Fylkir


Fylkir - 23.12.1999, Blaðsíða 29

Fylkir - 23.12.1999, Blaðsíða 29
29 FYLKIR jólin 1999 lúxusskipi og þaðan sáust bygg- ingamar miklu á alla vegu og mörg stór skip utan við höfnina, um morguninn taldi ég 43 skip sem biðu eftir að komast upp að. Á skipinu hitti ég fólk frá Hawaí og mikið vorkenndi ég fallegri dömu, er ég sá hve húð hennar var spillt af sólarhita. Hjá frændum Keikós Við komum í Sea World, sem stóð undir nafni og hvílík mannvirki og aðstaða þama úti við sjóinn. Sýningaraðstaða var fyrir háhym- inga og alls konar sjávardýr, ótrú- legt samansafn af fiskum, kröbb- um og fleiri kvikindum. Þama vom fimm háhyrningar sem mér fannst mér skylt að kíkja á, sérlega er ég sá að sá að sá langstærsti og kröftugasti var með boginn bak- ugga eins og Keikó. Það má skjóta því hér inn í, að ég vissi ekki fyrr en síðar í ferðinni að Keikónafnið er mjög algengt kvenmannsnafn í Japan. Annar þjálfaranna, stúlka, kunni vel að meta boginn bakugga, því þar sat hún eins og í söðli er hún lét hann leika listir sínar. Næst lá leiðin til Ono en fyrst varð ég að fara til Tókýó þar sem prófessor Saxea beið mín á brautarstöðinni en hún hún hafði verið á ferð í Eyjum stuttu áður en ég lagði upp. Lét hún sig hafa það að skreppa fimm til sex tíma fram og aftur til að heilsa upp á mig. Á leiðinni á næsta stað fór ég fram hjá fjallinu, þeirra helga Fuji sem gnæfir 3745 m til himins með sínum hvíta kolli. Stúlkan, sem tók á móti mér var 6. ættliðurinn í húsinu. Mér varð starsýnt á splúnkunýtt borð og stóla í eldhúsinu en gestgjafi minn, Kyakó brosti og sagðist hafa keypt þetta til að ég gæti sest annars staðar en á gólfinu. Sem sagt, mér að kenna að 150 ára hefð hússins var brotin með því að koma með húsgögn inn í húsið. Grafreitur fjölskyldunnar er í bænum skammt frá húsinu og þar voru veglegir legsteinar og mikið af blómum. Kyakó sagðist fara í hverri viku og skipta um blóm í vösunum. Þama er hof og margt forvitnilegt að sjá m.a. minn- ingartöflur fjölskyldunnar sem þama hafði búið frá miðri 19. öld. Hjá gamalli stríðshetju Ég var boðinn á nokkur heimili og er mér sérstaklega minnistæð gömul stríðshetja, sem heitir Sako en hann slapp með skrekkinn þegar kjarnorkusprengjunni var kastað á Hirosima. Hjá Sako var ekki farið úr skónum enda var hann nokkuð vestrænn í háttum. Vopnasafn hans er magnað, byssur allt frá 8. öld og mikið hnífasafn, m.a. harakirihnífar sem notaðir vom til sjálfsvíga þegar Japanair reyndu að bjarga heiðri sínum með sjálfsmorðum. -Notuðu þá, sagði hann, og rak upp skellihlátur. Svona liðu dagamir, alltaf sama blíðan, glampandi sól og hitinn yfir 20 stig og aldrei rigningar- dropi. Það vakti athygli mína þegar verið var að klæða með timbri utan um minnstu trén í húsagörðum. En þetta er varúð- arráðstöfun, til að bjarga greinunum undan snjóþunga en þama getur fallið eins til tveggja metra snjór í desember og janúar og em góð skíðalönd í grenndinni. Bauðst til að taka ómakið af Ama Johnsen Frá þessu góða fólki lá leiðin til gömlu höfuðborgarinnar Kyoto sem mikið hefur verið í fréttum m.a. vegna umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Okkar maður hefur tregðast við að skrifa undir lokaniðurstöðuplaggið. Ég sendi Áma vini mínum Johnsen einmitt kort og spurði hvort ekki væri rétt að nota ferðina og láta mig skrifa undir. Kyoto hýsir mörg af frægustu listaverkum og söfnum Japana, þama er þétt búið eins og í öðmm stórborgum, þar sem ekki var búið að byggja var seldur aðgangur í bílastæði. Höfðu greinilega margir atvinnu af því. Þegar við fómm að heilsa upp á prestsdótturina, ókum við inn í eins konar skáp. Þegar bfllinn var kominn á hilluna, var ýtt á takka og þá sá ég fullt af bflum, sem vom á þessum hillum, sem snemst á svipaðan hátt og sést í hjólum skemmtigarðanna. Machiko listakona, forstjóri auglýsingastofu var hin föngu- legasta kona, sem hefur náð langt í faginu. M.a. var hún nýbúin að skila af sér skreytingum á nýja ópem á staðnum. Þá var komið að því að leita uppi Hirako í Yokohama og við Kyako kvöddumst með virktum, hneig- ingum og beygingum samkvæmt japanskri hefð en engin snerting fyrirframan almenning. í heimsókn hjá Everestfara Næst lá leiðin til Hirakó og for- eldra hennar sem tóku mér af sömu ljúfmennskunni og ég hafði hvarvetna mætt. Ég sá að þama var rfkulega búið og spurði með hógværð um húsbóndann. og brá mér aðeins er ég frétti að Dr. Omari MD. væri yfirlæknir á 370 rúma sjúkrahúsi, þar sem 57 læknar ynnu auk 270 hjúkmnar- fræðinga. Hvemig skyldi honum lítast á þetta fyrirbæri úr norðrinu? Þetta vom óþarfa áhyggjur því læknirinn reyndist einstaklega þægilegur og skemmtilegur. Hann hafði numið í Bandaríkjunum og sótt læknaráðsefnur víða um heim. Hann var líka mikill göngugarpur hafði m.a. klifið Everst fyrir 18 ámm. Svo skemmtilega vildi til að ég var með í farteskinu bol með okkar íslensku Everestförum sem Ástþór sonur minn hafði gefið mér. Varð doktorinn mjög glaður er ég rétti honum flíkina. Þama var skemmtilegur heim- ilisandi og allir virtust boðnir og búnir til að gera sér glaðan dag. Doktorinn var fínn söngmaður, kom með söngbækur frá Ameríku- dvölinni og við sungum ýmsa slagara, sem ég þekkti. Auk þess vildu þau fá að heyra jólasálma. Ég hafði samband við tvo vini mína, sem bjuggu í borginni. Fóm þeir með mig í dagsferðir sem vom fróðlegar og innihaldsríkar. Mest var gaman að finna hve fólkið hafði mikla ánægju af að vera með manni og sýna það markverðasta. Síðasta kvöldið í faðmi Omari- fjölskyldunnar var mér haldin veizla þar sem uppistaðan var Sushi sem er einn af þjóðarréttum Japana. Eins og ég hef margtekið fram, var ég löngu hættur að hugsa um sviðin og borðaði allt sem fyrir mig var borið. Þarna var komið með fat sem á var raðað 17 te«- undum af hráum fiskréttum. Ég borðaði þetta með bestu lyst og kvöldið leið með söng og spjalli. Doktorinn vildi vita, hvemig ég færi að því að halda mér svona vel. Fullyrti hann að ég hlyti að vera yngri en raun ber vitni. Ég þakkaði lofið og kvaðst vera svo heppinn að hafa aldrei þurft að leita mér lækninga eða fara á sjúkrahús, aðeins til tannlæknis. Sagði ég að í ísskápnum væri lýsi sem ég tæki á hverjum morgni ásamt einni töflu af E-vítamíni. En það voru tveir ungir þýskir lyíjafræðingar sem ég hitti fyrir sjö ámm sem mæltu með í E-vítamíni til að ég gæti haldið fyrri reisn. Doktoroinn vildi fá að sjá glasið og kom þá í ljós að við notum sams konar E- vítamín. Við ferðalok var mér efst í huga þakklæti til allra, sem greiddu götu mína í þessari einstöku ferð, þar sem treyst var á gestrisni og gjafmildi meðal fjarlægra þjóða. Þetta var sannkallað ævintýri, sem sannfærði mann um gæsku Guðs að gera mér kleift að njóta svo lífsins sem dæmi sanna. Samantekt úr ferðadagbók á aðventu 1998 Jóhann Friðfinnsson. Þarna komst ég næst geisunni sem hafði atvinnu af því að láta mynda sig með fólki. Farið er með „tigna“ gesti í tesermoní sem mikil helgi hvílir yfir hjá þarlendum. Á dögunum sá ég svipaða Ijósmynd, sem tekin var af Schröder, kanslara Þýskalands sem kominn var í fótspor mín. Þetta er yndislegt fólk en mér brá þegar dóttirin sagði mér að pabbi hennar stjórnaði 570 rúma sjúkrahúsi í Yokohama. Með Kyako í einu af stóru hofnum. Aftan við okkur er gríðarstórt málverk af Fuji, helgasta fjalli Japana. Slegið á létta strengi í Yokohama er frúin settist við píanóið. Prófessor Sakae, t.v. en hún var á ferð í Vestmannaeyjum nokkru áður en ég lagði upp til Japans og Kína vegna Keikós. Hún lét sig ekki muna um að ferðast sjö klukkutíma fram og til baka til að hitta mig. Ekki hafði ég hugmynd um að ég væri svona vinsæll.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.