Tuðran - 01.05.1977, Qupperneq 1
1. tbl. l.árg.
MAI 1977
Selföss fjölskyldan
Józx Gudbrandsson og
fjölsltylda, sótt heim
Gamanleikarinn frægi Jerry Lewis, sagði
þegar sjötti strákurinn hans fæddist, að
hann ætlaði að eiga ellefu stráka, svo
þeir gætu skipað eitt fótboltalið. Síðast
þegar ég vissi hafði hann bara eignast tíu
stráka.
Ekki slá þau hjónin Jón Guðbrandsson og
Þórunn Einarsdóttir Jerry Lewis og konu
hans út, því þau eiga bara 4 stráka og
fimm stelpur eða Bertu, Sigríði, Einar,
Ragnhildi, Guðbrand, Ingólf, Svein, Bryn-
hildi og Matthildi. Synir þeirra hjóna eru
allir miklir knattspyrnugarpar. Einar fékk
viðurkenningu fyrir framför og ástundun
keppnistímabilið 1976, en mæting hans á
leiki og æfingar var 100%, sem er frábær
árangur. Guðbrandur var kosinn knattspyrnu
maður ársins i 4. fl. 1976, Ingólfur var
sæmdur sama titli í 5. fl. 1975 og Sveinn,
sá yngsti þeirra bræðra hlaut þennan tit-
il þeirra fyrstur, í 6. fl. 1974.
Það var svo einn sólskinsdag nú fyrir
skömmu, þegar skógarþrestirnir skríktu
af ánægju í garðinum hjá Jóni og bórunni,
að ég fékk þá hugmynd að spjalla örlítið
við þau.
- Eruð þið ánægð með að strákarnir hafa
snúið sér að knattapyrnunni frekar en ein-
hverri annarri íþrótt?
Jón: "Ja, ég veit ekki hvort við erum
neitt ánægð með að þeir séu í þessu frek-
ar en einhverju öðru, en við erum ánægð
með að þeir séu í þessu, því það að hafa
eitthvert tómstundagaman það er mikils
virði.
Eg held að knattspyrnan sé ekkert betri
en eitthvert annað tómstundagaman, en hún
getur verið ágæt."
frh. bls. 3