Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1998, Side 43

Freyr - 01.02.1998, Side 43
ræna vottun fyrir ýmsar afurðir hjá þeim tveim vottunarstofum sem annast eftirlit og vottun fyrir lífræna landbúnaðarframleiðslu hér á landi innan ramma laga nr. 162/1994 og reglugerðar nr. 219/1995. Þá hafa 125 sauðfjárbændur og fjögur fyrir- tæki hlotið viðurkenningu landbún- aðarráðuneytisins skv. reglugerð 89/ 1996 og var farið að vinna eftir henni á liðnu ári. Þess er vænst að efling umhverfistengdrar gæðastýr- ingar muni móta mjög framtíðar- stefnu gæðastýringar í landbúnaði hér á landi. Lokaorð Þeirri skoðun vex stöðugt fylgi að leggja þurfi æ ríkari áherslu á gæði hinna ýmsu afurða landbúnaðarins. Kerfisbundin gæðastýring og trú- verðug vottun eða viðurkenning er því að ryðja sér til rúms og þarf, ef vel á að vera, að ná til allra fram- leiðslustiga. Ætla má að við mótun markvissrar stefnu í gæðastýringu vegi sjónarmið umhverfisverndar þungt í þeim tilgangi að nýta sem best þau gæði sem íslenskur land- búnaður hefur uppá að bjóða. Það er eðlilegt að leiðbemingaþjónustan gegni forystuhlutverki við þróun og framkvæmd gæðastýringar, a.m.k. á sveitabýlum, enda sinna bæði lands- og héraðsráðunautar ýmsum þáttum sem flokkast undir gæðastýringu. Þar munu einnig dýralæknar o.fl. koma við sögu. I tengslum við þessa þróun má gera ráð fyrir vaxandi þörf fyrir einstaklingsleiðbeiningar auk almennrar ráðgjafar. Heimildir 1. Ályktun Búnaðarþings 1995, mál nr. 18, þingskjal nr. 76 um erindi landbúnaðarhóps Gæðastjórnunarfélags Islands um átak í gæðastjórnun í landbúnaði, lagt fram af umhverfisnefnd. 2. Óskar Gunnarsson (1994). Gæða- stjórnun ISO-9002. Ráðunauta- fundur BÍ og RALA 1994, bls. 3. 3. Ólafur R. Dýrmundsson (1996). Umhverfistengd gæðastýring. Kynning á reglum um sértækt gæðastýrða íslenska landbúnaðar- framleiðslu með áherslu á umhverf- isvernd. Ráðunautafundur BÍ og RALA 1996, bls. 34-37 og Freyr 92. árg., 3. tbl. 1996, bls. 110-111. 4. Ólafur R. Dýrmundsson (1997). Environmentally-linked quality control af Icelandic agricultural production. NJF-Seminarium nr. 279: Kvalitets- och miljöstyrning inom lantbruket sett ur redgivn- ingsperspektiv. Arctia Hotel Atel- jee, Turku, Finland, 5.-7. november 1997. Fjölrit 8 bls. 5. Runólfur Sigursveinsson (1997). Gæðastjórnun í landbúnaði. Bændablaðið, 14. tbl., 3. árg. þriðjudagur 2. september 1997. 6. Ólafur R. Dýrmundsson (1997). Lífræn og vistræn sauðfjárrækt. Ráðunautafundur BI og RALA 1997, bls. 62-65 og Freyr 93 (6), 232-233 & 246. 7. Ólafur R. Dýrmundsson (1997). Endurskoðun reglugerðar nr. 89/1996 um sértækt gæðastýrða íslenska landbúnaðarframleiðslu. Skýrsla samin að beiðni ÁFORMS- Átaksverkefnis í nóvember 1997. Fjölrit 3 bls. Freyr flytur nýja þekkingu - undirstödu framfara! egar Bændasamtök Islands hófu að gefa út Bænda- blaðið árið 1995 breyttist hlutverk Freys. Blaðið birtir nú einkum alhliða leiðbeiningaefni en minna af fréttum. Verkaskipting blaðanna er sú að Frey er ætl- að að birta efni sem ætla má að bændur þurfi að grípa til eitthvert tímabil, jafnvel nokkur ár. Til að auðvelda þá notkun er birt ítarlegt efnisyfirlit hvers árgangs í síðasta tölublaði ársins. Á þessu ári, 1998, verður enn sú breyting á Frey að efni sem áður birtist í sérritum BI, Nautgriparæktinni, Sauðfjárræktinni og að hluta Hrossaræktinni. birtist nú í sérstökum „þemablöðum"' Freys. Ráðgert að fjölga tölublöðum Frey í 13-15 og þar af verði þrjú sérblöð um nautgriprækt, tvö um sauð- fjárrækt og eitt um hrossarækt. Öðrum búgreinum verða einnig gerð skil í öðrum tölublöðum, sem sum hver verða að hluta til búgreinatengd. Óhjákvæmilega hækkar áskriftargjald Freys við þessa stækkun og hefur verið ákveðið 3.600 kr. í ár. Áfram verður hægt að kaupa þemablöðin ein og sér, en það er sérstök ástæða til að hvetja bændur til að kaupa Frey allan. Ætlunin er að efla hann sem faglegt rit, og bændur þurfa á því að halda að fylgjast með því sem þar verður skrifað. Ritstj. Freyr 1/98 - 39

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.