Freyr - 01.01.1997, Blaðsíða 34
Tafla 2. Afurðahæstu bú á landinu 1996 með 10 árskýr eða fleiri skýrslufærðar
Bú Árskýr Kg m.jólk Kjarn- fóður kg
Sturlaugur og Bima, Efri-Brunná, Saurbæ 27,4 6594 1085
Ragnheiður og Klemens, Dýrastöðum, Norðurárdal 16,3 6465 999
Félagsbúið Baldursheimi, Mývatnssveit 15,7 6283 1108
Gunnar Sigurðsson, Stóru-Ökrum, Akrahreppi 18,0 6226 1038
Jón og Sigurbjörg, Búrfelli, Miðfirði 24,0 6154 1183
Félagsbúið Efri-Brúnavöllum II, Skeiðum 17,3 6134 1516
Reynir Gunnarsson, Leirulækjarseli, Álftaneshreppi 20,1 6031 703
Ari Laxdal, Nesi, Höfðahverfi 34,4 5873 711
Davíð Sigfússon, Sumarliðabæ, Ásahreppi 15,1 5703 859
1996 en var á sama tíma árið 1995
og ef slíkar kýr eru komnar niður í
nyt að haustinu eru litlar líkur á að
þær græði sig mikið eftir að þær
koma á gjöf að hausti. Lakri árang-
ur sæðinga víða um land árið 1995
en áður gæti einnig hafa leitt til að
tilfærsla á burðar-
tíma hafi valdið
breytingum á milli
ára. Slíkar breyt-
ingar er samt ekki
hægt að finna þegar
tölur fyrir landið í
heild eru skoðaðar.
Mestu
meðalafurðir
í töflu 2 er gefið
yfirlit um þau tíu bú
þar sem meðalaf-
urðir voru mestar á
árinu 1996 og á
skýrslu eru hið
minnsta 10 árskýr.
Þarna eru nú sex bú þar sem
meðalafurðir eru yfir 6000 kg eftir
hverja árskú. Fleiri bú ná nú þessu
marki en nokkru sinni. Listinn sem
þarna birtist mun hins vegar koma
mörgum lesendum mjög
kunnuglega fyrir sjónir vegna þess
að í meginatriðum eru hér á ferð
sömu bú og hefur verið að finna á
hliðstæðum listum undanfarin ár. Á
þessum lista skipta þau aðeins um
innbyrðis röðun frá ári til árs.
Efsta sætið skipar að þessu sinni
búið hjá Sturlaugi og Birnu á Efri-
Brunná í Saurbæ eins og oft hefur
verið á undanförnum tveim áratug-
um. Þau voru með 27,4 árskýr árið
1996 sem skila að meðaltali 6594
kg af mjólk hver. Þetta eru meiri
meðalafurðir en dæmi eru um
nokkru sinni áður hér á landi á einu
búi. Kjamfóðurgjöf mælist að jafn-
aði 1085 kg á hverja kú. Þetta ágæta
bú hefur áður verið ítarlega kynnt á
síðum þessa blaðs og má minna á
viðtal við þau hjón í 22. tbl. Freys
árið 1985. Jafn og einstakur árang-
ur í mjólkurframleiðslunni um langt
árabil sýnir að þama hljóta allir
þættir rekstrarins að vera í öruggum
höndum.
Búið hjá Ragnheiði og Klemens á
Dýrastöðum í Norðurárdal er í öðru
sæti. Þau vom árið 1996 með 16,3
árskýr í fjósi og þær skila að meðal-
tali 6465 kg af mjólk en kjamfóður-
gjöf er að jafnaði 999 kg á hverja
kú. Þetta bú hefur eins og búið á
Efri-Brunná verið efst eða ofarlega
á þessum lista á undanfömum ámm.
Því má síðan bæta við að þegar
bestu naut úr árgangi nauta frá 1990
verða kynnt þá mun að öllum lík-
indum verða þar að finna naut frá
báðum þessum toppbúum.
Á það hefur verið bent að eðli-
legra geti verið að raða afurðahæstu
búum út frá annarri viðmiðun en
mjólkurmagni. Víða erlendis er
hefðbundið að gera það eftir magni
mjólkurfitu og mjólkurpróteins. Ef
það er gert þá verður búið á Efri-
Bmnná efst með 474 kg samtals, en
hæstu bú á síðasta ári vom á þessa
mælistiku með meiri afurðir. Röð
búanna sem á eftir koma raskast
hins vegar allmikið
á þessum mæli-
kvarða og munur
þeirra í milli verður
lítill. Stóru-Akrar
koma í annað sætið
með 460 kg, en
síðan eru Efri-
Brúnavellir og
Baldursheimur með
459 kg, Búrfell með
449 kg og
Dýrastaðir með 448
kg.
Tafla 3 sýnir
yfirlit um þær kýr í
nautgriparæktar-
félögunum sem
mjólkuðu á árinu
1996 yfir 8500 kg af mjólk. Lang-
samlega afurðahæsta kýr á landinu
er Branda 90 á Efri-Brunná í Saur-
bæ. Hún mjólkaði á árinu samtals
10781 kg af mjólk með 4,14% fitu
og 3,48% prótein þannig að reiknað
magn af mjólkurpóteini og
mjólkurfitu hjá henni er 821 kg.
Árið 1995 bar Branda 13. desember
og heldur vel tíma þrátt fyrir miklar
afurðir því að hún ber árið 1996
hinn 1. desember. Hæst fór hún í 42
30 FREYR -1. ‘97