Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 36
Skýrsla Félags hrossabænda
Starfsárið 16. nóv. 1995 til 14. nóv. 1996 - Síðari hluti
Birgðastaða hrossakjöts var í upphafí verðlagsárs 1995/1996
96.899 kg miðað við 186.772 kg á sama tíma árið áður.
1995/96 1995/94 Breyting%
Upphafsbirgðir alls: 96.899 186.772 - 48,2 %
Folöld 16.689 108.144 - 84,7 %
Tryppi 2.436 13.619 - 82,1 %
Fullorðin hross 77.774 65.009 + 19,6 %
Lokabirgðir alls: 61.597 96.899 - 36,4 %
Folöld 30.782 16.689 +85,8 %
Tryppi 12.515 2.436 +389,1%
Fullorðin hross 18.300 77.774 -76,5 %
Framleiðsla 918.428 863.128 +6,4 %
Sala innanlands 648.819 681.830 - 4,8 %
Útflutningur 298.080 272.159 +9.3 %
IV. Innanlandsverslun með
hrossakjöt og verðlagning
4.1 Birgðastaða,
framleiðsla og sala
hrossakjöts
Árið 1995/96 var slátrað 5.085 fol-
öldum, 341 tryppum og 3.025
hrossum. Framleiðsla folaldakjöts
jókst frá fyrra verðlagsári um 9,3%
og tryppakjöts um 117,5%, en fram-
leiðsla hrossakjöts var óbreytt. Sala
folaldakjöts dróst saman um 15,9%,
tryppakjöts sala jókst um 26% og
sala hrossakjöts jókst um 13,1%.
Lokabirgðir minnkuðu um 36,4%
og er birgðastaðan því með hag-
stæðasta móti.
Hinn 5. október sendi Framleiðslu-
ráð út bréf til sláturleyfishafa með
eftirfarandi beiðni:
Hér með er þess farið á leit að
sláturleyfishafar með hrossaslátrun
veiti eftirfarandi upplýsingar um
uppgjör fyrir hrossaafurðir á þessu
hausti:
a) Greiðslur til bænda með 2% verð-
skerðingargjaldi, kr/pr. kg í
hverjum verðflokki.
b) Greiðsludagsetningar og hlutföll,
gefin upp í dögum eftir sláturdag
eða sláturmánuð.
c) Greiðslur fyrir húðir, kr./pr. kg í
hverjum þungaflokki.
d) Annað það sem máli skiptir varð-
andi uppgjör við bændur, t.d. mis-
mun á greiðslum eftir því hvort
kjötið fer á innlendan eða erlend-
an markað.
4.2 Verðlagning
hrossakjöts 1996
Ákveðið var af stjóm Fél. hrb. að
reyna að halda óbreyttu verði á
hrossakjöt haustið 1996, en 27. okt-
óber 1994 var verðið skráð eftirfar-
andi af Sexmannanefnd og hefur
verið óbreytt þannig síðan, sjá töflu
neðst á síðunni.
Nú er vonast til að þetta verð
standist og em bændur beðnir um að
láta vita til Fél. hrb. ef svo er ekki og
senda með upplýsingar um uppgjör
sláturleyfishafa á afurðunum:
a) fyrir hvem verðflokk.
b) dagsetningar á greiðslum og hlut-
föll gefin upp í dögum eftir slátrun.
c) greiðslu fyrir húðir.
í fyrra óskaði Framleiðsluráð
landbúnaðarins eftir upplýsingum
um þessi atriði frá sláturleyfishöf-
um og fékk engin svör og nú er unn-
ið að útvegun upplýsinga hjá Framl.
ráði landbúnaðarins um verð og er
vonast til að þær liggi fyrir á þessu
ári. 10% yfirverð fékkst á folalda-
slátmn í ágúst hjá a.m.k. einum slát-
urleyfishafa.
4.3 Verðskerðingarsjóður
hrossakjöts
2% verðskerðingargjald var tekið af
verði til framleiðenda síðasta verð-
lagsár, samkvæmt 20. gr. laga nr.
99/1993 og reglugerð nr. 478 frá 3.
sept. 1996. Árlega þarf að fá sam-
þykkta áætlun um tekjur og ráðstöf-
un tekna úr verðskerðingarsjóði frá
landbúnaðarráðherra.
24. september var eftirfarandi
ráðstöfun samþykkt fyrir 1996/97:
Til markaðsstarfa innanlands: 1.080
þús. kr., til markaðsstarfa erlendis
1.080 þús. krónur. Sjá rekstraryfir-
lit og efnaliagsyjirlit á síðunni hér
andspœnis.
Verð tii framleiðanda án hupps og síðu kr. pr. kg.
Verðflokkur IB, FOI B 134,48
Verðflokkur IIA, HRI A, TRI A, UHI, FOII 122,57
Verðflokkur IA, FOI A, UFO I 147,93
Verðflokkur IIB, TRI B, HRI B, TRII 98,05
Verðflokkur IIC, HRI C, HRII 78,44
32 FREYR -1. ‘97