Fylkir - 23.12.1999, Side 11
FYLKIR jólin 1999
11
Grímur Gíslason skrifar:
Kossar, Pisco og sólin í norðri
-Heimsókn til Chile þar sem verið er að smíða nýjan Hugin
Nú er unnið að smíði á nýju
fjölveiðiskipi fyrir Hugin ehf.
hjá Asmar skipasmíðastöðinni
í Talcahuano í Chile en það
skip mun leysa Hugin VE 55
af hólmi. Samningur um
smíðina var undirritaður 18.
desember á síðasta ári og
samkvæmt smíðasamningi á
að afhenda nýja skipið fyrir
mitt næsta ár. Samningurinn
um smíði Hugins var þriðji
smíðasamningurinn sem Asm-
ar-stöðin gerði við Islendinga
því áður hafði verið gengið frá
samningum um smíði á nýju
hafrannsóknaskipi fyrir Haf-
rannsóknastofnun og fjölveiði-
skipi fyrir H.B. á Akranesi.
Síðan gengið var frá samn-
ingnum um smíðina á nýjum
Hugin hefur Asmar gert enn
einn samninginn við Islend-
inga því Gjögur ehf. gerði
samning við Chilemennina um
smíði á nýjum Hákoni sem
verður fjölveiðiskip líkt og
Huginn.
Eyjapeyi umboðs-
maður fyrir skipa-
smíðastöðina í Chile
Það hefði líklega ekki þótt trú-
legt fyrir fáum árum að Is-
lendingar ættu eftir að leita til
vestanverðrar Suður-Ameríku
til að láta smíða fyrir sig
fiskiskip en sú er nú orðin
raunin enda hefur þróun
heimsviðskipta orðið mikil og
nánast engin landamæri til í
þeim efnum.
Eyjamenn hafa löngum státað
sig af því að vera í fararbroddi
á ýmsum sviðum og þeir voru
ekki fjarri þegar tekin voru
upp samskipti við Chilemenn-
ina á sviði skipasmíða.
Eyjapeyinn Björgvin Olafsson,
Pálssonar, fyrrum vélstjóri og
útgerðarmaður á Bylgjunni,
vídeókóngur með meiru er
umboðsmaður Asmar skipa-
smíðastöðvarinnar á Islandi og
hefur reyndar umboð fyrir þá á
öllum Norðurlöndum. Björg-
vin á og rekur fyrirtækið B.P.
Skip eða B.P. Shipping eins og
það heitir á alþjóðavísu.
Björgvin er skipasali og sér
um kaup og sölu skipa og báta
auk þess sem hann er með
umboð fyrir skipasmíða-
stöðvar. Björgvin kom Chile-
mönnunum á framfæri hér á
landi og má segja að með
samningnum um smíði haf-
rannsóknarskipsins Arna Frið-
rikssonar hafi Asmar fengið
viðurkenningu hér á landi því
mikil úttekt var gerð á þeim
stöðvum sem gerðu tilboð í
smíði Hafróskipsins.
Chilemenn hafa langa
Hl :Wffjlu9Á HB *V . ;'-J JB
f, EjPE
íslendingarnir sem viðstaddir voru sjósetningu Ingunnar ásamt yfirmönnum skipasmíðastöðvarinnar.
reynslu af skipasmíði enda eru
þeir mikil fiskveiði og sigl-
ingaþjóð. Þeir hafa lengstum
haft næg verkefni heima fyrir
en með tilkomu E1 Ninjo varð
aflabrestur á ansjósuveiðum
og samdráttur í mjölfram-
leiðslu og sjávarútvegi al-
mennt. Þetta leiddi af sér
samdrátt í skipasmíðaiðnað-
inum og því fóru þeir að leita
meira að verkefnum erlendis
og horfðu til Evrópu í þeim
efnum. Með lág verð í far-
teskinu og Björgvin sem um-
boðsmann reyndu þeir fyrir sér
á íslenskum markaði og varð
vel ágengt.
Stærsti hluti íslenskra skipa
hefur til þessa verið smíðaður
í Evrópu og mest hafa ís-
lendingar leitað til Norðmanna
með skipasmíðar sínar. Það
má því segja að innrás Chile-
manna á íslenskan markað hafi
því verið hálfgerð himnasend-
ing fyrir þær útgerðir sem voru
að huga að endurnýjun skipa
sinna því kostnaður við að
smíða skip í Chile er nálægt
40% lægri, miðað við sams
konar smíði í Noregi.
Landið er löng
og mjó ræma
Chile er eins og áður sagði í
Suður Ameríku. Landið er
langt og mjótt, nánast ræma
sem liggur eftir nær allri
vesturströnd Suður Ameríku,
allt frá Perú í norðri til Horn-
höfða sem er syðsti hluti álf-
Feðgarnir Guðmundur Ingi og Guðmundur Huginn ásamt Björgvin Ólafssyni skipasala og
umboðsmanni Asmar á íslandi í einni garðveislunni sem haldin var í Chile.
unnar. Heildarlengd landsins
er tæplega 4300 kílómetrar en
meðalbreidd þess er ekki nema
tæpir 180 km Vesturlanda-
mæri landsins liggja því öll að
Kyrrahafinu en í austri er
landið afgirt með hinum
hrikalega fjallgarði Andes-
fjöllum. Landið er því líkt og
eyland og samgöngur við það
fara nær eingöngu fram sjó-
leiðis eða loftleiðis. Þar sem
landið er ákaflega langt er að
finna í landinu nær öll veðra-
brigði sem hugsast geta. í
norðri liggur landið að
Ingunn AK 150, skip H.B. á Akranesi, daginn fyrir sjó-
setningu í Asmar skipasmíðastöðinni í Chile. Fyrir framan
Ingunni er fyrsta einingin úr Hugin komin á stokkana.