Fylkir - 23.12.1999, Blaðsíða 25
FYLKIR jólin 1999
25
Lúðrasveit Vestmannaeyja 60 ára:
Mikilvæg fyrir menningarlífið
Seint í febrúarmánuði 1939
komu nokkrir menn saman í
AKOGES-húsinu til að
athuga möguleika á stofnun
lúðrasveitar hér í bæ. Höfðu
áður farið fram umræður
milli þessara manna í
einkasamtölum, en hér var
áhugaliðinu fyrst stefnt
saman til að hefjast handa.
Fundi þessum lauk með því
að kosin var nefnd til að gera
drög að lögum og undirbúa
það annað er til þurfti að
formleg félagsstofnun gæti
farið fram.
Undirbúningsnefndina skip-
uðu þeir Hreggviður Jónsson
frá Hlíð, Oddgeir Krist-
jánsson tónskáld og Karl
Guðjónsson kennari og síðar
alþingismaður. Aðrir fundar-
menn á fundi þessum voru
þeir Jóhann Gíslason frá
Uppsölum, Kjartan Bjama-
son í Djúpadal og Kristinn
Jónsson á Mosfelli.
Æfingar hefjast
Hófust nú æfmgar í lúðrablæstri og
kenndi Oddgeir nokkrum nýliðum
í kúnstinni fyrstu tök íþróttarinnar
áður en reynt var að ná sam-
hljómum.
Fyrstu nemendur voru þeir er á
undirbúningsfundinum vom (aðrir
en Hreggviður og Kristinn sem
báðir vom gamalæfðir), Ami Guð-
jónsson lögfræðingur frá Breið-
holti og Haraldur Kristjánsson frá
Breiðabólstað. Hljóðfæri vom
fengin að erfðum eftir samnefnt
félag, sem áður hafði starfað.
Stofnfundur Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja var svo haldinn í
Akóges-húsinu hinn 22. mars árið
1939 og telst hann því stofndagur
sveitarinnar. Alls vom 14 menn
boðaðir til stofnfundarins en níu
mættu. Auk undirbúningsnefndar-
innar voru mættir þeir Jóhann
Gíslason frá Uppsölum, Kjartan
Bjamason í Djúpadal, Ami Guð-
jónsson í Breiðholti, Ámi Guð-
mundsson á Háeyri (Ámi úr
Eyjum), Haraldur Kristjánsson á
Breiðabólstað og Guðjón Hjör-
leifsson múrari.
Hreggviður stýrði fundi og lagði
fram tillögu undirbúningsnefndar
að lögum félagsins eftir að hann
hafði lýst tilgangi fundarins og
fengið samþykki fyrir félagsstofn-
uninni.
í stjóm vom kosnir þeir hinu
sömu og áður skipuðu undirbún-
ingsnefndina, þannig að Hregg-
viður var kjörinn formaður, Odd-
geir var gjaldkeri en Karl ritari.
Vom þessir menn aðalmennimir í
stjóm félagsins um langt árabil,
farsælir og góðir forystumenn.
Oddgeir var þegar ráðinn stjóm-
andi sveitarinnar og í upphafi æfði
hann yfirraddimar en Hreggviður
undirraddimar. Æfðu þeir hvor
sinn hóp eitt kvöld í viku, en á
sunnudögum vom svo samæfingar.
Æfingar - spilamennska
Æfingar vom fyrst í stað uppi í
Akógeshúsinu, en þar var þá enn
ekki gengið frá þiljum og var húsið
því aðeins í fokheldu ástandi. Var
því oft heldur kalt og hráslagalegt á
íyrstu æfingum sveitarinnar.
Sveitin kom fyrst formlega fram á
hvítasunnudag hinn 29.maí 1939
og lék þá á svölum Samkomuhúss-
ins á hátíðahöldum sem Bama-
skólinn efndi til. Eftir það fór
sveitin að láta til sín heyra við
fjölmörg tækifæri. Æfingar vom
sóttar af áhuga jafnframt því sem
fleiri bættust í hópinn.
Ekki varð viðdvöl sveitarinnar
löng við æfingar í Akógeshúsinu,
þar sem þá átti að fara innrétta það
til annarra nota. Fékk sveitin þá
inni í Bamaskólanum. Þar hafði
sveitin sína æfingaaðstöðu í um
þrjá áratugi, en fékk þá inni um
skamman tíma í félagsheimilinu
við Heiðarveg.
I maímánuði 1972 rættist svo stór
draumur er sveitin fékk „eigið“
húsnæði til afnota í Amardrangi
við Hilmisgötu. Bæjaryfirvöld,
sem í gegnum árin hafa ávallt verið
hlynnt sveitinni og veitt henni
stuðning sinn, afhentu þá sveitinni
til umráða neðri hæð hússins.
Húsið hýsti þá og um langt árabil
síðan Tónlistarskóla Vestmanna-
eyja og hefur sveitin verið í
„sambúð“ með þeim skóla ávallt
síðan og er enn.
Haustið 1998 flutti svo sveitin
með Tónlistarskólanum í nýtt hús-
næði í gamla Iðnskólahúsinu við
Vesturveg. Er þar verið að gera
stórglæsilega aðstöðu til að þjóna
hinum ýmsu listum í bæjarfélaginu
og hefur húsið hlotið nafnið
Listaskóli Vestmannaeyja.
Félagsskapurinn
Eins og áður er getið var fyrsti
formaður sveitarinnar Hreggviður
Jónsson frá Hlíð og síðan hafa
nokkrir mætir menn verið þar við
stjómvölinn. Núverandi formaður
er Hafsteinn Guðfinnsson. Fyrsti
stjómandi sveitarinnar var að
sjálfsögðu Oddgeir Kristjánsson
tónskáld, sem lést langt um aldur
fram 18. febrúar 1966, þá aðeins
55 ára. Var það öllum mikill
harmdauði og skarð fyrir skildi í
Lúðrasveit Vestmannaeyja. Því
ekki var nóg með að hann væri
afbragðs stjómandi og mikill
félagi, heldur var heimili hans og
Svövu konu hans eins konar
„félagsheimili“ sveitarinnar.
Heimili þeirra að Stafnesi stóð
öllum opið og var þar allra vanda
reynt að leysa. Svava og Hrefna
dóttir þeirra höfðu brennandi
áhuga á starfi sveitarinnar og
velferð hennar og studdu Oddgeir
með ráðum og dáð. Núverandi
stjómandi sveitarinnar er Stefán
Siguijónsson, skósmiður.
Sveitin eins og hún var skipuð á styrktartónleikum haustið 1978. Stjórnandi var þá Hjálmar
Guðnason.
Stofnendur Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Myndin er tekin 1940, stjórnandi var þá Oddgeir
Kristjánsson.
Oddgeir Kristjánsson, tón-
skáld. „Faðir Lúðrasveitar-
innar.
Ferðalög
Þá er eins þáttar í starfi sveitarinnar
ógetið sem átt hefur mikinn þátt í
að halda saman félagsskapnum í
svo mörg ár, en það em hin árlegu
ferðalög sem sveitin hefur farið í.
Má segja að allt frá því að fyrsta
ferð sveitarinnar var farin 15. til 17.
júní 1940 hafi sveitin farið árlega í
lengri eða skemmri ferðalög.
Oftast innanlands og þá stundum
upp í óbyggðir, s.s. Landmanna-
laugar og Þórsmörk.
Fyrsta ulanlandsferðin var farin til
gömlu Tékkóslóvakíu árið 1959 og
var það tuttugu daga ferð er stóð
frá 9. til 29. ágúst. Aftur var farið
til útlanda árið 1964 og þá voru
Norðurlöndin heimsótt og síðan
hefur sveitin ferðast m.a. til
Irlands, Skotlands og víðar.
Hafa þessar ferðir ávallt verið
mjög skemmtilegar og vel til þess
fallnar að halda hópnum saman og
gera félagsskapinn góðan og eftir-
sóknarverðan. Oft hafa „áhang-
endur“ fylgt sveitinni á þessum
ferðalögum og til margra ára höfðu
ákveðnir aðilar nokkurs konar á-
skrift að þessum ferðalögum.
Hér að framan hefur verið drepið
á nokkur atriði úr sögu Lúðra-
sveitar Vestmannaeyja og eins og
ávallt verður, hefur ýmsu verið
sleppt sem gaman hefði verið að
minnast á. Bíður það síns tíma.
Þegar horft er um öxl og litið á
þann langa tíma sem sveitin hefur í
raun lifað og það góðu og kraft-
mikla lífi, hlýtur það að vera fróm
ósk að svo megi verða um mörg
ókomin ár. Víst er að þeir sem nú
halda um stjórnvölinn í sveitinni
og þeir sem þar eru félagar munu
leggja metnað sinn í að svo verði
og vonandi lfka þeir sem þá taka
við. Þá þurfa þeir er stjóma bæjar-
félaginu á hveijunt tíma að vera sér
meðvitaðir um mikilvægi þess að
góð lúðrasveit sé í bænum og
styðji starf hennar eftir föngum.
Það hafa bæjaryfirvöld hingað til
gert og vonandi verður svo áfrarn.
Við hin ýmsu tækifæri þykir sjálf-
sagt að sveitin sé til staðar og setji
sinn svip á stundina. Lúðrasveit
Vestmannaeyja skipar svo stóran
sess í menningarlífi Eyja að stórt
skarð yrði, ef hennar nyti ekki við.
Magnús Jónasson