Fylkir


Fylkir - 23.12.1999, Blaðsíða 13

Fylkir - 23.12.1999, Blaðsíða 13
13 FYLKIR jólin 1999 Guðmundur Ingi, Kristín og Bryndís ásamt nokkrum yfirmönnum Asmar og eiginkonum þeirra í garðveislu hjá aðmírál Martines. miðbaug en syðsti oddin horfir mót Suðurskautslandinu. Spánska er þjóðtungan Chile var í fyrndinni byggt af indíánum, smávöxnu fólki, svipmiklu með dökkt yfir- bragð. Spánverjar herjuðu á landið en Spánverjar og Portú- galar gerðu á öldum áður mikil strandhögg í Suður Ameríku. Flestir landsmenn eru því blendingar en enn búa þó í landinu um 800.000 Mapu- acheind-indíánar sem eru af þeim kynstofni sem byggði landið í fyrndinni. Tungumál Chilemanna er spánska. Chile er iðnaðarland, auðugt að ýmsum málmum. Það er stærsta koparvinnsluland í ver- öldinni en einnig er landið eitt af tíu stærstu gullframleið- endum í heimi. Chilemenn eru mikil fiskveiðiþjóð því skammt undan ströndum landsins eru auðug fiskimið. Mikil ávaxtarækt er í landinu og eru Chilemenn annálaðir fyrir framleiðslu einstaklega góðra léttvína og rauðvín gerast vart betri en góð og bragðmikil Chilevín. Landsbyggðarflótti víðar en á Islandi í Chile búa um 14 milljónir manna. Höfuðborg landsins heitir Santiago og þar búa rúmar sex milljónir og í Val- paraiso og Vina del Mar sem er skammt frá Santiago býr um ein milljón manna. I Conc- epción og Talcahuano sem liggja saman og mynda eina borg búa um ein milljón manna þannig að þorri lands- manna í þessu stóra landi býr á þessum þremur stöðum. í Chile eins og víða annarstaðar hefur íbúaþróun ekki verið ósvipuð og á Islandi því fólkið streymir af landsbyggðinni til borganna og sífellt fjölgar í þeim. Er svo komið að Chile- menn hafa verulegar áhyggjur af mikilli fólksfjölgun í höfuðborginni. Landsbyggðar- vandinn er því greinilega til staðar víðar en á Islandi. Lýðræði hefur verið komið á í Chile en um árabil ríkti þar herforingjastjórn. Allende for- seta var steypt af stóli árið 1973 en hann hafði stjórnað landinu í anda sósíalisma. Herinn undir forystu Augusto Pinochet steypti Allende af stóli og myrti hann 11. sept- ember 1973. Herforingja- stjórnin var síðan við völd til ársloka 1989 er forseti lands- ins var kjörinn í lýðræðis- legum kosningum. Sumar í Chile meðan vetur er á Islandi Greinarhöfundur, sem verið hefur viðloðandi undirbúning að smíði Hugins, fór ásamt fleirum til Chile í október sl. til að funda með forsvars- mönnum Asmar skipasmíða- stöðvarinnar, kynnast gangi mála við skipasmíðina þar suðurfrá og hnýta upp ýmsa lausa enda. Það er langt ferðalag að fara frá íslandi til Chile og um 19 flugtímar voru að baki þegar komið var til áfangastaðar. Hægt er að fara margs konar leiðir frá Islandi til Chile, bæði gegnum Evrópu og Ameríku. Við flugum frá Keflavík til Orlando þar sem stoppað var í fáeina daga en þaðan var flogið til Miami. Frá Miami var flogið til Santiago og svo þaðan til Concecepc- ión. I Concepción var ágætis veður enda vor í þessum heimshluta og sumarið í nánd. Sumar þarna er frá desember og fram í mars, þegar hávetur er hjá okkur á klakanum. í Concepción er sumarhiti á bilinu 20 - 25° C og yfir vetur- inn er hitinn á bilinu 5 - 12° C. Lítil úrkoma er yfir sumar- tímann en talsvert rignir á veturna. A vorin er suðvestan strekkingur alla daga og þannig var meðan við dvöld- um þarna, vindsperringur en yfirleitt sól og hiti um 17° C. Tilkomumikil sjó- setning á vegum hersins Asmar skipasmíðastöðin er í eigu Chilehers. Æðsti yfir- maður stöðvarinnar er aðmíráll í hernum og yfirmenn deilda eru flestir offiserar. Það labbar því ekki hver sem er inn á svæði stöðvarinnar því hún er inni á svæði sjóhersins í Talcahuano. Á sama tíma og við dvöldum í Concepción var sjósett ný- smíðin fyrir H.B. á Akranesi. Athöfnin við sjósetninguna var mjög tilkomumikil. Skipið var sjósett um klukkan eitt að nóttu en tímasetning sjósetn- ingarinnar réðist af sjávar- föllum. Byrjað var með hátíðarkvöldverði í einhverj- um offiseraklúbb á hersvæðinu þar sem allir mættu í hátíðar- klæðnaði og hermennirnir allir borðalagðir og flottir. Að loknum löngum og miklum kvöldverði með tilheyrandi ræðuhöldum var haldið í skipasmíðastöðina. Skipið var þar tilbúið til sjósetningar og fjöldi manns var viðstaddur í næturnepjunni. Lúðrasveit hersins lék þjóðsöngva Chile og íslands en síðan voru fluttar langar og miklar ræður áður en skipinu var gefið nafnið Ingunn. Að nafngiftinni lokinni skar suðumaður á bita sem festur var í stefni skipsins og hélt skipinu föstu á braut- inni og rann það þá út undan eigin þunga og flaut í fyrsta skipti. Um leið og skipið rann út voru lúðrar þeyttir, blöðrum var sleppt og mikil flugelda- sýning fór fram, bæði í landi og eins um borð í Ingunni. Að sjósetningunni lokinni var síðan boðið upp á kaffi og líkjöra um borð í Árna Frið- rikssyni sem lá við bryggju í skipasmíðastöðinni. Greinilegt var að offiserarnir hjá Asmar kunnu vel til verka í allri skipulagningu varðandi móttökur og veisluhöld og hugsað var fyrir öllu. Skipu- lagðar skoðunarferðir fyrir gesti, matarveislur á færibandi og minnstu smáatriði útpæld. Þegar Ingunn var sjósett hafði gestastúku verið komið fyrir við hlið skipsins þar sem boðsgestir sátu meðan athöfn- in fór fram. Þegar Ingunn rann til sjávar framan við fólkið birtist fyrsti samsetti hluturinn úr Hugin viðstödd- um og á hann hafði verið letrað hvítum stöfum: Huginn, Projekt no. ????. Þannig að sjósetningargestir sáu hvaða verk var næst á stokkana hjá Asmar. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson fyrsta skipið fyrir íslendinga Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er fyrsta skipið sem Asmar smíðar fyrir ís- lendinga. Skipið átti upphaf- lega að afhendast í lok ágúst sl. en var enn í stöðinni í nóv- ember þegar við vorum þar á ferð. Ýmislegt hafði orðið til að seinka smíðinni. Bæði breytingar sem gerðar voru á skipinu og eins var vinnan við smíðina mun meiri en Chile- mennirnir gerðu ráð fyrir, enda skipið stórt og flókið. Árni er glæsilegt skip og er öll stálvinna ákaflega góð. Ýmis- legt þar er þó kannski ekki alveg eins og ég myndi vilja hafa það en þar er bæði um að kenna, að mínu mati, hönnun- arlegum göllum sem og hand- bragði Chilemannanna. Þeir eru þó allir af vilja gerðir til að gera vel og eru tæknilega vel búnir svo ef til vill er það bara spurning um að gera þeim grein fyrir hvaða kröfur við gerum varðandi frágang og útlit og fylgja því eftir. Maður verður að átta sig á því að þetta er annað þjóðfélag en okkar, smekkurinn annar og kröfurnar líka aðrar. Það sem þeim þykir e.t.v. flott og fínt er bara hallærislegt í okkar augum. Vandamál hafði komið upp í Árna Friðrikssyni þegar við dvöldum í Chile. í prufu- keyrslu kom í ljós óskýran- legur hávaði frá skrúfu og var verið að rannsaka af hverju Séð yfir vínræktarsvæði í einum dalnum. Séð yfir hluta straWdbæjarins Vina del Mar.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.