Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1997, Side 17

Freyr - 01.01.1997, Side 17
þó að benda á hvað er að gerast í úrvalsliðnum móðir^sonur, þ.e. hjá nautsmæðrunum. Þar hefur eftir til- komu hins nýja kynbótamats orðið sú breyting að nautsmæður eru valdar mun yngri en áður eða sem nemur nærri tveimur árum. Sam- hliða þessu hefur orðið sú breyting með nýju kynbótamati (einstaklings- lrkani) að kynbótaeinkunnimar sem nautsmæðumar em valdar eftir eru ömggari en áður. Þetta ætti að koma fram í nokkuð örari framfömm á komandi ámm. Einnig er rétt að benda á að smæð nautaárganganna sem koma til af- kvæmaprófunar getur valdið mikl- um sveiflum í kynbótastarfinu. Þannig getur komið upp sú staða að eitt árið séu nær öll nautin sem próf- uð hafa verið ófullnægjandi. Þarna ætti nýja kynbótamatið þó að hjálpa eitthvað til því að með tilkomu þess er hægt að bera saman nautin úr mismunandi árgöngum. Þannig er því hægt að draga úr sveiflum með því að beina notkun að prófuðum eldri nautum þau ár sem ungu nautin mislukkast. Aðrar ástæður þess að framfarir í mjólkurafköstum hafa verið nokkuð hægari en áætlanir sögðu gætu verið tiltöllulega mikil notkun heima- nauta hérlendis og úrval fyrir öðrum eiginleikum en mjólk. íslenski kúastofninn er lítill sam- anborið við þá stofna sem unnið er að markvissum kynbótum á erlend- is. Þessi staðreynd ásamt því að stofninn er alveg lokaður fyrir inn- blöndun erfðaefnis veldur því að hætta er á skyldleikarækt ef ekki er haldið rétt á spöðunum. Fylgifiskar skyldleikaræktar eru skyldleika- ræktarhnignun og minnkun á erfða- breytileika. Hnignun af völdum skyldleikaræktar kemur fyrst og fremst fram í eiginleikum sem tengj- ast hreysti og heilbrigði gripa og þannig auðvitað í afurðum þeirra. Erfðabreytileikinn er í raun elds- neytisbirgðir kynbótastarfsins og með aukinni skyldleikarækt gengur á þessar birgðir. Samkvæmt nýlegri könnun á skyldleikarækt í íslenska kúastofninum þá er hún þó óveruleg og raunar ótrúlega lítil miðað við smæð stofnsins og hefur þar greini- lega tekist vel að sigla á milli skerja. Þessi hætta, smæð stofnsins og ein- angrun hans, sníður þó úrvalsmögu- leikum okkar nokkuð þröngan stakk. Lykilatriði til að forðast skyld- leikarækt samhliða því að ná sem mestum framförum er sameiginleg upplýsingasöfnun eða með öðrum orðum skýrsluhald. Til að nýta til ítrasta þau sóknarfæri sem við höf- um með okkar einangraða kyn þá verða allir mjólkurframleiðendur að taka þátt í skýrsluhaldinu. 1. ‘97-FREYR13

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.