Skátablaðið


Skátablaðið - 01.01.1947, Page 17

Skátablaðið - 01.01.1947, Page 17
FRA JAMBOREE-NEFND pNNÞÁ er ekki hægt að segja, að hin áformaða Jamboree-för íslenzkra skáta 1947 verði nokkurn tíma farin. Tvö grundvallaratriði þess, að slík för verði farin, hafa enn eigi að fullu fengizt ákveðin, en þau eru farkostur og gjaideyrir. Óhætt mun þó að segja, að vænlega horfi með hvort tveggja. Með tilliti til þess ber okkur öiium, sem hyggjum á Jamboree-för 1947, að hafda áfram undir- búningnum af fullum krafti. Mikill áhugi er ríkjandi hjá íslenzkum skátum fyrir för þessari. Þegar þetta er ritað (25. janúar), hafa borizt umsóknir frá 7 félögum á landinu, sem skiptast þannig: Akranes .......................... 3 Akureyri .......................... 15 Bolungarvík ........................ 1 Hafnarfjörður ...................... 6 fsafjörður ......................... 7 Keflavík .......................... 14 Reykjavík .................... ca. 40 Samtals 86 Þið sjáið, að nú þegar eru komnar umsóknir fyrir 86 þátttakendur, og þó nokkur félög eiga eftir að senda umsóknir. Líklegt er, að takmarka verði tölu þeirra, sem fara, við 100, vegna gjaldeyrisskorts. Er því vissara fyrir þá, sem löngu fyrirfram liafa ákveðið að fara á Jamboree, að sækja um nú þegar. Umsóknareyðublöð hafa verið send öllum félögum, og geta skátar fengið þau hjá félagsforingjunum. Nauðsynlegt er, að þau séu rétt og nákvæmlega fyllt út og að tryggingargjaldið, kr. 500.00, fylgi umsókninni. Svo sem sjá má á öðrum stað hér í blaðinu, virðast kvenskátar einnig hafa fulian hug á að komast á mót þetta, en Jteir verða bara að hafa það í huga, að undanfarin alþjóðamót skáta — Jamboree — hafa aðeins verið fyrir drengjaskáta og svo mun enn verða. Samt sem áður liefir nefndin rekið augun í, að á teikningunni yfir móts- staðinn er gert ráð fyrir sérstöku tjaldbúðasvæði, sem nefnt er „Ladies Camp“. Fyrir nokkru síðan sendi nefndin bréf tii frönsku Jamboree-nefndarinnar með fyrirspurn um tilhögun tjaldbúðasvæðis þessa. Til að vekja ekki neinar tálvonir íslenzkra kvenskáta, sem mikill sómi væri að hafa með og mundu sízt af öllu óprýða hina íslenzku skátasveit á mótinu, viljum við geta þess, að allar líkur benda til að þetta séu aðeins búðir fyrir starfsstúlkur mótsins. — Ritari. — SKATABLAÐIÐ 9

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.