Freyr - 15.03.1987, Qupperneq 17
Nafn og númer nauts
Blíður 79008 .
Bauti 79009 ..
Urriði 79010 .
Snerrir 79011 .
Svipur 79012 .
Falur 79015 ..
Kaktus 79016 .
Töggur79017 .
Gegnir 79018 .
Finnur 79025 .
Dýri 79033 ...
Nikki 80001 . .
Oddgeir 80002
Mökkur 80004
Ásaþór 80005
Húni 80006 . .
Skáli 80007 ...
Stjarni 80008 .
Völlur 80009 .
Tjörvi 80011 .
Ormur 80012 .
Dálkur 80014 .
Sörli 80015 ...
Bæsi 80019 ...
Varmi 80021 .
Gámur 80023 .
Geitir 80030 ..
Héðinn 80032
Tangi 80037 ..
og erlendum rannsóknum.
Skýring á þessari niðurstöðu síð-
asta árs virðist því engin tiltæk.
Munur á próteinmagni mjólkur
eftir landssvæðum virðist vera
mjög lítill, en eins og allar fyrri
mælingar hafa sýnt er pró-
teinmagn í mjólk hjá kúm á
Suðurlandi heldur meira en hjá
kúm í öðrum landshlutum.
Tafla 2 sýnir þau tíu bú með tíu
kýr eða fleiri skýrslufærðar, sem
hafa mestar meðalafurðir á árinu
1986. í efsta sæti er bú Guðmundu
Tyrfingsdóttur í Lækjartúni í Ása-
hreppi. Þar eru 15,6 árskýr og
skila þær til jafnaðar 6114 kg af
mjólk sem er glæsilegur árangur.
Þetta bú var á síðasta ári í fimmta
sæti á þessum lista. í öðru sæti er
félagsbúið Baldursheimi í Mý-
vatnssveit. Það bú hefur um árabil
verið í efsta sæti eða einu af efstu
Einkunn
fjöldi dætra Mjólkur- magn Mjólkur- fita
82 98 96
76 102 102
74 92 94
51 93 92
76 108 104
72 94 100
89 102 103
76 93 98
86 106 109
79 97 97
74 97 97
65 111 106
55 92 90
75 89 94
73 94 96
59 100 97
84 93 96
71 104 101
61 107 102
48 105 102
82 94 96
80 112 108
60 87 89
80 104 107
68 106 104
78 89 91
61 100 96
19 100 101
64 103 106
sætunum á þessum lista. Þegar
þessi listi er nánar skoðaður þá er
þar að finna þau sömu bú og þar
hafa staðið á undanförum árum. í
þessum hópi eru tvímælalaust
ýmis af þeim búum þar sem
mjólkurframleiðsla er stunduð af
mestri natni og kunnátta hér á
landi.
Margar kýr skila mjög miklum
afurðum árið 1986. I töflu 3 er
skrá um þær kýr sem mjólka 8000
kg af mjólk eða meira á árinu
1986. Samtals eru þetta tíu kýr.
Eru það jafnmargar kýr sem ná
þessum marki og náðu því á árinu
1985. Mestum afurðum skilar að
þessu sinni Skvetta 88 á Syðri-
Bægisá í Öxnadal. Mjólkaði hún
samtals 8914 kg af mjólk. Skvetta
er dóttir Vasks 71007. Árið 1985
mjólkaði Skvetta 8102 kg af
mjólk. Hún hefur nú i afurðastig
130 en þá sömu einkunn hefur
einnig önnur kýr á þessari skrá,
Snegla 231 í Hjálmholti í
Hraungerðishreppi. Frá því farið
var að reikna afurðaeinkunn fyrir
kýr hér á landi árið 1974 hefur
þetta há afurðaeinkunn ekki áður
verið reiknuð fyrir kýr hér á landi.
Þegar afurðir kúnna eru metnar
í magni mjólkurfitu þá skipar
Snegla 231 í Hjálmholti efsta sæt-
ið, en hún mjólkaði 8005 kg af
mjólk með 4,91 % meðalfitu eða
393 kg af mjólkurfitu. Kúnum nú
er einnig raðað eftir magni af
mjólkurpróteini sem þær fram-
leiða. Þannig mælt er Dimma 45 á
Ytri-Reistará í Arnarneshreppi af-
urðahæst árið 1986. Hún mjólkaði
8460 kg mjólkur eða 317 kg af
mjólkurpróteini.
Þegar hugað er að faðerni af-
urðahæstu kúnna kemur í ljós að
meðal þeirra eru dætur Skúta
73010 langsamlega flestar. Af
dætrum hans eru 100 sem mjólka
5000 kg eða meira og 132 þeirra
skila 200 kg af mjólkurfitu eða
meira á árinu 1986. Þau naut sem
næst koma með mikinn fjölda af-
urðahárra kúa eru Brúskur 72007,
Borgþór 72015 og Fáfnir 69003.
Dreifing á burðartíma hjá þeim
kúm sem bera á árinu 1986 var
eftirfarandi:
báruíjanúar......... 7,4%
báru í febrúar..... 7,0%
báru í mars ......... 10,2%
báru í apríl ........ 14,5%
báruímaí ............. 9,9%
báruíjúní............. 6,7%
báruíjúlí ............ 5,1%
báru í ágúst.......... 6,0%
báru í september .. . 8,4%
báru í október ....... 9,5%
báru í nóvember .... 7,7%
báru í desember .... 7,2%
Þegar þessar tölur eru bornar
saman við tölur síðasta árs koma
þar ekki fram neinar óeðlilegar
breytingar. Er það vafalítið bend-
ing um það að förgun á kúm á
síðasta ári hafi ekki beinst sérstak-
lega að kúm við ákveðin burðar-
tíma öðru fremur. Miklu varðar
Freyr 225