Freyr - 01.10.1994, Qupperneq 38
Fóðrun smágrísa
Pétur Sigtryggsson
1. tafla. Fóðurþarfir smágrísa.
2 3 4 Vikur eftir fæðingu 5 6 7 8 9 10 11
Þyngd grísa, kg FES ú hvem grís 3,5 5,3 7,5 9,5 12,0 Eftir útlyst 14,5 17,5 21,0 25,0
Heimild: Svinets pasning, bls. 61, Landbrugets Rádgivingscenter 1990.
Af 1. töflu sést að ráðlagt er að
fóðra smágrísina eftir átlyst þar til
þeir eru uni 25,0 kg. I töflunni er
þyngd grísa tiltekin í lok hverrar
viku. Þannig er meðalþyngd grísa í
lok 3. viku áætluð 5,3 kg en það er
sú meðalþyngd sem talin er viðun-
andi á vel reknum svínabúum í Dan-
mörku.
Mjög mikilvægt er að nýfæddir
grísir fái broddmjólk strax að fæð-
ingu lokinni þar sem broddmjólkin
inniheldur m.a. mikið af mótefni
gegn ýmis konar sjúkdómum, en
aðeins fyrstu 24 tímana eftir fæð-
ingu eru veggir þarmanna svo opnir
að mótefnin geta streymt beint inn í
blóð grísanna. Það er ekki fyrr en
grísirnir eru 3-4 vikna gamlir að þeir
geta byrjað að mynda mótefni gegn
alls konar sjúkdómum í líkama
sínum. Þess vegna er yfirleitt talið
óráðlegt að taka grísina undan gylt-
unum á þessu tímabili.
Við venjulegar aðstæður mjólka
gylturnar nægilega mikið til að grís-
imir þrífist á eðlilegan hátt fram að
3ja vikna aldri. Það er fyrst þegar
grísimir eru orðnir 2-3 vikna gamlir
að þeir geta framleitt hvata í líkama
sínum sem brjóta niður næringarefni
í korni og öðru fóðri úr jurtaríkinu.
Þess vegna er talið óráðlegt að gefa
grísum yngri en 14-16 daga gömlum
þurrfóður nema í mjög litlum mæli
þar sem mikil hætta er á að þeir fái
niðurgang á þessu aldursskeiði
vegna þess að þeir eiga í erfiðleikum
með að melta fóðrið. Þegar grísirnir
eru orðnir 3ja vikna er mikilvægt að
þeir séu famir að éta dálítið magn af
þurrt'óðri með móðurmjólkinni þar
sem þurrfóðrið örvar framleiðslu á
áðurnefndum hvötum og gerir grís-
ina þannig hæfari að þola það álag
sem þeir verða óhjákvæmilega fyrir
við fráfærur. Oft kemur það fyrir að
grísir byrja fyrst að narta í fóður
þegar þeir eru 4-6 vikna og þá er
oftast ástæðan sú að loftið í svína-
húsinu er of rakt, að grísimir eru
veikburða eða að gæði og samsetn-
ing fóðursins er ekki eins góð og
æskilegt er. Best er að gefa grís-
unum sérstaka smágrísablöndu, en
ef hún er ekki tiltæk þá er hægt að
gefa gyltufóður. Gyltufóðrið er hægt
að bæta með því að blanda saman
90 kg af gyltufóðri, 5 kg undan-
2. tafla. Áœtlaður aldur 25,0 kg grísa í Danmörku.
Vel rekin svínabú Landsmeðaltal Illa rekin svínabú
Aldur 25,0 kg grísa Minna en 70 dagar 75 dagar Meira en 80 dagar
Heimild: Driftsledelse i svineholdet 2, bls. 112, Landsudvalget for svin 1992.