Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1948, Síða 26

Skátablaðið - 01.07.1948, Síða 26
lítið tillit og unnt er til þess, hve fáir þeir eru. Þetta þykist Úlfljótur hafa gert eftir beztu getu. Margir hafa líka metið starf hans án hlutdrægni og eigingirni og stutt hann á margan hátt og hefur það verið flokknum mjög mikils virði. ÚLFLJÓTUK FRAMTÍÐAKINNAK. Flestir munu samþykkja, að Úlfljótur hefur unnið skátahreyfingunni nokkurt gagn með útgáfu bóka, sem hafa komið skáturn að noturn og eru nauðsynlegar í skátastarfinu. En hann hefur gert gagn á annan hátt engu að síður. Úlfljótur hefur sannað [>að með starfi sínu, að það er tómlætið og kjarkleysið, sem veldur mestu um kyrrstöðuna í svo mörgum málurn skátahreyfingarinnar. Úlfljótur hefur brotið ísinn og þess er að vænta að einhver fylgi í kjölfar hans eða ryðji leiðir á öðrurn vettvangi. Á sviði bókaútgáfunnar bíða rnörg óleyst verkefni, fleiri verkefni en svo, að hægt sé að vinna þau öll sem frístundastörf. Erlendis er útgáfa blaða og bóka önnur meginfjárstoð skátabandalaganna, hin er verzlun með bækur og aðrar skátavörur. Hér hefur stjórn B.Í.S. ekki verið trúuð á þessar fjáröflunarleiðir, enda ekki viljað tefla í neina tvísýnu. Nú hefur Úlfljótur sýnt og sannað með starfi sínu, að einnig hér á landi er hægt að reka bókaútgáfu innan skátahreyfingar- innar taplaust og Skátabúðin í Skátaheimil- inu hefur þrátt fyrir lélegan aðbúnað verið rekin með ágóða um eins árs skeið. Fulltrúaþing B.Í.S. hlýtur að endurskoða afstöðu B.Í.S. til þessara mála og taka jrau föstum tökum og byggja þannig upp fjár- hagslegan grundvöll fyrir margt það, sem hingað til hefur orðið að sitja á hakanum. En framkvæmdirnar verða að vera djarf- ar og markvissar. Bezt mundi vera að Bandalag íslenzkra skáta setti á stofn bóka- verzlun (sem ef til vill væri jafnframt skátaverzlun) og hefðist jafnframt handa um stórhuga bókaútgáfu, sem kærni í stað og tæki við af Úlfljóti. Bókaverzlunin væri svo miðstöð útgáfunnar, auk þess sem þar væri afgreiðsla Skátablaðsins og foringja- blaðsins. Fyrir verzluninni þyrfti að standa ein- hver áhugasamur maður, sem jafnframt hefði á hendi reikningshald hennar. Þró- unin er miklu lengri, en hér skal staðar nurnið um sinn. Þeir svartsýnu hrista höfuðið og vilja bíða betri tírna, en bezti tíminn er ávallt dagurinn í dag, því að hann er sá eini tími, sem við vitum, að við höfum yfir að ráða. 3. júní 1948. 120 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.