Freyr - 01.01.1997, Blaðsíða 38
Hrossafjöldi árin 1992-1995:
1995 1994 1993 1992
Suðvesturland 9.150 8.721 9.086 9.107
Vesturland 10.626 10.924 10.275 9.989
Vestfirðir 1.161 1.203 1.268 1.214
Norðurland V. 19.930 20.683 20.294 20.152
Norðurland E. 6.834 7.064 6.807 6.491
Austurland 4.637 4.549 4.347 4.264
Suðurland 25.864 25.373 24.649 23.954
Alls: 78.202 78.517 76.726 75.171
Allir þessir sláturleyfishafar voru
heimsóttir og lagt á ráð um sam-
vinnu, hugsanlega uppbyggingu á
einum stað til að sjá um úrbeiningu
og að taka sameiginlega upp breyti-
legt verð til bænda eftir árstímum
og framboði til að geta þjónað mark-
aðnum betur með jafnara framboð.
5.3 Tímabilið júlí-okt. 1996
Um miðjan júlí kom upp matareitr-
un í Japan af völdum 0-157 E-colí
bakteríu, sem reyndist erfitt að rekja
hvaðan kom.
Það var einkum fernt sem olli því
að áhrifin af þessum faraldri vara
enn:
1. Um 60% af allri fæðu sem Japan-
ir láta ofan í sig er hrámeti.
2. Hreinlæti í matvælaiðnaði í Japan
er almennt ábótavant.
3. Meðgöngutími bakteríunnar er
allt að 14 dagar eftir að hún kem-
ur í líkamann.
4. Almenningu fór ekki strax að til-
mælum yfirvalda um að sjóða
allan mat.
Yfirvöld gerðu eftirfarandi
ráðstafanir:
1. Fyrirskipun til almennings um að
sjóða allan mat.
2. Að loka öllum barnaskólum tíma-
bundið þar sem tilfelli koma upp.
3. Allir sem starfa við matvælaiðn-
að og sýkjast eru sendir í frí frá
störfum.
4. Ef minnsti grunur er á því að fólk
sé sýkt er það sent í rannsókn.
5. Mjög hert eftirlit með matvæla-
iðnaðinum og öllum innflutningi
á matvælum.
6.011 tilfelli eru flokkuð og með-
höndluð í kerfinu á sama hátt og
ef um kóleru væri að ræða.
Þessi fyrirskipun um að sjóða all-
an mat hefur valdið hruni á fersk-
kjöts-markaðnum og taka stórmark-
aðir í Japan ekki enn áhættu um kaup,
vegna ótta við hugsanlega skaða-
bótakröfu frá þolanda í ljósi ráðstaf-
ana yfírvalda.
Sala stöðvaðist alveg í mánuð en
síðan hafa aðeins selst frá SH um 1
tn á mánuði.
Vonir eru um að úr rætist en ætla
má að haustslátrun inn á Japans-
markað verði nær engin og því
verði afsetning fullorðinna hrossa
nú í haust ekki möguleg, nema á
lágu verði inn á innanlandsmarkað
og í frysti.
SH telur að aukning verði hæg
allt til næsta hausts og Kjötumboðið
mun reyna fyrir sér með slátrun og
úrbeiningu hjá Kaupfélagi V-Hún-
vetninga sem hefur leyfi fyrir slátr-
un og vinnslu á Japan- og Evrópu-
markaði.
Stjóm Fél. hrb. taldi ekki mögu-
leika með svo stuttum fyrirvara að
stefna á útflutning lifandi hrossa til
slátrunar í Belgíu eða Frakklandi,
en ef ekki rætist úr, verður að huga
að því fyrir næsta haust.
Ef Japansmarkaður myndi jafna
sig er vitað að mikill áhugi er fyrir
því hjá kaupendum að kanna hversu
mikið er hægt að fita íslenska hest-
inn án mikils tilkostnaðar. Þetta
væri spennandi verkefni, fitu-
sprengingin er ráðandi í gæðaflokk-
un kaupenda og því mikilvægt að
hámarka hana. Ef hægt væri að leið-
beina bændum á hvaða hátt það sé
hægt að auka hana án mikils til-
kostnaðar þá væri hugsanlegt að
taka upp tvískipta verðlagningu í
framtíðinni og greiða enn hærra
verð fyrir best fítusprengda kjötið.
Sjálfsagt væri að vinna að þessu í
samvinnu við bændur.
5.4 Álagsgreiðslur og
flutningsstyrkir á útflutt
hrossakjöt
Stjóm Fél. hrb. ákvað að greiða
10% álagsgreiðslur á útflutt hrossa-
kjöt í maí og júní úr verðskerðingar-
sjóði hrossakjöts og námu þær
greiðslur til sláturleyfishafa kr. 483
þús. Kjötframleiðendur ehf. sáu um
framkvæmd þessara greiðslna.
Þá vora einnig staðfestar eftirfar-
andi reglur um flutningsstyrki:
1. Fél. hrb. greiðir styrk vegna flutn-
ings á hrossum til slátrunar fyrir
Japansmarkað. Fjármunir til þessa
koma úr verðjöfnunarsjóði hrossa,
en framkvæmdin verður í hönd-
um Kjötframleiðenda ehf.
Taflan sýnir fjölda ásettra hrossa og heildarsláturþyngd með
folaldakjöti.
Hrossaeign '94 Hrossaeign '95 Slátrun '94 Slátrun '95
KVH:* 5.285 4.909 94.8 tn 141.8 tn
SAH: 5.926 5.605 159.8 tn 147.7 tn
KS:** 10.675 10.577 98.0 tn 111.5 tn
KEA: 8.539 8.290*** 25.5 tn 30.2 tn
* Taka ber tillit til þess að Ferskar Afurðir slátra einnig hrossum (17 tn '95).
** Taka ber tillit til þess að Slátursamlag Skagfirðinga slátrar einnig hrossum (37
tn ‘95).
*** Það vantar kaupstaði inn í tölumar og hefur hrossum á svæðinu því að öllum
lfkindum fjölgað þar sem um 1.200 hross vom á Akureyri 1994.
34 FREYR -1. ‘97