Skátablaðið


Skátablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 25

Skátablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 25
lcga kafla um „landið vort fagra með litskrúðug fjöllin". Ég ætla ekki að vera langorðari í þetta sinn og læt því þetta nægja. En gaman væri að heyra frá fleirum, um sama efni í sama þætti.“ HALLGERÐUR LANGBRÓK er heldur þykkjuþung. Hún skrifar: „Getur það verið rétt, að kvenskátar fái ekki að taka þátt í alþjóðamóti skáta, sem halda á í Frakklandi á sumri komanda? Mér finnst það bara anzi hart og ósanngjarnt og veit ekki hvers við eigum að gjalda í þessum efnum. Trú- að gæti ég því, að kvenskátar hafi ekki verið hér með í ráðum og karlmennirnir ákveðið þetta einir. Það var þeim líkt.“ Sannleikurinn er sá, að engar áreiðanleg- ar upplýsingar munu vera fyrir hendi um áhyggjuefni Hallgerðar. En því miður verð ég að hrella kvenskátana svolítið með því að minna þá á, hvaða venja hefir gilt í þessum efnum á undanförnum Jamboreemótum. Þar hafa kvenskátar ekki verið þátttakendur. Þrátt fyrir það er ég þess fullviss, að íslenzkum drengjaskátum væri ekkert ljúfara en að kven- skátarnir fengju að fljóta með þeim til Frakk- lands. í þessu sambandi má og minna á, að óvíða eða hvergi í veröldinni nema á íslandi eru kven- og drengjaskátar undir sameiginlegri yfirstjórn. Er mjög ánægjulegt til þess að vita, hve góð samvinna og heilbrigt samstarf hefir tekizt með þessurn tveim fylkingum. En þetta er bara hér en ekki annars staðar. Og íslenzkir drengjaskátar geta ekki létt áhyggjunum af Hallgerði, þótt þeir fegnir vildu. Þeir verða al- gerlega að hlíta þeim fyrirmælum, sem koma frá fyrirheitna landinu. LOFTFARI skrifar: „Ahugi ungs fólks á flugi og flugmálum fer sívaxandi hér á landi. Margir unglingar fylgjast af mikilli kostgæfni og sérstökum áhuga með þessum málurn. Þetta er ekki óeðlilegt, þar sem flugið er að verða merkur þáttur í samgöngum vorum, og er þegar farið að valda miklum straumhvörfum á því sviði. Það er því ekki nema gott eitt urn það að segja, að unga fólkið fylgist með, lesi og læri um þessi mál, svo af- drifarlk og merkileg sem þau kunna að verða fyrir íslenzku þjóðina. Og nú er vaknaður áhugi fyrir flugmálunum innan skátahreyfingarinnar. Og þar sem það er m. a. tilgangur skátafélags- SKÁTABLAÐIÐ Frentvillupúkinn hefir brugðið sér i búning kvenskáta og hugsar sér gott til glóðarinnar, þegar skátarnir fara að skrifa þœttinum. „Við tjaldskörina“. skaparins, að þroska huga og hönd, með hag- nýtum og góðum viðfangsefnum, væri athugandi hvort Bandalag íslenzkra skáta ætti ekki nú þeg- ar að koma til móts við þessi ungmenni, og vinda bráðan bug að því að semja flugskátapróf og gefa út leiðbeiningar um það, hvernig skipu- leggja á flugskátaflokk. Innan skátahreyfingar- innar eru til menn, sem góða þekkingu hafa á þessum málum. Ekki er ólíklegt, að þeir vilji liðsinna í þessum efnum. En sjálfsagt verður nokkrum erfiðleikum bundið að útvega kennslu- krafta." Þetta segir Loftfari. — B.I.S. ætti að athuga þetta. Ég hefi komið þessu-á framfæri og um- ræður eru hafnar. BÓKAÚTGÁFA hér á landi hefir vaxið stór- kostlega hin síðari ár. Bendir það m. a. til þess, að nokkur gróðavegur sé að gefa út bæk- ur. I öllum þeim aragrúa bóka, sem út koma, fer heldur lítið fyrir skátabókmenntunum. Skátaflokkurinn Úlfljótur hefir þó sýnt lofs- verðan dugnað i að gefa út skátabækur, fjöl- ritaðar og nú síðast prentaðar. Fyrir jólin kom út bókin Skátarnir á Róbinsoneyjunni. Bókin er viðburðarík og hressandi dægurlesning, en skilur þó ekki mikið eftir. En Úlfljóti má allt fyrirgefa, þar eð hann liefir gefið út nauðsyn- legar og nytsamar bækur, en hreppt skuldir að launum. Úlfljótur á þakkir skyldar fyrir fram- takssemina á þessum sviðurn, en skátar yfirleitt ættu að sýna honum meiri og betri skilning,. með því að kaupa bækur Úlfljóts. — Þá hefir Snælandsútgáfan sent frá sér bókina Sól og regn eftir Baden-Powell. Bókin er skemmtileg aflestr- ar, en margar betri bækur eru til eftir sama 17

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.