danmörku ein-
göngu á nýmjólk og smjöri. Þá er
verð á smjöri niðurgreitt í Eng-
landi, og þar er enginn skattur á
matvælum. í Hollandi er virðis-
aukasakttur aðeins 4% á matvæl-
um, í Frakklandi 5,5% og í Vestur
Þýskalandi 7%. U.þ.l.
944 — FREYR