Freyr - 01.01.1997, Blaðsíða 43
Breyttar samþykktir Búnaðar-
sambands Eyiafjarðar (BSE)
✓
Aaðalfundi Búnaðarsambands
Eyjafjarðar fyrir árið 1996 var
samþykktum sambandsins breytt.
Umræða um þessar breytingar hefur
verið í gangi sl. tvö ár a.m.k og hafa
menn skipst á skoðunum um breytt
félagskerfi í héraði á s.l. tveimur
aðalfundum sambandsins. Niður-
staða þeirrar umræðu er sú breyting
sem gerir félagssvæðið allt að einu
búnaðarfélagi eða sambandi bænda.
Form aðalfundar verður þannig að
fulltrúakjör leggst niður en allir fé-
lagar fá aðild að honum samkvæmt
nánari skilgreiningu á félagsaðild,
félagatali o. fl.
I allri þeirri umræðu sem varð
með sameiningu á Stéttarsambandi
bænda og Búnaðarfélagi Islands var
ekki talið óeðlilegt að skoða upp-
byggingu félagskerfisins heima í
héraði. Með þessari breytingu hjá
BSE eru búgreinafélög eða búnað-
arfélög ekki lengur aðilar að sam-
bandinu. Búgreina- og búnaðarfé-
lög hafa starfað mismikið, en lítil
starfsemi hefur verið hjá flestum
annað en að kjósa fulltrúa á aðal-
fund. Því þótti rétt að breyta þessu
formi og sjá til hvemig það gæfist.
Sjálfsagt koma einhverjir agnúar í
ljós en vart svo miklir að ekki sé
hægt að yfirstíga þá.
Með þessu verður að telja að lýð-
ræði verði virkt í sinni bestu mynd
og jafnræðis gæti meðal allra sem
vilja starfa innan þessara samtaka.
Þetta kallar á aukna ábyrgð stjómar
BSE að gæta hagsmuna félags-
manna í formi kjara og faglegra
stöðu.
Nýjar samþykktir voru sam-
þykktar á sl. aðalfundi og em veiga-
mestu breytingarnar að finna í
eftirfarandi greinum.
1-gr.
Félagið heitir Búnaðarsamband
Eyjafjarðar. Félagssvæði þess nær
yfir öll sveitarfélög við Eyjaljörð.
Aðsetur þess og varnarþing er
heimili formanns hverju sinni, eða
formlegt aðsetur þar sem miðstöð
starfsemi þess er, samkvæmt nánari
ákvörðun.
Sambandið starfar bæði á fagleg-
um og stéttarlegum gmnni.
2. gr.
Félagar geta orðið þeir einstaklingar
og lögaðilar sem hafa tekjur af land-
búnaði og stunda búrekstur í at-
vinnuskyni. Aðild skal óháð hvort
þeir stunda búrekstur í eigin nafni
eða annarra. Undir búrekstur fellur
hvers konar búfjárrækt, jarðrækt,
skógrækt, garðrækt og ylrækt.
Einnig eftirfarandi starfsemi, fari
hún fram á lögbýlum: Eldi og veið-
ar á vatnafiski, nýting hlunninda,
framleiðsla og þjónusta.
Allir félagar skulu hafa sömu rétt-
indi óháð formi á félagsaðild.
3. gr.
Tilgangur félagsins er:
- að annast lögboðna starfsemi
búnaðarsambanda hverju sinni.
- að vera aðili að Bændasamtök-
um Islands.
- að vera málsvari félagsmanna
varðandi búrekstur.
- að vinna að framfömm á sviði
landbúnaðar.
- að vinna að bættum hag félags-
manna.
- að gæta hagsmuna félagsmanna
í markaðs- og kjaramálum.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná
með því:
- að hafa í sinni þjónustu starfs-
menn með sérþekkingu á þeim svið-
um sem áhersla er lögð á af félag-
inu.
- að hafa yfir að ráða húsnæði og
nauðsynlegum tækjum til starfsem-
innar.
- að hafa yfir að ráða og afla
nægjanlegs fjármagns til þeirrar
starfsemi sem ákveðið er að reka.
5. gr.
Aðalfund skal halda árlega fyrir
apríllok. Hann skal opinn öllum fé-
lagsmönnum á svæði Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar. Aðalfund skal
boða með dreifibréfi eða á annan
venjubundinn hátt eigi síðar en 30
dögum fyrir fundardag og aftur
a.m.k viku fyrir fund, þannig að
tryggt sé að öllum félagsmönnum sé
kunnugt um hann.
Málum sem leggja á fyrir aðal-
fund skal komið til stjómar a.m.k.
10 dögum fyrir fund.
Aðalfundur starfar í búgreina-
nefndum (áhugasviðum) og geta
menn valið sér setu þar eftir áhuga.
Þær nefndir leggja síðan mál fyrir
sameinaðan fund til afgreiðslu. Á
fundinum skulu liggja frammi
skýrslur stjómar, ráðunauta og bú-
greinaráða.
Aukafund er skylt að halda með
hæfilegum fyrirvara fyrir Búnaðar-
þing.
Aðrar greinar laganna eiga fyrst
og fremst við um almenna meðferð
mála, kosningar o. fl. Þess er vænst
að þetta breytta félagsform skapi
áhuga og meiri virkni einstakra fé-
lagsmanna.
1. ‘97 -FREYR 39