Freyr - 01.02.1998, Blaðsíða 32
um 2 daga og hver gráða í vorhita
(mars-apríl) breytir vorkomunni um
6 daga. Hafa ber í huga að í þessari
greiningu er ekki tekið tillit til snjóa
eða svella, en þetta hvort tveggja
hefur mikil áhrif ásamt hitanum.
Mikill snjór varnar því að frost
gangi langt niður í jarðveginn þótt
kalt sé í veðri.
Tún algræn og veðurfar
Að meðaltali liðu 3 vikur frá því tún
voru talin byrjuð að grænka þar til
þau urðu algræn.
Breytileikinn er samt mikill, allt
frá 4 dögum upp í 58 daga. Skoðað
var hvaða þættir hefðu helst áhrif á
þetta með svipuðum aðferðum og
beitt var á byrjun gróanda. Það kom
fram að því seinna sem byrjar að
grænka því skemmri tími líður frá
byrjun gróanda þar til tún verða
algræn. Fyrir hvern dag sem
vorkomunni seinkar styttist þessi
tími um hálfan dag. Þetta kemur
ekki á óvart, eftir því sem líður á
hækkar sól á lofti og inngeislun
Nú á þessum síðustu og verstu
tímum, þegar fjáreign bænda fer
minnkandi, er að verða rnikill fjár-
skortur í kaupfélögum og slátur-
húsum. Kveður svo rammt að, að
kjötkaupinenn og veitingahús eru
að verða uppiskroppa með slátur.
Einkum hefur orðið skortur á
ákveðnum súrmat af hrútum. Þá
telja framástefnandi bændur lausn-
ina helst felast í því að klóna kindur
og rækta kúnstugt í verksmiðjum
þennan eftirsótta súrmat.
Skáldum hafa orðið þessir erfið-
leikar í sauðfjárrækt að yrkisefni.
Sturla Friðriksson
Ríma af Dolly
og ödrum klónum
Öðrum þræði þrífst ég á
Þorra fæði hollu,
og þau gæði melta má
í minni kvæðarollu.
eykst, þannig verður hver dagur
áhrifameiri.
Einnig kom í ljós að vetrar- og
vorhitinn hefur áhrif umfram þau
áhrif sem hann hefur á byrjun vor-
gróðurs. Þótt jörð sé byrjuð að
grænka tekur það túnin lengri tíma
að verða algræn ef veturinn og/eða
vorið hefur verið kalt. Jarðvegurinn
er þá væntanlega kaldari og öll starf-
semi í honum að sama skapi hægari.
Fyrir hverja gráðu sem vetrarhitinn
(nóv.-febr.) er hærri styttist þessi
tími um tvo daga og um einn dag
fyrir vorhitann. Eins og vænta mátti
hefur hiti og úrkoma eftir að byrjar
að grænka einnig áhrif. Fyrir hverja
gráðu sem meðalhiti tímabilsins frá
byrjun gróanda þar til tún verða al-
græn hækkar styttist tíminn sem
þessi ferill tekur um 1 m dag og fyrir
hvern mm í meðalsólarhringsúr-
komu styttist ferillinn um 1/2 dag.
Þetta gefur einnig vísbendingu
um hvers vegna það þarf svo misháa
hitasummu frá byrjun grænku til að
tún verði algræn. I þessum gögnum
1998
Góðir drengir mál er mér
mjög að tengja í rími,
og trega lengi, að liðinn er
Ijúfur fengitími.
Kalt er á Fróni, freðin jörð,
frjósa í skónum tæmar,
norpar í snjónum nautahjörð.
Nú þarf að klóna ærnar.
Þótt nú hafi enn í ár
aukist fjárhagsbatinn,
þarf að klóna fjölda fjár
fyrir þorramatinn.
Fyrst má telja tilvalið
að taka nokkrar skjátur
og klóna úr þeirn eintóm svið
ellegar blóð og slátur.
Rúliupylsur rakið er
að rækta úr klónalömbum.
Vex þá mörinn settur sér
í sértilgerðum vömburn.
Á þorra
var hún að meðaltali 110 daggráður
(ekkert þröskuldsgildi var notað,
þetta er meðalhiti sinnum dagar) og
var frá 29-239.
Úthagi algrænn og
veðurfar
Að meðaltali liðu 6 vikur frá því tún
byrjuðu að grænka þar til úthagi
varð algrænn, þ.e. úthagi varð al-
grænn þrem vikum seinna en túnin.
Breytileiki var mikill, bæði milli ára
og staða. Reynt var að skoða hvaða
þættir hefðu áhrif á þennan tíma
með sömu aðferð og beitt var á tún-
in. Það kom í ljós, líkt og með túnin,
að því seinna sem byrjar að grænka
því skemmri tími líður frá byrjun
gróanda þar til úthagi verður al-
grænn. Þannig fæst einnig um það
bil sami stuðull og fyrir túnin, fyrir
hvem dag sem vorkomunni seinkar
styttist þessi tími um hálfan dag.
Vetrarhitinn hafði hér ekki marktæk
áhrif umfram þau áhrif sem felast í
byrjun gróandans, en aðrir stuðlar
eru svipaðir eða sambærilegir.
Er þá slátrið erfðabætt,
æxlað sprelllifandi,
og inn í garnir óðar þrætt,
eftir færibandi.
Hreinrækta menn hreðjakyn
úr hrútlömbunum ungum,
og klóna einhver ósköpin
öll af súrum pungum.
Ærkjötið er erfðagreint
upp úr sýruköggum,
og afgreitt þaðan alveg hreint
eða í lundaböggum.
Þá hafa nokkrir sérhæft sig
í sameinuðum hreppum
að framleiða sem forgangsstig
feikn af blóðmörskeppum.
Og trúverðugur tjáði mér
þeir tækju uppá þeim skolla
að rækta eistu ein og sér,
en aðrir bringukolla.
Og hér með lokast leiktjaldið,
ljóðskáld upp má klappa,
því hér hefur verið sett á svið
soðin rófustappa.
28- Freyr 1/98