Freyr - 01.01.1997, Qupperneq 41
Vesturlandsdeild Fél. hrb. að ef
félagsdeild ályktar eða gerir sam-
þykktir sem ná út fyrir félags-
svæði viðkomandi deildar um
málefni hrossabænda og hags-
muni þeirra, þurfa þær ályktanir
að vera sendar fyrir stjóm eða að-
alfund Fél. hrb. til umfjöllunar.
f) Ymis mál önnur bárust Fél. hrb.,
fjárstyrksbeiðnir o.fl. sem synjað
var.
VII. Fjármál Félags
hrossabænda
7.1 Tekjur og
fjárhagsáætlun
Tekjur af Búnaðarmálasjóðagjaldi
og hluti Framleiðsluráðsgjalds
greiða rekstur félagsins og tekjur
fóðurgjaldasjóðs fóru til afmark-
aðra viðfangsefna, svo og tekjur
verðskerðingarsjóðs hrossakjöts.
Fjárhagsáætlun Fél. hrb. var sam-
þykkt af stjóm fyrir almanaksárið
1996 eftir umfjöllun á tveimur
stjómarfundum og hefur tekist að
halda henni og vel það.
7.2 Lokauppgjör á
Fóðurgjaldasjóði
Það fór fram 16.09.1996 en frá og
með 1. ágúst sl. var hætt endur-
greiðslu úr sjóðnum, sem nam áður
um 800 þús. kr. á ári, en verður hér
eftir um 60 þús. kr. á ári og greiðist
Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Var áður 55% tollur en breytist í um
5% toll á hráefni og um 35% toll á
innflutt blandað hráefni.
7.3 Lokauppgjör vegna
eldri skuldar
Lokauppgjör fór fram við Einar
Bimi vegna eldri skuldar.
7.4 Athugasemdir við
skýrslu 1995
Stjóm Framleiðnisjóðs landbúnaðar-
ins gerði athugasemdir við skýrslu
Fél. hrb. 1995 með bréfi 12.01.
1996 sem var svarað 18.01. 1996,
lið fyrir lið. Beðist var afsökunar á
prentvillu á einum stað í skýrslunni
þar sem talað hafði verið um
300.000 króna styrk, en hann var
500.000 kr. vegna þróunarverkefnis
vegna útflutnings á hrossakjöti.
7.5 Styrkumsókn vegna
Saga-reiðskólans til Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins
19.01.1996 var óskað eftir fjár-
stuðningi fyrir Saga-reiðskólann og
markaðsstarfssemi þar og 19.02.
voru settar fram nánari skýringa
með fjárbeiðni að upphæð 2 millj-
ónir. Enginn styrkur var veittur.
VIII. Lokaorð og hakkir
Stjóm Félags hrossabænda þakkar
öllum samstarfsaðilum og starfs-
mönnum félagsins fyrir liðið starfs-
ár og væntir góðrar samvinnu um
öll hagsmunamál greinarinnar.
Þakkað er fyrir samstarf við útflutn-
ingsaðila reiðhrossa og útflutnings-
aðila hrossakjöts til Japan.
í þessari skýrslu er reynt að
greina frá öllum helstu málum sem
stjórnin fjallaði um á umræddu
tímabili. Aðalfundi Fél. hrb. er ósk-
að góðra starfa.
Fyrir hönd Félags hrossabænda,
Bergur Pálsson
formaður Fél. hrb.
Halldór Gunnarsson
framkvæmdastjóri Fél. hrb.
til 31.08.96
Hulda G. Geirsdóttir
Markaðsfulltrúi Fél. hrb.
1. ‘97 -FREYR 37