Freyr - 01.10.1994, Page 22
Hjá Kjötumboðinu vinna um 70 manns. Hannes Ivarsson, kjötiðnaðarmaður við
vinnu sína.
vænni framleiðslu. Ekki er reynt að
keppa við Ný-Sjálendinga í verði
heldur miklu frekar í gæðum og
þjónustu. íslenskir bændur bjóða
vöru úr mengunarlausu umhverfi þar
sem lyfjanotkun er í lágmarki. Sala
á vistvænu kjöti krefst mikillar und-
irbúningsvinnu og aga á öllum stig-
um framleiðslu, vinnslu og sölu. Til
þess að ná árangri þarf samstillt átak
framleiðenda og seljenda.
Fjölmargir einstaklingar og fyrir-
tæki hafa samband við Kjötumboðið
til að fá upplýsingar og leita ráða
um útflutning. Margir hafa góðar
hugmyndir og mikinn áhuga. Sam-
starf við slíka aðila er mikilvægt og
er að skila árangri. Hjá Kjöt-
umboðinu hefur safnast upp mikil
þekking og reynsla í útflutningi
ásamt viðskiptatengslum út um
heiminn.
Auknar gœðakröfur
Á undanfömum mánuðum hafa
nokkrir nýir stjómendur tekið við
störfum hjá Kjötumboðinu og er
þeim ætlað að skila fyrirtækinu og
eigendum þess frjóum hugmyndum
og öflugu starfi. Unnið er að fjöl-
mörgum verkefnum til að efla rekst-
urinn og tók Kjötumboðið m.a.
höndum saman við Iðntæknistofnun
um verkefni til að bæta nýtingu hrá-
efnis og orku sem er hluti af gæða-
átaki innan fyrirtækisins. Stöðlun á
vinnsluvörum hefur verið efld og
gæðakröfur hafa verið hertar til
muna bæði hjá vinnslu fyrirtækisins
og í sláturhúsum eigendanna.
Vöruþróun
Sérstök áhersla er lögð á vöru-
þróun og eru fjölmörg vöruþróun-
arverkefni í vinnslu í fyrirtækinu.
Má þar nefna að í tengslum við
breytta verslunarhætti Islendinga,
tilkomu svonefndra klukkuverslana,
hóf Kjötumboðið hf. framleiðslu og
sölu á fersku kjöti í handhægum
neytendapakkningum, svo nefnda
„pre-pack“ framleiðslu. Slík fram-
leiðsla er fyllilega í samræmi við
kröfur markaðarins um ferska vöru á
hvaða tíma sem er. í stað þess að
hafa mann stöðugt á vakt í kjötborði
var málið leyst með fersku pökkuðu
kjöti. „Pre pack“ framleiðsla er orð-
in umtalsverð og vaxandi þáttur í
framleiðslu Kjötumboðsins hf. með
702 FREYR - 19'94
tugi vörutegunda sem seldar eru und-
ir vörumerkinu ALLTAF FERSKT.
Heildarlausn
Kjötumboðið hyggst einnig veita
viðskiptavinum sínum lipra og góða
þjónustu ásamt heildarlausn sem er
þeim hagkvæm. Sem dæmi um það
má nefna samstarf Kjötumboðsins
við veitingahúsakeðjuna Subway,
sem er önnur stærsta veitinga-
húsakeðja í heiminum með yfir
9000 veitingahús víðsvegar um
heiminn. Subway gerir miklar
gæðakröfur og kaupir aðeins það
besta. Af Kjötumboðinu kaupir
Subway á íslandi hefðbundnar fram-
leiðsluvörur ásamt því að
Kjötumboðið framleiðir sérstakar
vörur eftir óskum viðskiptavinarins.
Þessi samvinna hefur tekist vel og
lítur fyrirtækið björtum augum til
frekari samvinnu við stóreldhús og
veitingahús á þessu sviði.
Erlend samkeppni og
gildi Kjötumboðsins
Hingað til hefur kjötframleiðsla
verið vernduð fyrir erlendri sam-
keppni en á því er að verða breyting.
Innflutningur á kjötvörum er á næsta
leiti, jafnvel um næstu áramót eða
mitt ár 1995. Enn er möguleiki að
bæta stöðu innlendra kjötframleið-
enda áður en erlend samkeppni
kemur með sívaxandi þunga inn í
landið. Heimatilbúin samkeppni
vegna sundrungar sem byggist á af-
sláttum skilur eftir vanþróaðan
markað og fjárvana kjötframleið-
endur. Leiðin er því greið fyrir
erlenda aðila að hasla sér völl hér á
landi. Þess vegna er þörf á öflugu