Fylkir - 23.12.1999, Side 7
FYLKIR jólin 1999
7
• • /
Eyverjar 70 ára - Skapti Om Olafsson ritar:
Hafa alla tíð notið
framsvnnar forvstu
Hann var myndarlegur hópurinn sem fór í hina margrómuðu Edduferð til Englands árið
1983.
Mánudaginn 20. desember eru 70
ár liðin frá því að Eyverjar, félag
ungra sjálfstæðismanna, var stofn-
að í Vestmannaeyjum. Þetta er
langur tími í sögu stjómmála-
hreyfingar á Islandi.
Stofnfundur var haldinn í Góð-
templarahúsinu þar sem Hvíta-
sunnukirkjan stendur núna og var
áður Samkomuhús Vestmanna-
eyja. Á fundinum voru saman
komnir ungir menn sem vildu
fylkjast um gmndvallarstefnu
Sjálfstæðisflokksins og berjast
gegn afturhaldsöflum í þjóðfé-
laginu. Mikill samhugur var í
þessu nýstofnaða félagi, sem
reyndar hefur ávallt einkennt
starfsemi félagsins þau 70 ár, sem
það hefur starfað.
Framan af hét félagið einfald-
lega, Félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum en árið
1961 var samþykkt að gefa fé-
laginu nafnið Eyverjar. I
framhaldi af því var samþykkt að
fá hugmyndir að merki fyrir
félagið og varð tillaga Ástmars
Ólafssonar fyrir valinu.
Á þessum 70 árum sem félagið
hefur starfað hafa ætíð valist dug-
miklir og framsýnir menn til
forystu í félaginu. Fyrsti formað-
urinn var Páll Eyjólfsson skrif-
stofustjóri, en í dag er Gunnar
Friðfinnsson formaður. Það má
því segja að frá fyrstu tíð hafi
félagið verið í góðum höndum.
Markmið Eyverja
Markmið Eyverja eins og allra
ungra Sjálfstæðismanna er að
berjast fyrir víðsýnni framfara-
stefnu í þjóðfélaginu með hags-
muni allra stétta að leiðarljósi.
Þessu markmiði hafa Eyverjar
ávallt fylgt og með stuðningi við
Sjálfstæðisflokkinn hafa þeir
komið þeim sjónarmiðum best á
framfæri.
Eyverjar hafa ávallt verið áber-
andi og drífandi afl innan
Sjálfstæðisflokksins hér í Eyjum.
Og oftar en ekki hafa komið upp
deilumál á milli þeirra og annara
flokksmeðlima hér í Eyjum, því oft
hafa þeir viljað taka harðari og
ákveðnari stefnu í mörgum málum
en þeir sem eldri eru. En þrátt fyrir
það hefur dugnaður og kraftur
Eyveija verið öðrum hvatning til
enn meiri dáða og ýtt undir marga
og góða sigra Sjálfstæðisflokksins.
Fyrr á árum voru Eyverjar mjög
áberandi afl hér í bænum fyrir þá
miklu starfsemi sem félagið stóð
fyrir. Um hvítasunnuna var það
föst venja að halda Vorhátíð
Eyverja og þótti hún með því besta
sem gerðist í skemmtanalífi
Eyjabúa. Þama var settur upp
nokkurs konar kabarett á hvíta-
sunnukvöld og síðan var dans-
leikur fram eftir nóttu. Þóttu
þessar Hvítasunnuhátíðir mjög
vinsælar, en þær lögðust niður fyrir
um 20 árum.
Á þrettándanum hafa Eyverjar
haldið gnmudansleiki í mörg ár, í
byrjun bæði fyrir fullorðna og
böm. En í dag em grímudansleikir
eingöngu fyrir böm og njóta þeir
geysimikilla vinsælda. Það er oft
gaman að sjá börnin í búningum
sem foreldramir hafa dundað við
að útbúa svo dögum skiptir.
I kringum kosningar hafa Ey-:
verjar ævinlega lagt sitt af mörkum
til þess að vinna glæsta kosn-
ingasigra, m.a. með því að gefa út
blöð, vera með útvarpsstöð og
halda skemmtanir fyrir yngri
kjósenduma. Hafa þessar skemmt-
anir verið í formi dansleikja,
óvissuferða og skemmtikvölda. Á
þessi skemmtikvöld hefur félagið
fengið landsþekkta skemmtikrafta
og hafa hátt í 200 manns verið að
mæta á þessi kvöld, sem hafa verið
vel heppnuð.
Þann 18. des. munu Eyverjar
síðan halda ball aldarinnar í tilefni
af afmælinu ásamt því að vera með
skemmtikvöld fyrr um kvöldið.
Ferðalög
Ferðaklúbbur Eyverjar var stofn-
aður árið 1982 og var á þeim tíma
mjög öflugur. Farið var í eftir-
minnilega ferð til Englands árið
1983, sem kennd var við
skemmtiferðaskipið Edduna.
Einnig var farið nokkrar styttri
ferðir, til að mynda í heimsókn á
Keflavíkurflugvöll og skemmtiferð
um Suðurlandið.
Fyrr á árum var einnig farið í
margar ferðir um landið en fyrsta
ferðin upp á land var farin árið
1932. Þá var farið með mb.
Skógarfossi til Stokkseyrar og þótti
þetta meiri háttar ferðalag á þeim
tíma, þó svo að okkur finnist það
ekki í dag.
Undanfarin ár hefur ferðaklúbb-
urinn legið í dvala en hver veit
nema hann vakni aftur til lífsins í
vor þar sem fyrirhugað er að leggja
land undir fót.
Útgáfumál
Eyverjar hafa alltaf verið í
samstarfi við önnur sjálfstæðis-
félög í Eyjum um útgáfu Fylkis.
Félagar úr Eyverjum hafa oftsinnis
setið þar í ritstjórastóli eða ritstjóm.
Einnig hafa Eyverjar gefið út
málgagn sitt STOFNA með
hléum, mislöngum frá árinu 1938.
Til að mynda hefur blaðið komið
út fjórum sinnum á þessu ári.
Útgáfustarfsemi hefur því verið
sterkur þáttur í starfi Eyverja, því
auk Stofna hafa Eyverjar gefið út
bækur sem innihéldu ræður og
ályktanir sem gerðar voru um
niðurstöður á ráðstefnum sem
félagið stóð fyrir.
Árið 1978 ákvað stjóm Eyveija
að gefa út símaskrá fyrir Vest-
mannaeyjar. Ákveðið var að hafa
auglýsingar, söguágrip og upplýs-
ingar um helstu stofnanir bæjarins
í þessu riti. En sá hængur var á
útgáfu þessa rits, að Póstur & sími
hafði einkaleyfi á útgáfu símaskrár.
Var því ákveðið að nefna útgáfuna,
Upplýsingarrit um Vest-
mannaeyjar. Eitthvað fór þessi
útgáfa fyrir brjóstið á þáverandi
stöðvarstjóra Pósts & síma og
kærði hann útgáfuna sem hafði
þær afleiðingar að formaður
félagsins, Sigurður Öm Karlsson
var handtekinn af lögreglunni og
lokaður inni í tukthúsinu. En ritið
var gefið út þó svo að mikið
laumuspil hafi verið í kring um
það. Þrátl fyrir allar kæmr og
erfiðleika í byrjun losnaði for-
maðurinn úr prísundinni og Upp-
lýsingaritið kemur enn út á vegum
Eyverja. Upplýsingarrit Vest-
mannaeyja er löngum orðinn fastur
liður í bæjarbrag okkar Vest-
mannaeyinga og verður veglegra
með hverju árinu.
Auk þessa hafa Eyverjar starf-
rækt útvaip Heimaey í kringum
kosningar þar sem tónlist er
blandað saman við talað mál,
frambjóðendur komið í hljóðver og
opnum fundum verið útvarpað.
Fyrir rúmu ári opnuðu Eyverjar
glæsilega heimasíðu þar sem m.a.
upplýsingar um stjórn, myndir úr
Eyverjasalnum, fréttir og hvað er á
döfinni koma fram. Þessi síða
Það er oft glatt á hjalla hjá Eyverjum en sjaldan eins og þegar Jón Gnarr mætir.