Freyr - 01.10.1994, Side 23
Nýir stjórnendur hjá Kjötumboðinu hf.
Að undanförnu hafa orðið breyt-
ingar á starfsmannahaldi hjá Kjöt-
umboðinu hf. Nýir stjórnendur í
lykilstöður hafa komið til fyrir-
tækisins.
Bjöm Jónsson tók við stöðu sem
markaðsstjóri Kjötumboðsins í upp-
hafi sumars. Bjöm útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur frá Háskóla ís-
lands 1986 og var í framhaldsnámi í
markaðsfræði við háskóla í Bremen
í Þýskalandi 1988-89. Síðustu ár
gegndi Björn starfi forstöðumanns
Sanrstarfshóps um sölu á lambakjöti
þar sem hann öðlaðist víðtæka
þekkingu á kjötmarkaðinum í land-
inu og kjötmálum almennt.
Hverjar eru helstu áherslur hjá
söludeild Kjötumboðsins undir þinni
stjórn?
„Að undanfömu hefur verið í
gangi ákveðin endurskipulagning
hjá söludeildinni sem felst ekki síst í
því að efla og liðka alla þjónustu við
viðskiptavini. Kjötumboðið hefur
það sem framtíðarsýn sína að veita
viðskiptavinum sínum heildarlausn
þannig að þeir þurfi ekki að leita á
fleiri en einn stað. Hér á ég við alla
hrávöru (lamb, svín, naut og hross),
markaðsstarfi og vöruþróun sem
horfir til framtíðar þar sem fram-
sækni, hagræðing, vel þróaður
markaður og traustir viðskiptavinir
verða homsteinninn í samkeppni við
innflutning. Kjötumboðið hf. er tæki
til að fylgja þessu fram en því
aðeins að bændur séu tilbúnir að
fylkja sér á bak við fyrirtækið.
Sláturleyfishafar og fyrirtæki þeirra
verða að auka verulega hlutdeild
sína í unnum kjötvörum á næstu
árum og verða minna háðir hráefnis-
sölu. Kjötumboðið hf. er fyrst og
fremst stofnað til að sinna íslenskum
bændum og styrkja stöðu innlendrar
framleiðslu í framtíðinni.
Hlutverk
Kjötumboðsins hf.
Með því að skilja og uppfylla
þarfir viðskiptavina er rekið mark-
aðsstarf með kjöt og skyldar vörur,
sem skila hagnaði fyrir eigendur.
Björn Jónsson, markaðsstjóri.
Kristján Einarsson.framleiðslustjóri.
vinnsluvörur þar sem Kjötumboðið sem steiktar kjötbollur. Að auki
hefur breiða vörulínu og eldhús þar hefur fyrirtækið byggt upp öfluga
sem hægt er að fá heitan mat og pre-pack framleiðslu. Samfara þessu
ýmsar smávörur í vörulínuna svo ^ yi3
Framtíöarsýn
Kjötumboðsins hf.
Kjötumboðið hf. ætlar að:
Vera fyrirtæki með frumkvæði á markaði, sem
veitir viðskiptavinum sínum lipra og góða þjón-
ustu og býður heildarlausn sem þeim er hagkvæm.
Verða stærsta og öflugasta afurðasölufyrirtœki
landsins, sem býður viðskiptavinum sínum, sem og
eigendum, góða þjónustu með lágmarks til-
kostnaði.
Reka ásamt kjötvinnslum eigenda, öflugustu og
hagkvæmustu vinnslu landsins.
Vinna með eigendum sem ein heild þannig að
hagnaður hvers og eins verði sem mestur.
19'94-FREYR 703