Skátablaðið


Skátablaðið - 01.01.1947, Qupperneq 24

Skátablaðið - 01.01.1947, Qupperneq 24
Nýr þáttur. — Meira og betra samstarf. — Skátabókin eða brauð- kassinn. — Hvenær kemur ný útgáfa af Skátabókinnif — Kvenskátarnir og fyrirheitna landið. — íslenzkir flugskátar. — Úlfljótur. — Fleiri skátabœkur. —- Búningar koma. Missið ekki vonina. J1_JÉR liefst nýr þáttur í Skátablaðinu. Heitir hann eins og þið sjáið: „Við tjaldskörina". Tilgangur þessa þáttar á að verða sá, að ræða áhugamál einstakra skáta og skátafélaga, svo og að svara spurningum og bréfum, sem þættinum kunna að berast. Þátturinn á að vera tengiliður rnilli skátanna innbyrðis og þeirra, sem með framkvæmdavaldið fara, eins konar skátapóstur eða kjallari blaðsins. Þetta hefir að vísu alltaf verið og er m. a. hlutverk Skátablaðsins sjálfs, en starfandi skátar vita það vel, að þá langar oft til þess að senda fyrirspurnir varðandi gang ýmissa mála innan skátahreyfingarinnar, án þess þó að skrifa um það langar og merkilegar grein- ar. Þá er mörgum skátum það einnig vel ljóst •og jafnvel áhyggjuefni. hve samband og sam- :starf milli skátafélaganna úti á landsbyggðinni ■og Bandalagsins er lítið. Engum getum skal að því leitt, af hverju þetta kann að stafa, en ávinn- ingur væri það fyrir þennan nýja þátt Skáta- blaðsins, ef honum tækist að verða eitthvað ágengt í því, að koma hér á meira og frjálslegra samstarfi. Þátturinn tekur á móti öllu, sem skáta varðar, og ekki sízt því, sem getur orðið skátahreyfing- unni til eflingar og styrktar. Ef einhverjum finnst seinlega ganga með ýmiss mál innan hreyfingarinnar, skaðar ekki að skrifa þættin- um „Við tjaldskörina“. Engin bréf, sem sann- gjarnfega og hógværlega eru rituð, verða snið- gengin, .heldur reynt að skýra málin, vekja um- ræður um þau og hnippa í viðkomandi aðilja. Þátturinn tekur einnig að sjáifsögðu við öllu gamni. Sízt má án þess vera, þótt alvara lífsins sé mikil og djúp. Og nú er orðið laust. En hafið bréfin fyrir alla muni stutt og gagnorð, rúmsins vegna. Sendið bréfin til Skátablaðsins, pósthólf 831, Reykjavik, merkt „Við tjaldskörina", SKÁTABÓKIN. Eftirfarandi bréf hefir bor- izt frá Kára: ,.Þar eð ég hefi frétt, að í uppsiglingu væri nýr þáttur í Skátablaðinu, sem taka á við fyrir- spurnum og bréfum varðandi ýmis skátamál- efni, datt mér í hug að spyrjast fyrir um, hvað liði með skátabókina. Ég var eins og fleiri mjög glaður árið 1944, þegar fyrsti hluti hinnar nýju skátabókar kom út, því að það er ekkert spaug að vera flokksforingi og kenna öðrum skátum bókarlaus. Ég geng þess ekki dulinn nú, að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa út- gáfu skátabókarinnar. Og ég veit, að fleiri en ég eru óánægðir með hana. Helztu gallar bók- arinnar virðast mér vera þessir: Brotið ómögu- legt, auðu síðurnar óþarfar, pappírinn ekki sem beztur, myndir of fáar og lélegar, efnið of þurrt og jjungmelt. Bókin í heild er ekki eins skemmti- leg og æskilegt væri. Ég skil alls ekki þá stefnu, að hafa skátabók í mörgum bindum, heila bóka- samstæðu eða ritsafn, sem ekki er nokkur leið að taka með sér í útileguna nema að skilja eftir brauðkassann sinn. íslenzka skátabókin er and- stæða við erlendar skátabækur yfirleitt, sem all- ar eru í samanþjöppuðu formi og innihalds- ríkar. Ég þekki t. d. engan skáta, sem ort hefir í eyður skátabókarinnar. Ný útgáfa skátabókar- innar þyrfti að koma sem fyrst út. Ameríska skátabókin „Handbook for boys“ gæti verið til fyrirmyndar um marga hluti. I hinni nýju skáta- bók væri ákjósanlegt að fá skemmtilega og fróð- 16 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.