Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1948, Síða 47

Skátablaðið - 01.07.1948, Síða 47
1941. Eins og áður er sagt, hefst starfsemi skáta á Úlfljótsvatni um vorið 1941, er Reykja- víkurbær afhenti skátum jörðina um óá- kveðinn tíma. Samdi B.Í.S. þá við Þorlák Kolbeinsson um, að hann skyldi hafa ábúð án annars endurgjalds en þess, að greiða af henni lögboðin gjöld og gæta þeirra verð- mæta, er skátar kynnu að eignast á jörð- inni. Þá var einnig svo um talað, að ynnu drengirnir hjá ábúanda, skyldi hann greiða þeim hæfilega þóknun fyrir. Telja má, að skátastarfsemin á Úlfljóts- vatni hefjist 24. maí þetta ár, þegar nokkrir skátar, flestir úr Skátafélagi Reykjavíkur, fóru austur til þess að undirbúa og setja upp tjaldbúðir, er standa áttu allt sumarið. Að vísu hafði verið farið nokkrum sinnum austur áður til þess að endurbæta þinghús- ið, svo að þar væri afdrep í aftakaveðrum, og einnig sáð í nokkur beð. 27. maí komu drengirnir, 9 talsins, 5 skátar og 4 ylfingar. Síðar um sumarið komu fleiri, og vorum við flestir 14, en auk þess dvöldu nokkrir skátar þar í sumar- leyfum sínum. Hér verður ekki fjölyrt meira um starfið hið fyrsta sumar, en um það má lesa í Skáta- blaðinu, 2. tbl., VII. árg., Drengjajólum 1941 og 1. tbl. 1942. Þegar horft er um öxl til þessa sumars, verður ljóst, að starfið á Úlfljótsvatni var næsta fálmkennt, en þó mikils virði sem undirstaða til þess að byggja á starfsemi komandi ára. Eftir þetta sumar varð ljóst, að óhugsandi var að reka þarna fjölmenn- an skátaskóla nema til væru húsakynni til matreiðslu og borðhalds, fyrir foringjabú- staði og herbergi handa sjúklingum. Það þurfti öflugri tjöld og rúmmeiri. Þá virtist ákjósanlegt, að skátaskólinn ætti einhvern bústofn, svo að bústörfin yrðu eðlilegri og SKÁTABLAÐIÐ fýsilegri fyrir drengina. Það er óneitanlega skemmtilegra að reka sínar eigin kýr en annarra, og vænlegra er til aukinna afkasta við heyvinnu, að heyfengurinn sé eigin eign. Við allt starfið á Úlfljótsvatni þetta ár sýndu reykvískir skátar mikinn skilning á starfinu þarna eystra og studdu það með ráðum og dáð. Rúmsins vegna er ekki hægt að nefna nöfn allra þeirra, sem alltaf hafa verið reiðubúnir að leggja fram krafta síria í þágu Úlfljótsvatns. En ég get ekki stillt mig um að nefna nöfn nokkurra skáta, sem hafa þessi 8 starfsár alltaf verið fullir af áhuga fyrir Úlfljótsvatni, og á hverju ári fórnað tíma og vinnu fyrir skólann. Ber þar fyrst að nefna bræðurna Þorstein og Svein- björn Þorbjörnssyni og Björn Stefánsson, sem allir dvöldu á Úlfljótsvatni um sum- arið í leyfum sínum. Ennfremur Bendt Bendtsen og Daníel Gíslason, sem báðir miðluðu óspart af sinni löngu skátareynslu. Og síðast en ekki sízt skátahöfðingjann, sem fylgdist með starfinu af lífi og sál og var jafnan driffjöðrin í öllu starfinu eystra. 1942. Um veturinn fékk skátahöfðinginn Einar Erlendsson húsameistara til þess að gera teikningu að skátaskála á Úlfljótsvatni. 14. apríl um vorið var skálanum valinn staður og mælt fyrir honum, og daginn eftir hófst vinnan við hann. Yfirsmiður var Þorlákur Kolbeinsson, en skátar úr Skátafél. Reykja- víkur unnu langtímum saman við bygging- una í sjálfboðavinnu. Byggingarvinnan gekk fljótt og vel, og var húsið vígt á ann- an dag hvítasunnu, 25. maí. Um þá helgi voru um 70 skátar og skátastúlkur á Úlf- Ijótsvatni við ýmiss konar vinnu, s. s. skála- byggingu, undirbúning undir sumarstarfið og að mála að utan kirkjuna og bæjarhús. 141

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.