Skátablaðið - 01.01.1947, Side 20
að bylta egginu til. Gassinn er sérstaklega
hátíðlegur og drýldinn á svip við þetta
klak.
Nýlega var mér sagt frá atviki, sem
kvað liafa gerzt í mörgæsabyggðinni. Gass-
inn vildi fá eggið til umönnunar.
„Frá, frá! Nú get ég,“ sagði hann.
En gæsin neitaði góðu boði:
„Troddu kolsvörtum hausnunt á þér
undir vænginn,“ svaraði hún.
Þessu reiddist gassinn og barði gæsina
svo óþyrmiiega með vængstúfnum, að hún
valt um koll. Síðan rak hann hvasst nefið
á kaf í höfuðið á henni, cinlivers staðar í
námunda við þann stað, sem lieilinn hefði
átt að vera — ef hún hefði haft nokkurn
heila.
„Svona álít ég,“ sagði hann, „að eigi að
kenna þér góða siði.“
Síðan lagði hann eggið ofur gætilega á
fit sér og» sat á því, þar til úr því kom
lítill gassi, er taka skyldi arf eftir föður
sinn.
Bcekuv B. /. S.
í fyrra gaf B. í. S. út tvær skátabækur.
Önnur var ævisaga Baden-Powells, eftir
„Úlfljót", en hin yffingabók eftir sr. Jakob
Jónsson.
Ævisaga Baden-Powells er um 75 bls. og
prentuð í hentugu broti. Þar er sagt ali-
ýtarlega frá hinu merka ævistarfi B.-P. og
hvernig skátahreyfingin varð til. — Það
ætti að teljast nauðsynlegt að hver skáti
hefði lesið þessa bók og kynnt sér hana,
er hann tekur nýliðaprófið. — Foringjar!
Athugið hvort nýliðar ykkar eiga þessa bók
eða hafa lesið hana. Hún kostar aðeins
5 kr. og afgreiðir gjaldkeri B. í. S. hana
beint til skátafélaga.
Ylfingabókin er fjölrituð bók, sem beinir
ylfingastarfseminni inn á nýjar brautir.
Þar er stuðzt við þjóðsöguna skemmtiiegu af
Veivakanda og bræðrum hans. I bókinni
eru tekin fyrir ylfingaprófin. Þessi bók er
nauðsynleg hverjum yifing og ylfingafor-
ingja. Sendið pantanir til stjórnar B. í. S.,
pósthólf 831, Rvík. Bókin kostar 5 kr.
°o°
Tóta litla tindilfætt á skátaveiðum
12
SKATABLAÐIÐ