Freyr - 01.01.1997, Blaðsíða 26
Ráðstefna NÖK
eyjum sumarið
á fllands-
1996
Norrænn félagsskapur nautgripa-
ræktarmanna, NÖK - nordisk
ökonomisk kvægavl, kemur saman
annað hvert ár til skiptis á Norður-
löndunum. A fundum samtakanna
eru rædd sameiginleg áhugamál
þeirra sem stunda nautgriparækt,
rýnt í stöðu greinarinnar, reynt að
skyggnast um framtíðarþróun og,
síðast en ekki síst, tíma varið til að
kynnast aðstæðum starfsbræðra í
hverju landi og njóta félagslegra
samskipta. Algengt er að fjölskyld-
ur, makar og böm, félagsmanna
sæki fundina.
Aðild að samtökunum er tak-
mörkuð við 40 þátttakendur frá
hverju landi og skylt er félögum að
sitja tvær af hverjum þremur ráð-
stefnum samtakanna. Þessu ákvæði
hefur ekki verið beitt af fullum
þunga gagnvart Islendingum, eink-
um vegna þess hve umtalsvert meiri
kostnað þeir hljóta að bera vegna
ferðalaga.
Félagsskapurinn NÖK var stofn-
aður í Falkenberg í Svíþjóð árið
1948. Hann verður því fimmtíu ára
1998. Þá er ráðgert að halda ráð-
stefnu á stofnstaðnum. Árið 2000
er svo fyrirhugað að halda fund
samtakanna hér á landi. Einu sinni
hefur ísland staðið fyrir ráðstefnu-
haldi af þessu tagi en það var árið
1984. Þá var hún haldin á Laugar-
vatni.
Fundurinn á Álandseyjum
1996
Fundurinn sl. sumar var haldinn í
lok júlí og stóð finnska deildin að
undirbúningi hans og framkvæmd.
Þátttakendur voru vel á þriðja
hundrað frá öllum Norðurlöndunum
og þar af fimm frá Islandi.
Dagskrá þessara funda er jafnan
Eftir Gunnar Guðmundsson,
nautgriparæktarráðunaut
hjá BÍ
fjölbreytt að efni og helgast nokkuð
af málefnum sem fulltrúar frá þeirri
landsdeild sem stendur fyrir ráð-
stefnunni hverju sinni leggja
áherslu á. Helstu efnisþættir sem
fjallað var um á Álandseyjafundin-
um má segja að hafi verið þessir:
* Aðlaðandi framleiðsluumhverfi er
jafnframt nýtur velvilja neytenda.
* Væntingar mjólkurframleiðenda
um þróun á nýrri öld.
* Gæðastýring í framleiðslunni og
ræktun hraustari gripa.
Fjölmörg fróðleg erindi um ofan-
greinda málaflokka voru flutt á
fundinum, sem vert væri að gera ít-
arleg skil hér á síðum blaðsins. Hér
verður þó aðeins stiklað á stóru og
dregnir fram fáeinir markverðir
þættir úr umfjöllun fundarins.
ímynd framleiðslunnar -
væntingar framleiðenda
Fjárhagsleg afkoma mjólkurfram-
leiðenda á Norðurlöndum hefur ver-
ið til umfjöllunar á mörgum undan-
gengnum árum á fundum samtak-
anna. I þessu efni Ieita framleiðend-
Fjórir af íslensku þátttakendunum á tröppum elsta kaffihúss í Mariehamn, Bager-
stugan 7, hantverkare, f.v. Jóhannes Torfason og Elín Sigurðardóttir, kona hans, á
Totfalœk og Gunnar Guðmundsson og Gíslína Lóa Kristinsdóttir, kona hans.
22 FREYR -1. ‘97